Heima er bezt - 01.07.1964, Page 27
GUNNA VAR í SINNI SVEIT
Skrambi fór ég hjá mér. Þú skilur — ekkert grín —
Skólastýran kemur út og rakleiðis til mín.
Sæll og bless og velkominn hún kát og fjörug kvað.
Komdu nú inn í hlýjuna — hún sagði nú meira en það.
■Ég kiknaði í hnjánum — þegar konan var svona góð,
en kollurinn var á mér eins og flatbrauð steikt á glóð.
Hún tekur mig undir arminn svona ósköp „ligeglad“
og inn hún dró mig brosandi — hún gerði meira en það.
Og þarna inni var nú mikil gleði góði minn
og gífurlega „sjarmerandi“ meyjahópurinn.
Þær flykktust þarna um mig eins og flugur kringum tað
og föðmuðu mig allar r já og þær gerðu nú meira enþað.
Og ein var þarna dásamleg sem augum gaut til mín
é-g aftur reyndi að svara — og bara upp á grín ....
Aður en ég vissi var hún í hvelli kominn að
og kyssti mig á vangann — já hún gerði nú meira en það.
Svo var farið að dansa, það var brun og bukk og svig
og blessaðar — þær snerust eins og hjól í kringum mig.
Fylgdu mér loks í háttinn þegar húmið læddist að
svo huggulegar allar — já og þær gerðu nú meira en það.
Kvikmyndin Summer Holiday var ákaflega vinsæl
hjá börnum og unglingum. Vinsælasta lagið í myndinni
hét líka Surmner Holiday.
Ómar Ragnarsson hefur ort lítið ljóð undir þessu lagi.
Ljóðið heitir:
SUMARFRÍ
Ég er frjáls og ég má fara í sumarfrí
flakka um og gera hvað sem er.
Upp um fjöll og heiðar fer í sumarfrí
fjöldinn allur ásamt mér og þér.
Veiðir, tjaldar, tínir ber.
Áhyggjurnar allar við sldljum
eftir niðri í bæjarins þröng
og una um eilífð við viljum
í öræfanna fuglasöng.
Víst mun flesta langa að fara í sumarfrí,
flakka um og gera hvað, sem er
og upp um fjöll og heiðar fer í sumarfrí
fjöldinn allur ásamt mér og þér.
Veiðir, tjaldar, tínir ber.
Hér birtist svo gamalkunnugt ljóð, sem nú hefur ver-
ið endurvakið og oft sungið í útvarp, eins og fleiri göm-
ul dægurljóð. Ljóðið heitir:
Gunna var í sinni sveit
saklaus, prúð og undirleit,
hláturmild, en helzt til feit,
en hvað er að fást um það. '
Svo eitt haust kom mærin með
mjólkurbíl um leið og féð,
henni var það hálft um geð,
en hvað er að fást um það.
Svo leigði hún sér kvistherbergi
upp við Óðinstorg
og úti fyrir blasti við
hin syndumspillta borg.
Engum bauð hún upp til sín
og aldrei hafði hún bragðað vín,
horfði bara á heimsins grín,
en hvað er að fást um það.
Að lokum er hér lítið gamanljóð, sem heitir: Gaggó-
ást. Höfundur ljóðsins er Ómar Ragnarsson, en Ellý Vil-
hjálms hefur sungið ljóð og lag á hljómplötu. Lagið er
gamalkunnugt og heitir: River Saint, Marie.
GAGGÓ-ÁST
Þótt ég sé ennþá bara í fyrsta bekk
ég brennandi heita ást á Sveini féltk
og öllum stundum utan í honum hékk
við elskuðumst út af lífinu á hverju sem gekk.
En pabba og mömmu á móti mér ég fékk
og mín vegna þau fengu svaka skrekk
en Gaggó-ást
mun aldrei mást
þótt ég sé ennþá bara í fyrsta bekk.
En seinna meir ég ást á Óla fékk,
með augun blá og sólbrúnn eins og „tekk“
sú ást var sjóðheit eins og sprungið dekk
og auðvitað þá féll hún ekki í foreldranna smekk.
Og loksins ég mikinn leiða á honum fékk
nú leik ég mér að þeim, og frá þeim stekk
en Gaggó-ást
mun aldrei mást
þótt ég sé ennþá bara í fyrsta bekk.
Ennþá er mörgum bréfum ósvarað en erfitt er stund-
um að finna sum ljóð, sem um er beðið. En smátt og
smátt koma þau í leitirnar.
Fleiri ljóð birtast ekki að sinni.
Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135.
Heima er bezt 267