Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 8

Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 8
um það við Loft Loftsson. Ég man þeim syðra þóttu sum verkfæri okkar skrýtin, t. d. tvennar hjólbörur. Þær voru léttar í meðförunum, og þegar fram í sótti, sannfærðust menn um gæði þeirra og voru fegnir að fá þær lánaðar. Það var stundum vont um neftóbak um þessar mundir, en margir ekld mönnum sinnandi, ef það fékkst ekki. Var þá stundum úr vöndu að ráða. í eitt skipti, þegar öll sund virtust lokuð, fór ég til Lofts Loftssonar og spurði, hvort hann ætti ekki óvenjulega sterka vindla til sérstaks brúks. Hann fann hjá sér þrjá kolsvarta hollendinga, og ég hélt heim í vistarveru okk- ar og bað ráðskonuna að lána mér kaffikvöm. Hún varð alveg undrandi og spurði til hvers, en ég sagði hún fengi að vita það á eftir. Síðan malaði ég hollendingana og fékk ágætis neftóbak og gat traktérað ýmsa. En til marks um það, hvernig menn gátu orðið í tóbaksleys- inu, er það, að einu sinni uppi á símstöð hjá Einari hitti ég einn, sem var búinn að vera lengi tóbakslaus og bað mig um í nefið. Þegar ég sá, hvemig hann sallaði á hand- arbakið, bað ég hann að fara varlega, og rétt í því er ég kallaður í símann. En þegar samtalinu var lokið, sé ég, hvar hinn liggur því sem nær hniginn í ómegin. Hann hafði drifið þetta í sig með svona mikilli frekju. En ég hafði gert mitt til að veita honum hressingu. Stórkost- legasta dæmi, sem ég veit um tóbaksnautn er þó það, þegar ég sá mann taka út úr sér efri góminn og fylla af neftóbaki. Þessi vertíð í Sandgerði gekk annars ágætlega. For- KO Heima er beil

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.