Heima er bezt - 01.07.1964, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.07.1964, Qupperneq 20
GLUMUR HOLMGEIRSSON: Kaupstaáarferá í janúar 1918 Mið-Reykjadalur (Breiðamýri) er 38 km frá Húsavík, sem er verzlunarstaður S.-Þingey- inga austan Ljósavatnsskarðs. Áður en akveg- ur kom frá Húsavík, voru allir vöruflutning- ar klakkaflutningur á hestum og þá farin Hvammsheiði. Þegar K. Þ. réðst í þá nýbreytni 1886 að fá vörur til Húsavíkur að vetrinum, voru teknar upp vetrarferðir eftir vörum, sem óþekkt var áður. En svo háttar hér, að flesta vetur gerir ágætt sleða- færi eftir vötnum og Laxá allt út að Laxamýri, en oft- ast erfiðara þaðan til Húsavíkur, en þó sæmilegt þegar slóðir voru komnar, eða hjarn var. Gátu menn oft kom- izt með 12 klyfjar (600 kg) og jafnvel meira á sleða með einum hesti fyrir, og þótti því ólíkt léttari og betri flutningur, en klakkaflutningurinn að sumrinu og var því reynt að flytja sem mest af ársþörfum að vetrinum. Tóku þessar ferðir tvo daga, ef færi var sæmilegt, hér úr miðdalnum. Árið 1908 var byrjað að leggja akveginn frá Húsa- vík hér suður, og haustið 1916 var hann kominn suður að Mýrará (38 km). Það sumar byggði K. Þ. sláturhús á norðurbakka Mýrarár, þar sem nú er býlið Jaðar. Var hafin þar slátrun það haust, á fé úr uppsveitum S.-Þing- eyjarsýslu. Þá var allt kjötið saltað í tunnur, og þurfti því að flytja tunnur og salt frá Húsavík, og gærur og kjöt- tunnur aftur til Húsavíkur. Var það allt flutt á hesta- vögnum og kerrum. Tunnurnar voru oftast fluttar ósamsettar suður í sláturhúsið, og settar saman þar fyrir sláturtíð. Fyrsta haustið gekk allt vel með flutningana, enda haustið mjög gott. En svo kom haustið 1917, eitthvert versta haust, sem komið hefur. Seint í ágúst gekk í norðan úrkomur, og náðist lítið af hevjum eftir það, svo hey urðu úti í stórum stíl hér um sveitir. Slátrun hófst úr 20. sept. og gekk illa vegna sífelldrar ótíðar. Gekk á með meiri og minni hríðar, svo fjár- rekstrar að húsinu gengu erfiðlega, og flutningar frá húsinu töfðust og urðu illframkvæmanlegir. Þó komust allar gærur, en mikið af kjötinu var óflutt þegar slátur- tíð lauk, var verið að smáflytja það um haustið og fram á vetur þegar færi gafst, og er þá komið að þessari eftir- minnilegu ferð, er hófst 9. janúar 1918. Það var mikill snjór, en að mestu orðinn að hjarni og ísar á vötnum, og því sæmilegt færi hesta og sleða. Það var vani þegar farið var í vetrarferðir, að fara í stærri eða minni hópum eftir ástæðum. I þetta sinn vorum við 12 saman og sumir með tvo hesta og sleða og allir með þrjár kjöttunnur á sleða — 9—10 vættir (400—500 kg). Var lagt snemma af stað, veður var stillt og bjart, en frostharka og ljótir klakkar í norðri. Þótti eilítið ískyggi, en þó varð að ráði að leggja af stað. Heldur greiddist úr klökkunum þegar birti af degi og hélzt sæmilegt veður þar til komið var út hjá Laxárbrúm síð- ari hluta dags. Þá gekk skyndilega að með hríð. Rétt norðan við brýrnar var áin farin að bólgna upp yfir akstrarleiðina, tafði það ögn, og blotnuðu sumir menn- irnir þar í fætur. Veðrið herti óðum, svo þegar komið var upp hjá Laxamýri var komin grimmdar stórhríð, svo ekki sá út úr augunum. Urðu allir sammála um, að engin leið væri að komast lengra, og ekki um annað að ræða en leita á náðir Laxamýrarbænda með húsaskjól fyrir menn og hesta. Þá bjuggu á Laxamýri þeir bræður Egill og Jóhannes Sigurjónssynir. Tóku þeir okkur opnum örmum, eins og þeirra var siður, og komum við þar öllum hestun- um í hús, og nóg húsrými virtist þar þó þessi manna- hópur bættist við. Næsta dag var hörku-stórhríð með 30 stiga frosti, og því engin leið að leggja út. Var aðeins brotizt í hús að gefa hestunum, og hjálpa heimamönnum við gegning- ar. Svo var harkan mikil, að einn mannanna kól á and- liti meðan hlaupið var milli húsa, þó stutt væri. Enn hélzt sama veður daginn eftir, og því einbúið að sitja um kyrrt. Vani var að menn nestuðu sig í þessar ferðir, var það nú frosið, svo leita varð á náðir hús- bændanna með mat og sömuleiðis með hey handa hest- unum, því það var búið, sem menn höfðu haft með sér. Þriðja daginn (12. jan.) rofaði ögn til, en frostið var hið sama. Var þá lagt upp og brotizt til Húsavíkur, kjötið losað af sleðunum, tekin út vara og búið á sleð- ana, og öðrum erindum lokið, og gist á Húsavík. Daginn eftir var enn stórhríðarveður með sömu frost- hörku, enda var nú kominn hafís upp í landsteina. Ekki sáum við þó til hans fyrir dimmviðri, nema smájaka, sem komnir voru upp í fjöru í höfninni. Var nú lagt upp heim á leið. Þegar kom hjá Laxamýri, var svo lið- ið á dag, að sjáanlegt var að við næðum ekki heim þann daginn. Var því ráðgert um hvað gera skyldi, halda áfram, eða leita enn í Laxamýri með gistingu. Vildu 260 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.