Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 11
ýmsum hálendissvæðum, og þótt þær væru af vanefnum gerðar á ýmsan hátt, tókst mér þó að gera yfirlit um helztu gróðurfélög hálendisins og gera nokkra grein fyrir útbreiðslu þeirra á ýmsum stöðum. Þá safnaði ég nokkrum athugunum um í hvaða lendum fé væri helzt á beit, og hvaða tegundum gróðurs það sæktist helzt eftir. Þessar athuganir mínar þóttu mér benda til þess, að víða mundi um ofbeit að ræða í afréttarlöndum. Hins vegar var ekki um að ræða nokkrar mælingar, hvorki á víðáttu nýtilegs lands, né þeim breytingum, sem á því kynnu að verða. Var því naumast að vænta, að mikið væri gert með ummæli okkar, sem þóttumst sjá, að hætta væri á ferðum. Árið 1950 hóf Atvinnudcild Háskólans jarðvegskorta- gerð. Stjórnaði dr. Björn Jóhannesson því vcrki, en hann Irafði þá um nokkur ár unnið að jarðvcgsrannsókn- um. Honum og samstarfsmönnum hans varð brátt ljóst, að mikilvægt væri að fá gróðurkort gerð, og ekki sízt í sambandi við hina miklu uppblásturshættu á afréttar- löndum. \rarð það úr, að hafizt var handa um að gera gróðurkort af Gnúpverja-afrétti sumarið 1955, undir forystu Björns, cn starfslið hans í Atvinnudeildinni vann að því. Lýsing á afréttinum ásamt gróðurkorti var prentuð tvcimur árum seinna, og gerðu þeir hana Björn Jóhannessön og Ingvi Þorsteinsson. Ýmsar ástæður réðu því, að þessi afréttur varð fyrir valinu. Til voru loftmyndir af svæðinu, en þær eru, eins og síðar segir, undirstaða kortagerðarinnar. Þá hafði Guðmundur Kjartansson rannsakað þar berggi'unn, og var honum kunnugur, frá minni hendi var til nokkurt gróður- fræðilegt yfirlit frá árunum fyrir mæðiveikina, en þeg- ar hér var komið sögu, var verið að taka afréttinn til fulirar notkunar á ný. Og loks kom til, að kallast mátti greiðfært um hann. Næstu árin var nokkru bætt við af gróðurkortum, en verulegur skriður kemst fyrst á málið um og eftir 1960. Ingvi Þorsteinsson dvaldist árlangt vestur í Ameríku og nam þar starfsaðferðir við gróðurkortagerð og rann- sókn á beitarþoli lands, og hefur hann stjórnað korta- gerð þessari síðan. Hin síðari sumur hefur því allstór vinnuflokkur frá Atvinnudeildinni unnið að þessu um þriggja mánaða skeið á hverju ári, enda hefur þegar mikið áunnizt. Auk fastra starfsmanna Atvinnudeildar- innar, hafa skólapiltar og stúdentar einkum verið ráðnir til starfsins. Þar sem hér er um að ræða stórmerkt rann- sóknarstarf, sem hafa mun mikið gildi í framtíðinni, en fremur lítið verið um rætt, taldi ég vel við eiga að kvnna það lítilsháttar fvrir lesendum Heinia er bezt. Knikur á Sandi. Ilrolið hraun. Hrirna rr bnt 8.1

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.