Heima er bezt - 01.02.1966, Síða 6
ur þar einkum til athugunar mikil túnrækt og uppbygg-
ing íbúðar- og gripahúsa. Auk þess hafa þau fóstrað þar
upp fimm börn sín og tvö fósturbörn.
Þegar þau fluttu að Brimnesi þurfti að endurbæta öll
hús, og túnið var lítið og þýft. Af því komu það sum-
ar tvö kýrfóður eða 49 hestburðir. Nú skiptir taðan á
Brimnesi hundruðum hestburða, sem fæðir um 30 gripi
í fjósi, auk þess sem á heimilinu eru um 250 fjár. Nú
hefur verið ræktað allt scm ræktanlegt er bæði utan og
innan við bæinn.
Alls er túnið nú 20 hcktarar og byrjað er að grafa
skurði uppi á Efri-.Mýrum um 2 km frá aðalvegi og
standa að þeirri ræktun Guðmundur og synir hans.
Árið 1921 kom í heimilið á Kirkjubóli drengur að
nafni Albcrt Stefánsson. Ólst hann þar upp og hcfur
verið tengdur heimilinu ávallt síðan. Enn er hann á
Brimnesi og vinnur heimilinu eins og synir þeirra hjóna.
Árið 1924 tóku þau hjón í fóstur stúlku af Guðlaugu
í Fclli systur Guðmundar, er hún missti mann sinn frá
6 börnum. Hún heitir Birna Björnsdóttir. Hún hefur
hin síðari ár annazt heimilið með Sólveigu ásamt ljós-
móðurstörfum, sem hún gegnir í Fáskrúðsfirði.
Biirn þeirra Brimncshjóna cru þessi:
Guðrún Sigríður, fædd 13. nóv. 1926, gift Guðjóni
Marteinssyni. Búsett í Ncskaupstað.
Þorgeir Ragnar, fæddur 5. júní 1928. Býr nú félags-
búi með föður sínum á Brimnesi.
Elín Sigdóra, fædd 29. jan. 1930. Giftist Þorleifi
Vagnssyni. Hún er búsett í Reykjavík.
Sigurlaug, fædd 5. jan. 1932. Búsett í Reykjavík.
Eiríkur Ármann, fæddur 2. janúar 1936. Kvæntur
Huldu Steinsdóttur. Búandi á nýbýlinu Brimnes II
Þau hjón hafa haft mikið barnalán. Öll eru börn
þeirra efnileg og mannvænlegt fólk.
Þegar Guðmundur flutti að Brimnesi var þar kirkju-
jörð. Síðar keypti hann jörðina og skipti henni ásamt
bústofni milli barnanna 1959. Sjálfur býr hann nú á
tvcim þriðjungum jarðarinnar félagsbúi með Þorgeiri
syni sínum, en Eiríkur sonur hans á þriðjungi jarðar-
innar, og hefur hann reist nýbýli í túninu, sem hann
nefnir Brimnes II. Þar hefur hann einnig reist fjárhús
og hlöðu handa sér.
En sameiginlegt fjós hafa þeir feðgar, sem byggt var
1958 með safnhúsi, hlöðu, 4 votheysturnum, mjólkur-
geymsluhúsi og fóðurklcfa, allt sambyggt. Tekur fjós-
ið um 30 nautgripi og á hcimilinu eru um 250 sauðkind-
ur. Mjólk er daglega flutt inn í Búðakaupstað rúmlega
100 lítrar að jafnaði.
Guðmundur er sérstakur rcglumaður um fjármál bús-
Framhald á bls. 47.
Fjölskytdumynd fni fírirnnesi. Sitjandi: F.irikur, GuOrnundur, Sálveig og 1‘orgeir. Standandi: GuOrún, Sigurlaug, Elln og fíirna.
Albert vantar d myndina.
42 Hfima er bezt