Heima er bezt - 01.04.1967, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.04.1967, Blaðsíða 2
1 vö aldarafmæli Löngum var það svo, að íslendingar sinntu lítt skoð- un náttúrunnar eða þeim fræðum, sem um hana fjalla. Öld eftir öld unnu íslenzkir fræðimenn afrek í bók- menntum og fornfræðivísindum, á sama tíma og telja mátti þá á fingrum annarrar handar, sem sinntu náttúru- fræðum eða öðrum raunvísindum. Og því síður vildi það til, að nokkur gerði þau fræði að höfuðlífsstarfi sínu. En á síðasta tug aldarinnar sem leið brá svo við, að þrír íslendingar luku háskólaprófi í náttúrufræði, og allir lögðu þeir stund á þau fræði með þeim ágætum, að þeir hlutu fyrir doktorsnafnbætur og urðu víðkunnir menn innan lands og utan. Svo einkennilega vill til, að tveir þeirra voru fæddir í sömu vikunni og eiga aldaraf- mæli í þessum mánuði, en það eru: Helgi Jónsson, grasa- fræðingur, fæddur 11. apríl, og Bjarni Sæmundsson, fiskifræðingur, fæddur 15. apríl. Þótt þeir væru jafn- aldrar og skólabræður og legðu báðir stund á náttúru- vísindi, varð starfsferill þeirra býsna ólíkur. Bjarni Sæmundsson varð kennari við Latínuskólann, síðar Menntaskólann í Reykjavík, þegar að loknu námi. Kenndi hann þar í nær þrjá tugi ára, unz hann var leystur frá störfum árið 1923 til þess að vinna eingöngu að vísinda- og ritstörfum, en þótt hann væri þá kominn á sextugsaldur hófst nú frjóasti starfstími ævi hans, og mátti svo heita, að ekkert lát yrði á þar til hann lézt 1940. Helgi Jónsson dvaldist í Kaupmannahöfn fyrstu árin eftir að prófi hans lauk. Naut hann þau ár nokkurra rannsóknarstyrkja bæði frá íslandi og Danmörku. Þau árin var hann athafnasamur vísindamaður, en í raun réttri má segja, að vísindastarfi hans sé lokið með dokt- orsriti hans 1910. Eftir það var ævi hans barátta fyrir lífinu sjálfu. íslenzka þjóðin hafði ekkert starf honum til handa annað en stundakennslu, aðallega í dönsku og reikningi. Loks varð hann fastur kennari í náttúrufræði 1921, en naut þess ekki lengi, því að hann lézt 1925. Að tilteknu marki varð kennsla meginstarf þessara manna, og auk hinnar beinu kennslu varð Bjarni Sæ- mundsson áhrifaríkur kennari með kennslubókum sín- um í náttúrufræði og landafræði, sem notaðar hafa ver- ið fram undir þennan tíma, og þótt gallar séu á þeim, hafa þó ekki aðrar betri verið gerðar á voru máli. En þeirra félaga verður ekki minnzt sem kennara heldur verða það vísindastörf þeirra, sem halda minningunni um þá á lofti. Og skal þeirra nú stuttlega getið. Bjarni Sæmundsson er höfundur og faðir íslenzkrar fiskifræði. Þegar hann hóf störf sín vissu menn sáralítið um lifnaðarhætti og atferli íslenzkra fiska. Fyrst í stað mætti starf Bjarna litlum skilningi, en með þrotlausri eljusemi og áhuga tókst honum að fá sjómannastétt landsins til skilnings á starfi sínu og síðan ráðamenn þjóðarinnar. Hér yrði of langt mál, að rekja starfsferil Bjarna Sæmundssonar. Um áratugi safnaði hann gögn- um með þeini hætti að fara í veiðiferðir með togurum eða öðrum veiðiskipum. Úr gögnum sínum vann hann í þeim fáu tómstundum, sem gáfust frá annasamri kennslu, og skrifaði um niðurstöður sínar í íslenzk og erlend rit. En jafnframt því vann hann sleitulaust að því að efla og annast Náttúrugripasafn íslands. Vinnudag- ur hans var langur, en launin þau ein að kalla, sem fólg- in eru í vinnugleðinni og því að sjá árangur verka sinna. Fiftir að hann hætti kennslu samdi hann hin þrjú miklu rit sín Fiskana, Fuglana og Spendýrin, sem öll eru braut- ryðjendaverk, enda þótt Fiskana beri þar hæst. Verða þeir ætíð taldir til hinna fremstu vísindarita, sem á ís- lenzku op- um íslenzk efni hafa verið skráð. Ö Vísindastörf Helga Jónssonar blöstu ekki eins vxð augum alþjóðar. Því fór einnig fjarri, að hann væri svo mikilvirkur rithöfundur sem Bjarni Sæmundsson, og flest helztu rit hans eru samin á erlendum málum og ís- lenzkum almenningi lítt kunn. Fyrstu ritgerðir hans fjölluðu um íslenzka gróðurfræði, voru þær allar á dönsku. Lýsti hann þar helztu gróðurlendum og flóru í ýmsum landshlutum. Margt kom þar nýtt fram, enda ekki mikið ritað um þau efni áður. Jafnframt samdi hann alþýðlega fræðibók um grasafræði. Höfuðverkefni hans og afrek voru rannsóknir hans á þörungagróðri við strendur landsins. Samdi hann doktorsrit sitt um það efni ásamt nokkrum ritgerðum öðrum. Voru rannsóknir hær svo vel af hendi leystar, að fróðir samtímamenn töldu að svo góð skil hefðu sæþörungagróðri ekki verið gerð annars staðar við Evrópustrendur. Þótt ekki séu nú liðnir þrír aldarfjórðungar fullir síð- an þessir tveir menn hófu störf sín, hefur furðumargt skipazt í þessum málum til hins betri vegar. íslenzka rík- ið á nú tvö hafrannsóknaskip í smíðum, allálitlegur hóp- ur vísindamanna hefur nú fiski- og hafrannsóknir að 114 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.