Heima er bezt - 01.02.1966, Side 15

Heima er bezt - 01.02.1966, Side 15
um slóst ung stúlka, Kristín Ólafsdóttir prests að Mel- stað. Garraveður var þenna dag, en herti það því lengur sem leið, unz á brast iðulaus stórhríð af norðri. Séra Páll var ekki meir en svo kunnugur á þessum slóðum, enda veður beint í fangið að sækja. Ákvað hann því að setj- ast að og halda kyrru fyrir unz veður batnaði. Gróf hann stúlkuna í fönn, en gekk sjálfur um, um nóttina til að halda á sér hita. Morguninn eftir stytti upp og komust þau þá norður af heiðinni, án þess að verða meint af. En bæði voru þau óvön slíkum hrakningum og útilegum og þóttu þau hafa komizt í mannraun nokkra. Hrakningar í Miklagili. Enn ein hrakningasaga er til um kvenfólk í vetrar- ferð yfir Holtavörðuheiði. Ekki veit ég nákvæmlega hvenær hún skeði, en sennilega hefur það verið einhvern tíma á árabilinu 1910—20. Jón póstur Jónsson í Galtar- holti var þá á leið norður yfir heiðina og með honum tveir fylgdarmenn, sem hann hafði ráðið til ferðarinn- ar auk nokkurra ferðamanna sem slógust í förina og þar á meðal tvær stúlkur. Hláku hafði gert ofan á mikið fannkyngi og var færðin svo vond að hestarnir sátu ítrekað fastir í krapa- blám og sköflum. Urðu karlmennirnir stöðugt að hjálp- ast að við að taka ofan af hestunum og selflytja koffort- Baula i Norðurárdal að vetrarlagi. Húsið i Fornahvammi að sumarlagi. in yfir blárnar. Stundum sukku hestarnir svo djúpt að þeir komust ekki upp af sjálfsdáðum og varð að hjálpa þeim. Allt þetta tafði ferðina til muna, og þegar hópur- inn komst loksins norður að Miklagili var hann búinn að vera 18 klukkustundir frá því að hann lagði af stað frá Fornahvammi. Þegar að Miklagili kom versnaði útlitið fyrst fyrir alvöru því gilið var í foráttuvexti eftir leysinguna og rann mittisdjúpt vatn í stríðum streng og flaumi mikl- um ofan á veikum ís. Væri ísinn svo veikur að hann héldi ekki hestunum var þarna botnlaust hyldýpi og ekki um neitt annað að ræða en snúa aftur, svo efni- legt sem það annars var. Jón póstur sendi annan fylgdarmanna sinna með broddstaf út í ána til að kanna dýpið og ísinn. Þegar hann kom aftur taldi hann að ísinn myndi heldur svo fremi sem hestarnir færu dreift út á hann og ekki allir í einu. Þetta gekk seint en óhappalaust hvað hestana snerti. Hins vegar varð annarri stúlkunni fótaskortur á ísnum, enda í pilsi að þeirra tíma hætti og tók þess vegna á sig miklu meiri vatnsþunga heldur en karlmennirnir. Stúlkan fór á bólakaf og skaut ekki upp. Barst hún með flughraða niður ána og ekki sjáanlegt annað en hún bær- ist niður í straumröstina þar sem áin féll niður í gljúf- ur. Var hverjum þeim bráður bani búinn sem þangað lenti. í þetta skipti vildi það stúlkunni til láns og lífs að Heima er bezt 51

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.