Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 10

Heima er bezt - 01.07.1964, Síða 10
mæli er bezt kenndu mönnum að þekkja lífið, íslenzk- ur metnaður er dirfði menn til hugsanasjálfstæðis og framsóknar, íslenzk trú á lífinu er létti undir sporin. En umfram allt var það þó íslenzk tunga, í með og undir öllu þessu, er hélt sálum manna vakandi.“ Með þau nánu tengsl íslenzku landnemanna við ætt- jörðina í huga, skal horfið aftur að landnámi þeirra í Norður-Dakota. Ekki verður stofnsaga þess þó rakin hér, það gerði ég í megindráttum í tveim erindum, sem ég samdi í tilefni af 75 ára afmæli landnámsins, og Rílds- útvarpið flutti af segulbandi á sínum tíma. Eru erindi þessi prentuð í A Imanaki Ólafs S. Thorgeirssonar 1954, og vísast til þeirra um tildrögin að stofnun landnáms- ins. Jafnframt eru þar talin upp hin helztu heimildarrit um það efni, sem lögð voru til grundvallar erindum mínum. Á það eitt skal minnt að nýju, að fyrstu íslenzk- ir frumbyggjar, sem komu til Norður-Dakota vorið og sumarið 1878 voru úr annarri víðkunnri meginbyggð Is- lendinga vestan hafs, Nýja-íslandi í A'lanitoba. Fljótlega fylgdi fjöldi landa þeirra úr Nýja-íslandi þeini í spor til Dakota og námu þar land. Áðrir komu frá Minne- sota, Wisconsin og Winnipeg, svo að innan fárra ára var íslenzka nýlendan í Norður-Dakota orðin fjölmenn og víðlend. Fór það að vonum, að landnemarnir íslenzku á þeirn slóðum, eins og annars staðar í nýbyggðum þeirra vest- an hafs, áttu framan af árum við mikla og margvíslega örðugleika að glíma. En það er þeim til varanlegrar sæmdar, að þeir „létu ekki baslið smækka sig“, svo að heimfærð séu upp á þá orð Stephans G. Stephanssonar í einu kvæða hans, en gengu djarflega á hólm við erfið- leikana, og sigruðu að lokum glæsilega í þeirri hörðu brautryðjendabaráttu sinni. Sr. Jónas A. Sigurðsson, sem prestur var þar í byggð- inni framan af árum, bregður birtu bæði á stríð og strit frumbyggjanna og sigurvinninga þeirra, er hann segir í prýðilegri ræðu, sem hann flutti fyrir minni þeirra á framannefndri 50 ára afmælishátíð landnámsins: „Með vordögum 1878 komu nokkurir íslenzkir ör- eigar frá Nýja-íslandi suður til þessara stöðva. Voru þeirséra Páll (Thorlaksson) og Jóhann P. Hallson, forn- vinur minn, einkum þeir, er fyrstir hófu landnám Is- lendinga í hinum frjóa Rauðárdal. LTm þ. 6. júní það ár voru hornsteinar þessa landnáms lagðir. Hólmganga landnemans. var hafin að nýju. Þrautir nýlendulífsins verða hér eigi tíundaðar. En fáir aðrir en Islendingar hefðu yfirbugað þær, og unnið annan eins sigur á 50 ár- um, sem hér er nú sýnilegur hverjum manni. Ég kom til þessara stöðva 9 árum síðar. En ég sá þá margan vott baráttunnar. Ég sá mæður koma langan kirkjuveg fótgangandi og berfættar, en bera og leiða börn sín. Ég man marga slóð feðranna, er þeir gengu fótsárir á þrúgum. í dag eru þar akvegir, sem bílar, hundruðum saman, þjóta um, með skrautbúinn æsku- lýð og afkomendur landnemanna, 50 enskar mílur á einni klukkustund. — Slík er 50 ára framför vestur- íslenzkrar sveitar. Slík er uppskeran af ævi landnem- ans. Sögu íslendinga þekkf ég að nokkuru, en hvergi hefi ég komið auga á stærri né stórstígari framfaraþætti í allri sögu þeirra en einmitt hér í Norður-Dakota ný- lendunni.“ Þannig fórust séra Jónasi orð á 50 ára afmæli byggð- arinnar. Til frekari áréttingar ummælum hans, skal þess getið, eins og hann raunar gefur í skyn, að séra Páll (fæddur í Húsavíkurkaupstað) átti meginþátt í stofn- un íslenzku nýlendunnar í Norður-Dakota, og var bjargvættur hennar, meðan hans naut við. En Jóhann Pétur Hallsson (frá Geldingaholti í Skagafirði) var sá íslendingurinn, sem fyrstur manna reisti sér þar býli, og flutti í hús sitt þ. 6. júlí 1878, ásamt með fjölskvldu sinni og nokkrum öðrum, sem fylgzt höfðu með hon- um norðan úr Nýja-Islandi til Dakota. Hér var þá fyrsti íslenzki sveitabærinn í Norður-Dakota risinn frá grunni. Var hús þetta 14 fet á lengd og 12 á breidd og 5 feta veggir upp að risi, en í þessum híbýlum bjuggu 9 manns. Eigi að síður hefir þeim frumbýlingunum vafa- laust, og með réttu, fundizt sem miklum áfanga væri náð, er svo langt var komið, að þeim hafði tekizt að byggja skýli yfir höfuð sér. Og þótt þröngt væri þar setinn bekkurinn, þá ríkti vonargleðin og framtíðartrú- in innan veggja þessa litla og lága frumbýlingsheimilis, beindi sjónum þeirra fram á veginn og gaf þeim byr undir vængi, þegar hvassast blés þeim í fang. í einkar fagurri og hugþekkri frásögn, „Jólin í bjálka- kofanum“ (meðal annars prentuð í safnritinu Vestan um haf) hefur séra Friðrik J. Bergmann, sem sóknar- prestur var í íslenzku byggðinni í Norður-Dakota snemma á árum, lýst eftirminnilega landnemalífinu í bjálkakofum þeirra, hvort heldur var í Nýja-íslandi, Norður-Dakota eða annars staðar í frumbyggðum ís- lendinga vestan hafsins. Ég trúi því vart, að nokkur ís- lendingur geti lesið þá glöggu lýsingu, svo að honum hitni ekki um hjartarætur, og vil ég hvetja þá, er þetta lesa, til þess að lesa hana, því að sá lestur mun áreiðan- lega glöggva þeim skilninginn á brautryðjendabaráttu landa þeirra í Vesturheimi. Séra Friðrik dregur, fögr- um orðum, athygli lesenda að trúartrausti landnemanna og bjartsýni þeirra, sem lyfti þeim yfir fjöll erfiðleik- anna, og hann vissi hvað hann fór, því að hann talaði þar út frá víðtækri persónulegri reynslu, nánum kynn- um af frumbyggjunum sjálfum, lífi þeirra, striti og stríði. Bjargföst framtíðartrú þeirra lét sér eigi heldur til skammar verð„. Öllum þorra þeirra auðnaðist það, að sjá ríkan ávöxt atorku sinnar og fórnfýsi. Samhliða framförum í atvinnulífinu, í híbýlum manna og öðrum aðbúnaði, hófst fljótlega þar í byggðunum blómlegt fé- lags- og menningarlíf, bæði kirkjulega og með öðrum hætti, sem lýsir sér í því, að þar rís enn við himinn fyrsta íslenzka kirkjan í Vesturheimi, Vlkurkirkja að Mountain. Þar var lagður grundvöllurinn að stofnun Hins evangeliska-lúterska kirkjufélags Islendinga í Vest- urheimi, og til Menningarfélagsins í Norður-Dakota fyrr á árum má rekja rætur Unitara og Sambandskirkju- 250 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.