Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 36

Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 36
V. Misheppnaður flótti. Afa grunaði hvað í bígerð var. Hann sótti farang- ur systkinanna niður í bát og bar hann inn í bað- stofu. Þetta var heilmikill farangur. Afi hvíslaði ein- hverju að ömmu, og amma fór og læsti hurðinni. Síðan athuguðu þau allt dót krakkanna og tóku þaðan hluti, sem þeim fannst krakkarnir ekkert hafa með að gera, svo sem sígarettur og varalit, heima- tilbúnar sprengjur og fleira af svipuðu tagi. Afi setti allt þetta í kassa, og amma faldi hann neðst í fata- kistunni sinni. Síðan gengu þau frá farangrinum þannig, að ekki var hægt að sjá, að neitt hefði verið við honum hreyft, enda var það vandalítið. Auðsjá- anlega höfðu systkinin sjálf sett niður í töskurnar, þar ægði öllu saman. Amma var alveg undrandi á öllum þessum fötum sem börnin komu með. Dýr- indis kjólar innan um skó og nærföt. „Sussu, sussu, það þarf að kenna þeim reglusemi eins og annað,“ andvarpaði amma. Það var ekki meira en svo, að hún væri búin að jafna sig eftir hræðsluna, þegar kisi litli kom inn með sprengjuna bundna í rófuna. Og nú lá aumingja kisi uppi í rúms- horni með sviðið skott, skelfing mæðulegur á svip- inn. Krakkarnir lágu lengi úti. Þegar þau voru hætt að skæla, fóru þau strax að rífast. En samt gátu þau orðið sammála um citr, og það var að strjúka þá strax um kvöldið. „Þegar gömlu hjúin eru sofnuð förurn við,“ sagði Viktoría. „Og kveikjum um Ieið í bæjarskriflinu,“ sagði Viktor. „Asni ertu alltaf! Viltu lcnda í tukthúsinu fyrir það?“ „Við Icggjumst bara út, ég er ckkert hræddur við það. Við förum hérna upp á fjallið, og þá sjáum við, hvað þau eru að gcra hérna niðri á kotunum og get- um fylgzt með leitinni að okkur,“ sagði Viktor. „Það verður svei mér gaman, þau verða dauð- hrædd um okkur, og svo kcmur presturinn og hund- skammar þau, því hann bað þau fyrir okkur,“ sagði Viktoría og hló. „En á hverju eigum við að lifa uppi á fjalli? Þú þarft nú svo mikið að éta.“ „Við rænum bara hérna á bæjunum í kring á nótt- unni, þegar sveitahyskið sefur,“ sagði Viktor. „En hundarnir, eru ekki hundar á öllum bæjum?“ „Bjáni ertu alltaf, heldurðu að hundarnir þurfi ekki að sofa á nóttunni líka?“ sagði Viktor rogginn. „Við heimtum að sofa í sama herbergi,“ sagði hann svo. „Nei takk, ég sef ekki í herbergi með strák, og það ekki þó það sért þú,“ svaraði Viktoría snúðugt. „Þú verður, annars getum við ekki strokið saman. Ég verð þá bara að fara einn.“ Viktoría hugsaði sig um. „Jæja þá, en það verður bara í nótt.“ „Auðvitað, við sofum í sínum hellinum hvort uppi á fjallinu.“ „Eru hellar þar?“ „Það eru hellar í öllum fjöllum,“ sagði Viktor ákveðinn. „En nú skulum við ekkert' gera af okkur til kvölds, en um leið og við förum, sprengi ég allar sprengjurnar mínar í einu. Það ætti að verða hvell- ur, maður!“ „En þá vakna allir.“ „Auðvitað, heldurðu að ég ætli að brenna þau inni. Nei, fyrst flytjum við dótið okkar upp á fjall, svo förum við heim og kveikjum í, svo sprengjum við sprengjurnar, og þá vakna allir og fara að reyna að slökkva eldinn. Já, nú datt mér nokkuð í hug, við sleppum burt á meðan, en svo halda allir að við höfum brunnið inni!“ „Nei, nú ertu of heimskur Vikki Pikki,“ sagði Viktoría. „Jæja, skítt með það, allavega komumst við und- an, meðan þau hamast við að slökkva eldinn.“ „En það er glæpur að kveikja í,“ sagði Viktoría, henni var um og ó. „Þú ert mesta heybrók eins og allar stelpur, það cr bezt að ég fari einn, þú getur verið eftir hjá karl- inum og kcrlingunni, stelpunni og hundinum,“ sagði Viktor með fyrirlitningu. „Nei, ég fer með,“ sagði systir hans ákveðin, „ég þori ckki að vera eftir hjá þessum hræðilega hundi.“ Allt var mcð friði og spekt við kvöldborðið. Viktor raðaði í sig eins og hann gat og hugsaði til þcss mcð ánægju, að þegar hann færi að ræna á bæj- unum, skyldi hann aldrei taka nema allra bezta mat- inn. Hanna sótti kýrnar með Sonju, og þegar búið var 108 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.