Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 16
Hannesarminni á Djúpavogi. Teikning ejtir Ríkharð Jónsson.
sem öllum er kær í minningunni um hana, ekki sízt
börnum hennar og tengdabörnum, sem öll nutu hlýju
hennar og ástríkis í ríkum mæli.
Anna Lúðvíksdóttir var tápkona og hélt góðri heilsu
fram í háa elli, þrátt fyrir erfiðissama ævi. En skömmu
fyrir síðustu jól veiktist hún hastarlega af æðastíflu í
fæti og var flutt á sjúkrahúsið í Norðfirði, þar sem stóð
til að hún gengi undir mikla aðgerð. Til þess kom þó
ekki. Hún andaðist á gamlaársdag. Utför hennar fór
fram frá Stöðvarkirkju 7. janúar að viðstöddu fjölmenni.
Börn þeirra Önnu og Ingimundar eru þessi, talin hér
í aldursröð:
Hansína Lovísa, gift Albert Brynjólfssyni, Stöðvar-
firði, eiga tvö börn.
Rannveig, gift Sigfúsi Bjarnasyni, forstjóra, Reykja-
vík, eiga fjögur börn.
Sveinn, á Stöðvarfirði, kvæntur Þóreyju Jónsdóttur
frá Steinaborg á Berufjarðarströnd, eiga þrjú börn.
Dagný, gift Tómasi Geirssyni í Vestmannaeyjum,
eiga þrjú börn.
Sverrir, á Stöðvarfirði, kvæntur Ljósbjörgu Guð-
laugsdóttur, eiga sex börn.
Jón, á Stöðvarfirði, kvæntur Petru Sveinsdóttur, eiga
fjögur börn.
BRÉFASKIPTI
Sóley Guðmundsdóttir, Brekkugötu 12, Akureyri, og Ingibjörg
Bjarnadóttir, Brekkugötu 3, Akureyri, óska eftir bréfaskiptum við
pilta og stúlkur á aldrinum 16—18 ára.
Iíristin Geirsdóttir, Steinum, A.-Eyjafjöllum, Rangárvallasýslu,
óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 14—16 ára.
Mynd fylgi fyrsta bréfi.
GuÖrún Inga Sveinsdóttir, Skarðshlíð, A.-Eyjafjöllum Rangár-
vallasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum
13—15 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Guðlaug Pálsdóttir, Hvassafelli, A.-Eyjafjöllum, Rangárvalla-
sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 13 —
15 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
88 Heima er bezt