Heima er bezt - 01.07.1964, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.07.1964, Blaðsíða 30
VI. Örlögin stefna að Fremra-Núpi Vordagamir líða. Trausti stjórnar af mikilli hæfni byggingu íbúðarhússins nýja og vinnur sjálfur ötullega við hlið verkamannanna. Þorgrímur réð strax verka- menn til starfa að tillögu sonar síns, jaegar hann hafði mælt fyrir húsgrunninum. Er gamli maðurinn vel ánægður með afköst þeirra undir stjórn Trausta. Þorgrími eru brátt augljósir hæfileikar sonar síns, jiekking og dugnaður. Á meðan hann var drengur heima á Fremra-Núpi, hefði faðir hans aldrei getað ímyndað sér að í honum byggi slíkt ágætis mannsefni, sem raun ber nú vitni um. En návist Trausta vekur þrátt fyrir jiað einhverja ójrægindakennd í brjósti gamla mannsins, ekki ólíkt javí að hann óttist soninn í undirvitund sinni, finnist hann j>urfi að fela sig fyrir honum að einhverju leyti, þótt hann á hinn bóginn sé hreykinn af syninum, eins og hann er nú. Trausti verkfræðingur vinnur alla virka daga úti í vorblíðunni og er löngu orðinn brúnn af sól og enn hraustlegri, en þegar hann kom heim í vor. Stæltir vöðv- ar hans hnyklast sterklega undir þunnri vinnuskyrt- unni, er hann vinnur að steinsetningunni í grunni nýju byggingarinnar, en honum er nú senn lokið. Mitt í önnum dagsins Ieitar þó ósjálfrátt fram úr fylgsnum hugar hans mynd ungu bústýrunnar á Fremra-Núpi, og þótt honum gefist sjaldan tækifæri til þess að tala við hana, fara ekki fram hjá honum kvenlegir kostir hennar, æskufegurð og yndisþokki. Hún blátt áfram heillar hann. Dugnaður hennar og fjölhæfni í húsmóðurstarfinu, sem nú er orðið æði um- fangsmikið sökum mannfjölgunarinnar á heimilinu, vekur hjá honum mikla aðdáun. Hann tekur því að dreyma unaðsríka vökudrauma úti í vorblíðunni, á meðan störfin leika í höndum hans.------- Inni í eldhúsinu á Fremra-Núpi keppist unga bústýr- an við skyldustörf sín hverja stund og ann sér engrar hvíldar, til þess að allt sé sem bezt af hendi leyst. Hún er föl og þreytuleg, og skýrir jrjáningardrættir mótast í svip hennar. Þó er hún líkamlega hraust og tápmikil. En hið miskunnarlausa loforð, sem hún gaf Þorgrími og foreldrum sínum síðastliðinn vetur, stendur eins og hárbeitt ör í hjarta hennar, og finnst henni hún stinga sig dýpra og sárara með hverjum degi sem líður. Þó hafði hún einmtit vonað, að tíminn myndi draga úr sársaukanum og milda allt. Án þess að hún fái nokkuð við ráðið tekur mynd verkfræðingsins unga og glæsilega, sem svo óvænt kom á heimilið, að leita stöðugt fastar og fastar á huga henn- ar. Hún sér hann hvað eftir annað alveg ósjálfrátt fyr- ir hugarsjónum sínum, glæstan og djarfan við störf sín, og bjarta hreina brosið á karlmannlegu andliti hans, sem hún hefur stundum orðið að mæta í raunveruleikanum, þrátt fyrir alla viðleitni til að forðast það, Ijómar óaf- máanlegt í undirvitund hennar eins og ylríkur geisli frá töfraheimi vorsins sjálfs. Og hún heyrir Iétta, glaða og þróttmikla rödd hans enduróma í djúpi sálar sinnar. En hún er ekki einu sinni frjáls að því að hugsa um unga verkfræðinginn, hvað þá meira. Nei, hún verður að reyna að útiloka þetta allt, útiloka vorið í sinni ungu sál, og kvöl hennar er takmarkalaust djúp og sár. Síðasti dagur sólríkrar viku er liðinn að kvöldi, og kvöldsól hnígur senn að viði. Trausti hefur gefið verka- mönnum sínum helgarfrí, og þeir eru allir farnir frá Fremra-Núpi, hver heim til sín. Húsgrunnurinn er nú fullgerður, og strax eftir helgina verður byrjað á því að „slá upp“ fyrir veggjunum. Trausti stendur hjá húsgrunninum og horfir glaður yfir unnið verk. Allt hefur þetta staðizt áætlun hans, og þó heldur betur. Já, verkinu hefur vissulega miðað mjög vel áfram. Svanhildur kemur út úr bænum og ætlar inn í skemmuna frammi á hlaðinu. En það fyrsta sem mætir augum hennar, er verkfræðingurinn, sem stendur hjá húsgrunninum, og leið hennar hlýtur að liggja fram hjá. Hún horfir niður fyrir sig og ætlar að ganga fram- hjá Trausta, eins og hún hafi ekki orðið hans vör, en hann lítur þegar til hennar og segir brosandi: — Gott kvöld, Svanhildur! — Gott kvöld! — Ætlar þú ekki að koma hingað til mín og líta yfir grunninn að nýja húsinu? Nú er hann fullgerður. — Ég má ekki vera að því núna. — Það tefur þig ekkert. Brosið verður ennþá bjart- ara á sólbrúnu andliti hans. — Komdu bara og sjáðu! Röddin er þýð og lokkandi. Svanhildi finnst það ekki háttvísi samboðið að líta ekki aðeins á verkið, fyrst hann býður henni það svo eindregið. Hún gengur því til Trausta, nemur staðar við hlið hans og lítur yfir hús- grunninn. — Þetta á auðsjáanlega að verða stórbygging, segir hún áhugalaust. Já, Svanhildur, hér á að rísa framtíðarhöll bóndans á Fremra-Núpi. Svanhildur andvarpar eins og ósjálfrátt, og sársauka- drættír fara um andlit hennar. Hún stendur sem í leiðslu nokkur andartök og starir á húsgrunninn. Trausti heyrir andvarp Svanhildar og lítur rannsak- andi á hana, og hann fær þegar óljóst hugboð um dul- inn harm í barmi hennar. En hver er orsök hans? Trausti vill ekki vera nærgöngull í spurningum sínum við Svanhildi, til þess þekkjast þau of lítið enn sem komið er. Hann segir því glaðlega: — Heldur þú að það verði ekki gaman að búa í nýja húsinu, Svanhildur, verða húsmóðir þar? Hann lítur beint í augu hennar blítt og spyrjandi, en aðeins and- artak. Þau eru ekki lengur tvö ein við húsgrunninn. Þor- grímur nemur staðar hjá þeim. Svanhildur lítur snöggt undan augnaráði Trausta, og svarið við síðustu spurn- ingu hans deyr á vörum hennar, Hún hraðar sér þegar á brott og hverfur inn í skemmuna. 270 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.