Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 6

Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 6
Fremri röð, talið frá vinstri: Kristjana Ingólfsdóttir, Anna Grimsdóttir, Grimur Benediktsson, Benedikt sonur þeirra, Benedikt hreppstjóri Grimsson og Ragnheiður Ljiðsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Ljður Benediktsson, Rósa fósturdóttir þeirra og Sigurður Benediktsson. með sér þeim lífskjörum sem fyrir voru, og sameinuð- ust í umhyggju og tillitssemi gagnvart hvert öðru: Börn- in sýndu ellinni nærgætni og ástúð. Og eldri kynslóðin umbar ærsl og gleði æskunnar. Hið unga konuefni hafði numið þessa fræðslu í for- eldrahúsum, ásamt flestu því sem nauðsyn krefur í lífi sveitakonunnar. Ragnheiður hefur því verið vel undir lífsstarf sitt búin sem eiginkona, móðir og gerandi í þegnlegu starfi húsmóðurinnar. Það kom enda brátt í Ijós, að hún var starfi sínu vaxin í stjórnsemi, myndar- brag og hugljúfri framkomu. Á fyrstu búskaparárum þeirra var til heimilis hjá þeim eldra fólk, sumt vanda- lausir einstæðingar, er minnast húsmóður sinnar með þakklæti fyrir auðsýnda umhyggju og skilning á kjör- um þeirra. Þegar Benedikt var að heiman sökum margvíslegra starfa, er honum voru falin, varð Ragnheiður að sjá um húsbóndastörfin, þar til synir þeirra komust til þroska. Mörg börn og unglingar hafa dvalið á Kirkjubóli og notið þar hollra og góðra leiðbeininga í starfi og leikj- um. Ragnheiður hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum kvenna, verið formaður kvenfélags sveitarinnar og einn- ig formaður Kvenfélagasambands Strandasýslu og hef- ur sem fulltrúi þess sótt fundi norðlenzkra kvenfélaga. Benedikt á Kirkjubóli er þéttur á velli, meðalmaður á hæð og samsvarar sér vel. Sterkt ættarmót er með hon- um og föðurfrændum hans Kleifabræðrum og sonum þeirra. Ber svipmót hans með sér, að hann er maður at- hugull mjög og veit fótum sínum forráð í skoðunum og starfi. í viðræðum er hann oft skemmtinn og glögg- skyggn á hið skoplega við menn og málefni. Enginn er hann baráttumaður í þess orðs venjulegu merkingu, en þó mun af allur skriður mála, takizt honum ekki að þoka þeim fram til sigurs. Gott er vegfaranda að vera gestur þeirra Kirkjubóls- hjóna. Þar er fyrirgreiðsla öll veitt af rausn og myndar- skap. Þessir eru synir þeirra Kirkjubólshjóna Ragnheiðar og Benedikts: Grímur, bóndi á Kirkjubóli, kvæntur Kristíönu Ing- ólfsdóttur, bónda í Gilhaga. Sigurður Matthías, bóndi á Kirkjubóli, kvæntur Sig- rúnu Valdimarsdóttur, húsameistara í Hólmavík. Lýður Valgeir, skrifstofumaður hjá S. í. S. í Reykja- vík, kvæntur Helgu Valdimarsdóttur systur Sigrúnar konu Sigurðar. Einnig ólu þau upp frá bernsku Rósu fósturdóttur sína. Vegfarandi góður! Akir þú bifreið þinni inn með Steingrímsfirði að sunnan, verða bæir til beggja handa. Einn þeirra er til vinstri, þar sem ekið er um sléttar grundir og yfir klettarið eitt. Eru tvö íbúðarhús þar innan túngirðingarinnar. Vestan við annað þeirra er fallegur blómagarður. Túnið er stórt og slétt, liggur upp að fjallinu og inn og fram að dalsmynninu. Til hægri skerst vogur inn í ströndina. Handan hans er Tangi. Þar stendur hið glæsilega félagsheimili sveitar- innar, „Sævanguru. Þetta er Kirkjuból, þar sem þau hjónin Benedikt og Ragnheiður hafa búið nær fjóra tugi ára og aukið frægð óðalsins. Nú hafa synir þeirra Grímur og Sigurður tekið við forráðum jarðarinnar, og spáir það góðu. Sagan endurtekur sig: Bemskan og æskan leikur að legg og skel, byggir sér hús og bæi, og ekur bílum og búnaðarvélum sínum. Glóhærður 9 ára sveinn, Bene- dikt Grímsson, ásamt systkinum og frænda, búa nú saman á Barnatanga. Allar líkur benda til þess, að enn muni um langa framtíð afkomendur Gríms Jónssonar og Guðrúnar Bjömsdóttur byggja óðalið Kirkjuból og njóta ham- ingju og giftu ættarinnar! Guðbr. Benediktsson. 246 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.