Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 11
við íslendingar vorum og mjög upp á aðra komnir í þann tíma: skipshöfn, þ. e. skipstjóra, stýrimann og tvo háseta; sé annar þeirra timburmaður, en hinn kunni að gera að seglum. Manni koma í hug hendingar Jónasar: „Þeir ætla sér að eignast skip, þótt enginn kunni að sigla.“ .... Stjórnin leggur á það áherzlu, að hún muni gera hvað hún geti („alt hvad vi kan“) til þess að senda Mohn með vorskipinu vörur þær allar, er nokkur kostur sé að fá, svo að lækka megi skuldina við hann eða helzt lúkast að fullu. Loks biður hún Mohn að senda sér ákveðin svör um það, hvers hún megi af honum vænta, með fyrsta gufuskipi, er gangi frá Kaupmannahöfn til Reykjavík- ur eftir áramót, en það muni verða í öndverðum marz- mánuði. Bréfið er skrifað 5. nóv. Eigi mundi þykja skjótlega ganga skeytaskipti milli íslands og annarra landa á því hcrrans ári 1965, ef bíða þvrfti þriðjung árs eða lengur eftir svari við bréfi, er sent væri í dag. Allt er bréfið til Mohns stórkaupmanns hið kurteis- asta. Engar eru þar harmatölur, þótt horfur um hag fé- lagsins og framtíð væru allt annað en glæsilegar. Hitt dylst cigi, að stjórnin hefur þótzt ciga allmjög undir högg að sækja um viðskipti við stórkaupmanninn, sem og vonlegt var. Þau viðskipti gátu naumast endað nema á cinn veg fyrir félagið, eins og þeim var háttað: Lán á vörum á lán ofan, en gjaldcyrisvaran entist illa til grciðslu, metin til þess verðs, er á hana var lagt af lán- ardrottni, scm um leið var kaupandi og hafði sjálfdæmi að kalla um verðlagið. Óhamingja þessa félags, sem og annarra fleiri, var sú, að komast þegar í öndverðu í skuld við hinn erlenda viðskiptamann, skuld, scm aldrei gat lokizt að fullu. Viðhorf félagsins gagnvart honum varð |)ví cigi ósvipað aðstöðu íslenzks bónda, fátæks, gagnvart selstöðukaupmanni. (Um þessar mundir átti stjórn félagsins bréfaskipti og ítrckaðar viðræður við Tryggva Gunnarsson um að Grafarósfélagið samcinaðist Gránufélaginu. En samn- ingar tókust ekki.) (Framhald.) Hjónin ú Brimnesi Framhald af bls. -12. --------------------------- ins. Búnaðarreikninga hefur hann haldið allan sinn bú- skap. IV. Guðmundur hefur ekki komizt hjá því að taka að sér ýmis félagsstörf í svcit sinni og jafnan rækt þau vcl. Hann hcfur vcrið alls 25 ár í hrcppsncfnd, 14 ár í stjórn Búnaðarfélagsins og 12 ár í sóknarnefnd. \'irðingar- vottur og stefnuvottur frá 1924—1964. Auk þcss um- boðsmaður Búnaðarfélags íslands í mörg ár. Oft hafði hann gjaldkerastörf í þessum ncfndum og tók |>að lang- an tíma frá búskapnum. Hann er snyrtimaður í allri umgengni og hefur allt í röð og reglu. Bóndinn þarf að sinna skepnum sínum alla daga, jafnt helga daga sem virka. Guðmundur segir, að þegar hann hafi farið að líta eftir vinnutíma sínum á stórhátíðum gegnum árin hafi hann aldrei verið styttri en 101/2 stund á jóladag, en lengstur flest árin á hvítasunnu 17—18 stundir, ef sauðburður stendur yfir. Halldóra systir Guðmundar mun oft hafa hvatt hann til að flytja til Vesturheims, meðan hann var ungur. Um þetta segir hann sjálfur: „Aldrei datt mér í hug að hverfa til Vesturheims, þó að ég fengi þaðan mörg bréf og góðar fréttir. Kom margt til. Fyrst og fremst þessi indæla birta, sem þetta land hefur að bjóða okkur eftir að skammdegi lýkur á hverjum vetri. Þessi blíðu vorkvöld, ef vel vorar, og ilmur úr jörðu og kjarri. Allt kallar þetta okkur til starfa til að nota okkar frjóu mold, sem oft gefur ríku- lega ávexti, ef vel er að öllu búið, jafnvel þó að sumr- in séu stutt.“ Kemur hér fram viðhorf bóndans til náttúrunnar og gleði hans af umgengni við hana. Betur væri að sem flestir hefðu skilning á því, að ræktun landsins er ein af beztu innstæðum framtíðar- innar. Ekki mun það að skapi Guðmundar á Brimnesi, að svo verði skilið við þetta mál, að ekki sé nánar minnst á hlut Sólveigar við uppbyggingu heimilisins. Hjóna- band þeirra er mjög ástúðlegt og til fyrirmyndar. Eins og áður er sagt hafði Sólveig notið góðrar menntunar utan lands og innan áður en hún tók við húsmóðurstörfum í Fáskrúðsfirði. Þess hefur heimili hcnnar notið. Jafnhliða og Guðmundur hefur séð vel um búið út á við, hefur hún skapað gott og hlýlegt heimili. Hún fékk sér snemma prjónavél og vann meira til fata á hcimilisfólkið en almennt gerðist. Þá hefur hún mikið yndi af trjágróðri og blómrækt. Það cr mest hennar verk að fagur trjágarður er fram- an við íbúðarhúsið. Þar unir hún margt sumarkvöld með vinum sínum, blómunum. Þeim Brimneshjónum hefur tekizt að skapa einhug meðal heimilisfólksins um heiU heimilisins og börn þeirra og fósturbörn unað betur hcima en almennt gerist. Þess vegna cru þar miklir vinnukraftar og allt í stöðugri framför. Þau gcta því horft ánægð frain á veginn í samfvlgd barna sinna og fósturbarna. BREFASKIPTI C.uðnnmdur Ingi'arsson, Asum, Svlnavamshr., A.-Hún., óskar cflir bréfaskiptuin við slúlkur á alilrinum H—16 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Iluröur Ingvarsson, Ásum, Svínavatnshr., A.-Hún., óskar cflir brófaskiptum við stúlkur á aldrinuin 15—17 ára. Mynd fylgi fyrsta brífi. Ileima er bezt 47

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.