Heima er bezt - 01.07.1964, Page 7

Heima er bezt - 01.07.1964, Page 7
Þormóður Sveinsson: Arni í Stokkhól ma og nokkrir niéjar lians (Niðurlag.) XII. BJARNI, f. 1859. Hann fluttist líka austur og var þar eitthvað við búskap á svipuðum slóðum og Sveinn bróðir hans, en einnig í húsmennsku í Hólshús- um í Borgarfirði um nokkurt árabil. Eftir að hann kom að austan bjó hann eitt ár á Steini á Reykjaströnd, og þaðan fór hann til Vesturheims aldamótaárið, ásamt konu sinni, Astríði Sigurðardóttur, og bömum þeirra, Kristjáni, Arnbjörgu Sigríði og Guðrúnu Sólveigu. — Bjarni hafði verið mikill maður að vexti, afrendur að afli, og söngmaður góður. Ekki hefi ég náð í upplýsingar um hverra manna kon- ur þeirra bræðra voru. XIII. GUÐRÍÐUR, f. 2. nóv. 1865. Elún fór til Vest- urheims, en ekki veit ég hvort að það var áður eða eftir að hún giftist fyrra manni sínum, Erlendi Pálmasyni frá Yzta-Gili í Langadal, ég hygg bróðir Ingvars alþingis- manns á Norðfirði. Þau eignuðust tvo sonu, Kristinn og Magnús, sem báðir voru í kanadiska hernum á meðan á fyrra stríðinu stóð. Seinni maður Guðríðar var Jón son- ur Jóhannesar Magnússonar b. á Hóli í Tungusveit, og er dóttir þeirra Elín Pálína. Guðríður er enn á lífi, eða var það a. m. k. á síðast- liðnu sumri, og er þá nú á 99. aldursári, dvelur á elli- heimilinu „StafhoIt“ í Blaine Wash. Mun það algert einsdæmi í sögu þjóðar vorrar fyrr og síðar að á lífi sé barn manns sem fæddist 173 árum fyrr. Dr. Hannes Þorsteinsson, sá sögufróði maður og mikli ættfræðing- ur, tók það atriði til athugunar fyrir um það bil 40 ár- um, og segist ekki þekkja öruggt hliðstætt tímabil, þ. e. frá fæðingu föðurs til dauða barns hans, lengra vera en 159 ár. Þá má og geta þess, að Guðríður er langa-langa-lang- ömmusystir, — þ. e. 1 á móti 6. lið — nokkurra einstakl- inga af yngstu núlifandi kynslóð, og mun það fáheyrt, ef ekki einsdæmi. En það var líka 45 ára aldursmunur á elzta barni Áma og þess yngsta, þ. e. Guðríðar, og mun það sjaldgæft. Heim.: Th. Jackson: Saga ísl. í N.-Dakota, bls. 415, Minningar- greinar um Munda Goodmans í Tímanum 5. jan. sl., og Annálar 1400-1800, I., bls. 527. Auk þessa eignaðist Árni tvö börn utan hjónabands: XIV. SÆUNN, giftist ekki né mun hafa eignazt af- kvæmi, en var á lífi eitthvað fram yfir 1880. í manntöl- um síðar er hún sögð fædd í Djúpadal 2. des. 1827, en hver móðir hennar var er örðugt að vita, þar eð kirkju- bækur Flugumýrarsóknar brunnu fyrir langa löngu. XV. SKÚLI, f. 1832, dvaldi mest í Skagafirði, og þó eitthvað í Eyjafirði. Hann var þrekskrokkur mikill, og mun hafa dáið á 2. tug þessarar aldar. Börn hans voru: Margrét, föðurmóðir Kristjáns Hermannssonar, nú b. í Leyningi í Eyjafirði, og Hallgrímur, sem fluttist full- tíða norður í Svarfaðardal, kvæntist, og munu börn hans einhver vera hér á Akureyri nú. Móðir Skúla var Kristjana Skúladóttir Thorlacius, þess er úti varð á Oxnadalsheiði 1816, Bjömssonar kaupm. á Húsavík, Halldórssonar biskups á Hólum. En Kristjana var hálf- systir — sammæðra — Bólu-Hjálmars. Samkvæmt því sem hér hefur verið sagt, hafa börn Árna verið 24. Ættir Austfirðinga gera nokkuð aðra grein fyrir þeim, og ber þó ekkert á milli um þau sem upp kom- ust, né tölu þeirra, heldur um hin sem dóu ung. Þar er sagt að börn Árna og iMargrétar hafi verið 14 ■alls. Vera má að það stafi af því að láðst hefur að geta í kirkjubókinni um eitt, eða þó öllu heldur tvö börn þeirra þegar þau fæðast, en í dánarskýrslum koma þau fram. En þau sem dóu í æsku eru ekki nafngreind, svo að ekki verður vitað hvert þeirra það er sem vantalið er. — Þá segir að börn Árna og Steinunnar hafi verið fjögur, þar af þrjú dáið í æsku. Víst voru þau svo lengi í hjónabandi, að vel gátu börnin hafa verið fjögur þess vegna. En kirkjubók viðkomandi sóknar er svo vel og greinilega færð um það árabil, að ólíklegt þykir mér að fallið hafi niður að geta bæði um fæðingu og dauða tveggja þeirra. Og þegar skipti á búinu eru gerð eftir konuna koma aðeins tvö til greina, þau Arnór, sem dó litlu seinna, svo og Margrét. Loks segir að börn Árna og Sesselíu hafi verið fimm, þar af eitt dáið ungt. Þetta gæti vel verið rétt. Kirkjubók Mælifellsprestakalls frá 1862 og fram yfir aldamót, er svo stórsködduð af bruna að hending ein ræður hvað lesið verður. Þau mættu því vel hafa eignazt barn á árunum 1863—64, og nafn þess úr bókinni máðst út vegna brunans, bæði við fæðingu og dauða, en kornungt hefur það þá dáið. Eftir Ættum Austfirðinga verða því börn Árna 26. Heima er bezt 247

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.