Heima er bezt - 01.07.1964, Qupperneq 5
Aleð framkvæmd laga um kjötmat var Benedikt feng-
inn til að kynna sér meðferð sláturafurða, og dvaldi
iiann á námskeiði í þeim tilgangi. Var hann svo eftirlits-
og kjötmatsmaður í sláturhúsi Kaupfélagsins um margra
ára skeið, og nú sl. ár yfirkjötmatsmaður á Vestfjörð-
um.
Hér skulu skráð helztu atriði á víðlendum starfs-vett-
vangi Benedikts á Kirkjubóli. Er Búnaðarsamband
Strandamanna var stofnað, var Benedikt einróma kjör-
inn formaður þess. Og einnig fulltrúi þess á Búnaðar-
þing. Fyrir atbeina hans og forgöngu var stofnað Skóg-
ræktarfélag í Strandasýslu, og er hann formaður þess.
Sýslunefndarmaður Kirkjubólshrepps hefur Benedikt
verið frá 1946, og endurskoðandi hreppa- og sýslureikn-
inga. Hreppstjóri í Kirkjubólshreppi frá 1932.
Þótt hér sé numið staðar um upptalningu á störfum
Benedikts, er þó margt ótalið enn, t. d. í hreppsnefnd,
sóknarnefnd, formennska hennar o. fl. Fá munu þau fé-
iagasamtök í Tungusveit og Strandasýslu, svo að Bene-
dikt hafi ekki verið kvaddur þar til starfs og ráðgjafa.
Gjaldkeri Sparisjóðs Fells- og Kirkjubólshreppa hefur
hann verið síðan 1941.
í starfi sínu er Benedikt heill og allur, og frágangur
allur á skýrslum, reikningum og öðru því, sem að starf-
inu lýtur, er prýðilega af hendi leyst. Með trúmennsku
sinni og vandvirkni hefur hann áunnið sér traust sveit-
unga sinna og héraðsbúa. Hann er hlédrægur maður og
fjarri þeim hugsunarhætti og ástríðu, er metorðagirni
nefnist. Meðfæddir eiginleikar hans og þroski þeirra
hafa skapað honum þann metnað og traust, er hann
nýtur í fyllsta mæli.
Benedikt hefur stundað búskap sinn með víðsýn hins
hyggna bónda. Hann hefur aukið mjög túnrækt sína,
þurrkað stórt mýrlendi, sem nú er verið að bylta og
breyta í túnvöll, enda er heyfengur hans eingöngu á
ræktuðu landi. Nautgripafélag hefur starfað í Tungu-
sveit um margra ára bil og stuðlað að því að bæta kúa-
kynið bæði að nythæð og fitumagni mjólkur.
Þegar litið er heim að Kirkjubóli, er augljóst að þar
er mikill myndarbragur á öllu. Er íbúðarhúsið mjög
myndarlegt, kjallari, hæð og ris, allt mjög rúmgott og
skemmtilegt. Oll peningshús eru úr steinsteypu með
járnþaki, ásamt heygeymslum og safnþróm, öll bygg-
ing mjög vönduð.
Benedikt kvæntist 1925 Ragnheiði Fýðsdóttur frá
Skriðunessenni. Foreldrar hennar voru hjónin Anna
Magnúsdóttir og Fýður Jónsson hreppstjóri, sem í
mörg ár bjuggu að Enni í hamingjuríku hjónabandi og
komu þar upp stórum og gervilegum barnahóp. Var
Ragnheiður yngst sinna 12 systkina. Hún hafði dvalið
að heiman í Kvennaskólanum á Blönduósi um tveggja
ára bil og einnig á heimilisiðnaðar námsskeiði.
Bernskuheimili Ragnheiðar var þeim dyggðum prýtt,
er þá voru beztar taldar og nauðsynlegastar: trúmennska
í öllum störfum, iðni og sparsemi. Á sveitaheimilum
þessa tíma dvöldu æskan og ellin saman og miðluðu
Heima er bezt 245