Heima er bezt - 01.01.1964, Blaðsíða 46
3. hluti verðlaunagetraunarinnar um
ROLLS RAPIDE DE LUXE
ÞVOTTAVÉL MEÐ INNBYGGÐRI
„CENTRIMATIC“ ÞYRILÞURRKU
í þessu hefti birtum við 3. og síðasta hluta getraunariunar
um liina ómissandi ROLLS RAPIDE DE LUXE þvottavél
og þyrilþurrku ásamt, því sem næst, ársbirgðum af PERLU
þvottaduiti. Við erum ekki í neinum vafa um að þátttakan
í getrauninni verður mjög mikil, því svona þægilega og góða
þvottavél vilja allir eignast. Hún mun verða til mikilla þæg-
inda og spara hinni önnumköfnu húsmóður mikinn tíma.
Nú þarf hún ekki lengur að nudda, skola og vinda í hönd-
unum, nei, nú setur hún bara þvottinn í vélina, styður á
hnapp og getur síðan róleg skilið allt saman eftir og farið að
sinna iiðrum verkefnum — ROLLS RAPIDE DE LUXE sér
um þvottinn alveg hjálparlaust.
Og hér kemur þá 3. þrautin, sem þið eigið að glíma við, til
þess að vera með í verðlaunagetrauninni um þvottavélina.
Þegar þið hafið leyst allar þrjár þrautirnar í þessari getraun,
þá sendið þið svörin í lokuðu umslagi til „Heima er bezt“,
pósthólf 45, Akureyri. Munið að skrifa greinilega nafn ykkar
og heimilisfang á svarseðilinn. Lausnir þurfa að hafa borizt
til afgreiðslu HEB í síðasta lagi 15. apríl n. k. Berizt fleiri en
ein rétt ráðning, verður nafn þess, sem hljóta mun hin glæsi-
legu verðlaun dregið úr hinum réttu svörum. Það getur borg-
að sig vel að vera með, því hver veit nema það verði einmitt
þú, lesandi góður, sem eignast nýju ROLLS RAPIDE DE
LUXE þvottavélina með innbyggðri „Centrimatic" þyril-
þurrkunni ásamt 70 pökkum af PERLU þvottadufti.
3. ÞRAUT.
Á síðasta ári kom út bókin „Skáldið á Sigurhœðum“, sem
er safn ritgerða um þjóðskáldið Matthias Jochumsson. Hver
tók saman efnið i þessa bók?
A I I If' A \/ F D 0 I A I I M Sá sem £ær ROLLS RAPIDE DE LUXE þvottavélina í verðlaun fær einnig sem auka-
AUIxAVlKULAUN verðlaun ca. eins árs birgðir af þvottadufti handa meðalstórri fjölskyldu, það er að segja
70 PAKKA AF PERLU ÞV07TADUFTI
bezt í þvottavélina
Þegar þér hafið einu sinni þvegið með PERLU komizt þér að raun um, hve þvotturinn
getur orðið hvítur og hreinn. PERLA hefur sérstakan eiginleika, sem gerir þvottinn mjall-
hvítan og gefur honum nýjan, skýnandi blæ sem hvergi á sinn líka. PERLA er mjög nota-
drjúg. PERLA fer sérstaklega vel með þvottinn og PERLA léttir yður störfin. Kaupið
PERLU í dag og gleymið ekki, að með PERLU fáið þér hvítari þvott, með minna erfiði.
ÞVOTTADUFTIÐ PERLA ER FRAMLEITT AF EFNAVERKSMIÐJUN M SJÖFN Á AKUREYRI
42 Heima er bezt