Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 21
sumir óvægir halda áfram. En þar sem við vorum svona
margir saman, vissum við að hvergi væri hægt að fá
húsaskjól fyrir alla hestana annars staðar á leiðinni en
á Laxamýri, varð það að ráði að setjast að á Laxamýri.
Þó vildu þrír ekki hlýta þessu, og slitu félagsskapinn,
og þó allt í góðu, og héldu áfram. Vorum við því ekki
nema 9, sem lögðum að þessu sinni heim í Laxamýri.
Voru móttökur eins og áður með ágætum. Um nóttina
gekk veðrið niður, og var komið bjartviðri um morg-
uninn, en frostið eldd minna. Var nú léttara yfir mönn-
um, og búizt snemma af stað. Ferðin frá Laxamýri gekk
vel. Snjóinn hafði skafið af ísunum, svo færið var gott.
Félagarnir, sem yfirgáfu okkur daginn áður höfðu gist
í Aðaldalnum, og urðu aðeins fljótari heim. Og allir
komumst við heim þetta kvöld eftir 6 daga útivist.
Til samanburðar við nútímaverðlag er fróðlegt að at-
huga reikninga Laxamýrarbræðra fyrir beina okkur
veittann. Heyinu, sem við fengum, átti að skila í sömu
mynt. Reikningarnir eru þannig:
REIKNINGUR
til Jóns í Glaumbæ o. fl.
frá Laxamýrarbræðrum.
1918 Kr. a.
9/1 Væta og símlán.............................. 45
10/1 3var kaffi.................................. 45
— 2var væta og slátur......................... 60
— Rúmlán ..................................... 20
11/1 Matur, kaffi, rúmlán...................... 2.35
12/1 Kaffi, matur ........................... 95
Alls 5.00
Alls fyrir 12 menn......................... 60.00
Laxamýri 12/1 1918.
REIKNINGUR
til Glítms Hólmgeirssonar o. fl.
frá Laxamýrarbræðrum.
1918 Kr.a.
13/1 Kaffi og brauð.............................. 30
— Matur og kaffi ........................ 90
— Væta og slátur, rúmlán.................... 50
14/1 Væta, kaffi................................. 30
Alls 2.00
Alls fyrir 9 menn.......................... 18.00
Laxamýri 14/1 1918.
Landnám íslendinga . . .
(Framhald af bls. 251.) -------------------------
anna þar, og margra afkomenda þeirra á ýmsum athafna-
sviðum, verður það einnig deginum ljósar, að á þeim
sannast ljóðlínurnar víðfleygu úr kvæðaflokki Amar
Arnarsonar til Guttorms J. Guttormssonar:
Þeir sýndu það svart á hvítu
með sönnun, er stendur gild,
að ætt vor stóð engum að baki
að atgervi, drengskap og snilld.
Svo kveð ég ykkur, góðir lesendur mínir, með kveðj-
unni, sem ég veit fegursta:
Verið þið öll blessuð og sæl!
Richard Beck.
Húsmæðraþáttur
(Framhald af bls. 259.) ------------------------
Tómatarnir eru þvegnir vel, lok skorið af þeim og
innmaturinn tekinn út með teskeið, þannig að hann
verði eins og skál. Eggin eru þeytt með salti og pipar
og rifnum osti og tómatmauki (innan úr tómötunum)
blandað saman við þau. Eldfast mót er smurt vel með
smjörlíki og tómötunum raðað þar í. Eggjablöndunni
hellt í og yfir tómatskálarnar. Bakað í heitum ofni,
þangað til eggin eru hlaupin. Gott á kvöldborðið, en
einnig með hangikjöti eða reyktu svínslæri.
STEIKT SÍLD.
1 kg síld (ný) 4 ms. smjörlíki
2 ts. salt 2 ms. salatolía.
V/z ms. heilhveiti
Síldin er hreinsuð, þvegin og þerruð, flökuð og dálk-
urinn tekinn burt, og um leið sem allra mest af smá-
beinum. Saltinu er stráð á síldina og síðan er henni velt í
hveitinu. Steikt á pönnu í smjörlíki og olíu við góðan
hita. Hún á að vera stutta stund á pönnunni aðeins, og
skorpan á að vera stökk og fín. Borin fram með heitum
kartöflum og sítrónusneiðum.
í febrúar 1964.
Glúmur Hólmgeirsson.
Heima er bezt 261