Heima er bezt - 01.04.1967, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.04.1967, Blaðsíða 24
Tungustapi. fagurlega messu, að enginn þóttist jafn fagurt heyrt hafa. Faðir hans bjó í Tungu til elli. Þegar hann var gamall orðinn tók hann sótt þunga. Lét hann þa senda eftir Sveini út til Helgafells, og bað hann koma á sinn fund. Sveinn brá við skjótt, en gat þess, að skeð gæti, að hann kæmi eigi lífs aftur. Er hann kom að 1 ungu, var svo dregið af föður hans, að hann mátti trauðlega mæla. Bað hann Svein son sinn, að syngja messu á paska- dag sjálfan, og skipaði að bera sig í kirkju. — Kvaðst hann þar vilja andast. — Sveinn var tregur til þessa, en gjörði það samt, og þó með því skilyrði, að enginn opnaði kirkjuna meðan á messu stæði, og sagði að þar á riði líf sitt. Þótti mönnum þetta kynlegt. Kirkjan stóð þá á hólbarði einu hátt uppi í túninu, austur frá bænum, og blasti stapinn við kirkjudyrunum. — Er nu bondi borinn í kirkju, eins og hann hafði fyrir mælt, en Sveinn skrýddist fyrir altari og hefur upp messusöng. Sögðu það allir, er við voru að þeir hefðu aldrei heyrt eins sætlega sungið, eða meistaralega tónað, og voru allir því nær höggdofa. En er klerkur að lyktum sneri sér fram fyrir altari, og hóf upp blessunarorðin yfir söfnuðinum, brast á í einni svipan stormbylur af vestri, og hrukku við það upp kirkjudyrnar. Varð mönnum hvert við og litu utan eftir kirkjunni, og blöstu þá við eins og opnar dyr á stapanum, og lagði þaðan út Ijóma af ótal ljósaröðum. En þegar mönnum aftur var litið á prest, var hann hniginn niður, og var þegar örendur. Varð mönnum mikið um þetta, en á sömu stundu hafði bónd- inn, faðir prests, hnigið örendur fram af bekk þeim, er hann lá á gagnvart altari. Logn var fyrir og eftir við- burð þennan, svo að öllum var augljóst að með storm- byl þann, er frá stapanum kom, var eigi sjálfrátt. — Nú þegar opinn var stapinn og hurð kirkjunnar hrökk upp, blöstu dyrnar hvorar á móti annari, svo að álfabiskup- inn og Sveinn horfðust í augu, er þeir tónuðu bless- unarorðin, því að dyr á kirkjum álfa snúa gagnstætt dyrum a kirkjum mennskra manna. — Áttu menn hér- aðsfund um mál þetta, og var það afráðið, að flytja skyldi kirkjuna niður af hólbarðinu, nær bænum, í kvos hja Iæk nokkrum. — Aldrei síðan hefur presti verið unnt að sjá frá altari gegnum kirkjudyr vestur í stap- ann, enda hafa slík býsn eigi orðið síðan kirkjan var flutt. Þessi þáttur um Sælingsdalslaug og Tungustapa verð- ur ekki lengri að sinni, en freistandi væri þó að ræða nánar söguna um Tungustapa. En þótt sögur unr huldu- fólk og álfabyggðir séu fágætar á þessari öld og síðustu áratugum, þá er ætíð eitthvað heillandi við þessar sög- ur. Alargt trúverðugt, fullorðið fólk, trúir því þó enn, að ósýnilegar verur búi í fögrum hæðum, hólum, stöp- um og klettabeltum. Tungustapi stendur einstæður í hlíðarslakka í miðjum dal. Annar stapi, ekki ólíkur Tungustapa, er niður hjá Ásgarði í Dölum, rétt niður undir sjó. Sá stapi er öllu meiri. Hann heitir Ásgarðs- stapi. Um Ásgarðsstapa er líka til huldufólkssaga. í þeirri sögu er sagt frá því, að huldumaður úr Ásgarðsstapa vitjar konunnar í Ásgarði og biður hana að liðsinna konu sinni, sem sé þungt haldin og geti ekki fætt barn sitt. Gat húsfreyjan í Ásgarði bjargað lífi huldukonunn- ar, og þáði að launum veglegar gjafir. Gekk svo í mörg ár að konan í Ásgarði hvarf að heiman eitt til hálft dæg- ur á ári hverju og var hún þá að sitja yfir konu huldu- mannsins í stapanum. Er 10 ár voru liðin frá því að hún fór fyrst til huldukonunnar í stapanum, hvarf hún að heiman um miðja nótt. En um morguninn, er fólk reis úr rekkju, sást húsfreyja koma gangandi neðan fló- ann frá stapanum. Var hún mjög þreytuleg og útgrátin. Sagði hún þá upp alla söguna um ferðir sínar í stapann, en skýrði jafnframt frá því, að nú hefði kona huldu- mannsins látist, og hefði sér ekki tekizt að bjarga lífi hennar í þetta sinn. Stefán Jónsson. BRÉFASKIPTI Anna S. Sigmundsdóttir, Vindheimum, Lýtingsstaðahr., Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 13—15 ára. Svanhildur Pétursdóttir, Hofi, Lýtingsstaðahr., Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 11—13 ára. Ragnheiður G. Baldursdóttir, Ytra-Vatni, Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 11—13 ára. Árnj Marinósdóttir, Álfgeirsvöllum, Lýtingsstaðahr., Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 11—13 ára. 136 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.