Heima er bezt - 01.03.1966, Page 30

Heima er bezt - 01.03.1966, Page 30
langþráðu drauma-borg sína og öll tízku-fyrirbrigði hennar, sem hvarvetna mæta augum ferðakonunnar. Magnús lögmaður og frú hans hafa nýlokið kvöld- verði í glæsilegum borðsal á neðstu hæð hússins, og halda síðan af stað til herbergis síns. Að þessu sinni kýs frú Klara ekki að fara upp með lyftunni, heldur ganga upp alla stigana í hægðum sínum og skoða þetta völ- undarhús eftir föngum á leið sinni upp á efstu hæð. Frú Klara er að vísu orðin dálítið þreytt eftir eril dagsins, en vill þó ekki láta á því bera, og virðist því létt í spori. En er hún hefur gengið upp þrjá mikla stiga, tvískipta, misstígur hún sig á einu þrepi og missir um leið jafnvægið og fellur skáhallt aftur á bak og tek- ur síðan tvær—þrjár veltur niður á næsta stigapall. Þar liggur hún hreyfingarlaus og bærir ekki á sér. Magnús lögmaður hleypur í skyndi ofan stigaþrepin til konu sinnar og sér þegar, að hún er meðvitundar- laus. Hér hefur orðið alvarlegt slys. Hann gerir í skyndi allar nauðsynlegar ráðstafanir, og að skammri stundu liðinni fylgir hann konu sinni meðvitundarlausri inn í stórt sjúkrahús í þessari ókunnu borg. Og nóttin fær- ist yfir hægt og hljótt. Yfirhjúkrunarkona slysadeildarinnar gengur ásamt hjúkrunarnema inn í litla sjúkrastofu til að gegna skyldu sinni. En þar hefur frú Klara verið lögð inn, eftir að læknar hafa gert að meiðslum hennar, sem aðallega eru á höfði. Frúin er enn meðvitundarlaus og hvílir náföl á hvítum svæflinum. Hún er eini sjúklingurinn á stofunni, og þar ríkir djúp næturkyrrð. Magnús lögmaður varð að yfirgefa sjúkrahúsið strax eftir að kona hans var komin í umsjá hinna frönsku lækna, án þess að fá að vita nokkuð frekar um meiðsli hennar að svo stöddu. Og nú vakir hann einn í herbergi þeirra hjónanna á gistihúsinu og bíður þess sem koma skal, með karlmannlegri ró. Yfirhjúkrunarkonan nemur staðar við sjúkrabeð frú Klöru, og neminn sem er ung stúlka, við hlið hennar. Báðar líta rannsakandi á þennan nýkomna sjúkling, sem hvorug þeirra hefur áður séð hér á sjúkrahúsinu, en eiga nú að takast á hendur að annast hann. Yfirhjúkr- unarkonan er þaulreynd og æfð undir svona kringum- stæðum. Hún sér þegar, að hér verður ekkert að gert í svipinn og bíður því þögul og róleg um stund. En hjúkrunameminn við hlið hennar getur ekki með öllu leynt hinum óvæntu geðbrigðum sínum á þessari stund. Nanna Harðardóttir þekkir þegar hinn nýja sjúkling þeirra: — Frú Klara! líður í djúpri undrun af vörum henn- ar. — Hún hér! En franska yfirhjúkrunarkonan áttar sig ekkert á því, sem Nanna er að segja á íslenzku, og sinnir því engu. Nanna starir eins og í leiðslu á sjúklinginn, og aldrei hefur það komið henni betur en nú að fá að vera í friði með hugsanir sínar og leyndustu tilfinningar. — Svo að frú Klara er þá allt í einu orðin sjúklingur, þar sem hún er hjúkrunamemi, og henni er ætlað að vinna enn nokkra daga í þessari deild, áður en hún hverfur frá sjúkrahúsinu til náms á öðrum vettvangi, og nú kem- ur það í hennar hlut að hjúkra frúnni að einhverju leyti. Enginn hefur leitt slíkan harmleik yfir líf hennar sem þessi kona, enginn annar sýnt henni óvild á lífsleiðinni. En Nönnu hefur frá barnæsku verið kennt að setja öllu ofar boðskap hans, sem eitt sinn sagði: — Elskið óvini yðar, gerið þeim gott sem hata yður. Kærleikurinn er öllu æðri. — Og Nanna vinnur það heit í hjarta sínu nú að gera allt, sem í hennar valdi stendur til þess að hjálpa frú Klöru í veikindum hennar hér á þessum ókunna stað, án þess þó að gefa henni það nokkru sinni í skyn að fyrra bragði, hver hún sé í raun og veru. Og Nanna finnur heita og sterka unaðslega til- finningu fara um sál sína, og um leið verður allt bjart- ara umhverfis hana, en áður var á þessari sjúkrastofu. Hún er albúin að fórna í sönnum kærleika öllu sem hún orkar í þágu frúarinnar. Nú er enn þögn um stund, en svo sézt skyndilega fyrsta merki þess, að sjúklingurinn sé að vakna til með- vitundar að nýju, og brátt opnar frú Klara augun. En hún man ekkert, getur ekki áttað sig á neinu, og má sig lítið hreyfa. Hún sér tvær mannverur við rúmið sem Hún hvílir í, en skynjar ekkert hverjar þær séu. — Gefið þið mér að drekka, hvíslar hún veikum rómi. — Gefið mér að drekka. Frönsku yfirhjúkrunarkonunni er þegar ljóst, að hún skilur ekki mál þessarar konu, og nú er .hún í óvæntum vanda stödd, en Nanna er fljót að koma henni til hjálp- ar: Hún túlkar beiðni sjúklingsins á frönsku. Yfirhjúkrunarkonan er bæði undrandi og mjög þakk- lát fyrir þessa óvæntu kunnáttu nemans. Og síðan læt- ur hún Nönnu gefa sjúklingnum að drekka, sem ekki má hrevfa höfuðið frá koddanum. Þetta er eitt af því, sem neminn þarf æfingu í, og það tekst með ágætum. Frú Klara finnur undurmjúkt handtak lyfta ofurlítið svæflinum, sem höfuð hennar hvílir máttvana á, og ljúf- fengur svaladrykkur streymir að þyrstum vörum henn- ar. Hún teygar hann eins og hún hefur orku til og get- ur svalað þorsta sínum, en síðan gleymir hún veruleik- anum á ný. Yfirhjúkrunarkonan stendur þögul um stund og hugs- ar mál sitt. Hún hefur nú haft svo góð kynni af Nönnu og hæfileikum hennar í hjúkrunarnáminu,að hún treyst- ir henni langt framyfir marga aðra nema, sem miklu lengra eru komnir áleiðis á námsbrautinni, og þar sem svo heppilega vill til, að einmitt Nanna skilur tungu- mál þessarar konu, er ekkert ákjósanlegra en að Nanna hjúkri konunni að svo miklu leyti sem kostur er á. Og yfirhjúkrunarkonan tekur þegar fasta ákvörðun: Hún biður Nönnu að taka það sérstaklega í sinn hlut að annast um þennan sjúkling þeirra, en láta sig strax vita, þurfi einhvers þess með, sem Nönnu sé ofvaxið að leysa. 102 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.