Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 28

Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 28
Hér áður fyrr var ósköp fátt í bænum, örfá hús úr timbri hátt með ris. Menn fóru á sjó á sínum litlu kænum. Samt var lífið fjörugt, aldeilis. Á Öskjuhlíðinni voru oftast stefnumótin, ef ungur halur vildi hitta sprund. Og æskan var svo ljúf og létt á fótinn og lifði marga yndislega stund. Viðlag: í Reykjavík, í Reykjavík. Ó, hvað það er friðsælt út við sundin, Esjan drottning fegurðar að lit. Viðey skrúðgræn, bláum sævi bundin. Bjart um allt við fagurt sólarglit. Nú til dags er allt á ferð og flugi. Fríðar hallir rísa, vegleg torg. Alltaf eitthvað nýtt á efsta baugi í okkar kæru, fögru höfuðborg. Viðlag: í Reykjavík, í Reykjavík, Endurminning ungdómsára minna, er svo kær og mér í hjarta rík. Hvað það er sælt að mega frið þinn finna þú fagra yndislega Reykjavík. Viðlag: í Reykjavík, í Reykjavík. Oft hefur verið beðið um ljóð, sem heitir Dísukvæði. Höfundur Ijóðsins er sr. Friðrik A. Friðriksson fyrrver- andi prófastur á Húsavík, en frægð sína á þetta litla Ijóð meðal annars því að þakka, að hinn vinsæli M. A. kvart- ett hafði þetta ljóð á sinni söngskrá. í M. A. kvartettinum voru þessir menn: Bræður tveir frá Hæli Þorgeir og Steinþór Gestssynir, Jakob Haf- stein sonur Júlíusar Hafstein sýslumanns á Húsavík og Jón Jónsson frá Ljárskógum. Þessir ungu piltar, sem stundað höfðu nám saman í Menntaskólanum á Akureyri, sungu saman við miklar vinsældir um 10 ára skeið, frá 1932 til 1942. Enn þá eru leiknar í útvarp hljómplötur eftir M. A. kvartettinn og njóta þær mikilla vinsælda. Og hér birtist þá DÍSUKVÆÐI. Vakna, Dísa! Vakna nú! Veltu þér úr fleti! Vakna segi ég, vakna þú, vond er þessi leti! Björt í suðri sólin skín, sveifla piltar ljáum. Hátt og ótt í eggjum hvín, er þeir granda stráum. Dísa þetta draumaslór dámar mér nú ekki; ljáin orðin alltof stór, ætti að nást í flekki. Þegar slíkur þurrkur er, þyrfti fólk að vaka. Fram úr stelpa, flýttu þér, farðu strax að raka! Dísa var að dansa í nótt, Dísa þarf að lúra, Dísu er svo dúrarótt, Dísa vill því kúra. Átök mörg og orðin reið, ekkert henni bifar. Sólin gengur sína leið sífellt klukkan tifar. Enn þá liggja hjá mér mörg bréf, þar sem beðið er um ljóð, bæði gömul og ný, til birtingar í þættinum. Ég hef enn ekki getað náð í sum þessi kvæði, en vænt- anlega get ég birt eitthvað af þeim í apríl-blaðinu. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. Hún ljósa mín Framhald af bls. 92. ---------------------------- þá persónulega, án þess að þekkja þá eða hafa kynnzt þeim. Til dæmis ef hann eða hún talar í símann, þá sé hægt að segja um hvort viðkomandi er menntaður eða ekki, hvaða stöðu hann hafi, jafnvel fara nærri um ald- urinn og fleira teldð fram. Ég get þessa bæði í gamni og alvöru, því fagmenn á þessu sviði hefðu fljótlega farið nærri um ævistarf Jóhönnu Magnúsdóttur, eftir að hafa heyrt rödd hennar, þeir hefðu vitað að hún fyrst og fremst var kona og móðir, þar næst hjúkrunarkona og jafnvel læknir, þeir hefðu enn fremur vitað, að hún fékk enga skólamenntun, en að lífsstarfið var að vera hjá sjúkum og lina þrautir þeirra. Jóhanna var trúuð kona og bænrækin, og æfinlega kvaddi hún börnin með þessum orðum: Guð fylgi þér. Hún var að upplagi örlynd og skapmikil eins og oft er um þá, sem mikið kveður að, en þessu geði sínu stillti hún í hóf, en mörgu andstreymi og örðugleikum mætti hún á sinni löngu ævi. Þó kom það stundum fyrir að hún viðhafði þau orð, sem krakkar kalla að tala ljótt, en ekki voru þau orð fyrr komin af vörum hennar, en hún sagði: Guð fyrirgefi mér að ég blóta — og það er ég viss um að hann hefur gert á augabragði, því betri og göfugri konu hefur drottinn almáttugur aldrei skap- að. 100 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.