Heima er bezt - 01.05.1968, Page 33

Heima er bezt - 01.05.1968, Page 33
„Með lummum og kleinum,“ sagði Manga og tók að leggja á borðið. „Umm, þeir gömlu góðu dagar, þegar ekki var hægt að hugsa sér að fá meira sælgæti en heitar lummur og sætt kaffi, og þó er það nærri því enn meiri munaður í dag, þvílíkt líf, þvílík jörð sem maður lifir á,“ sagði læknirinn og strauk sér um ennið. Hann var þreyttur, hafði vakað alla nóttina áður, nú langaði hann mest til að fá sér kaffisopa og leggja sig síðan hjá gömlu góðu fóstrunni sinni. Það var alltaf svo notalegur ylur sem fylgdi henni. „Þú ert að verða gráhærður,“ sagði Manga, þegar hún hellti kaffinu í bollann hans. „Ójá, ég gerist gamall, Manga mín, þótt þér finn- ist ég alltaf vera sami fimm ára strákpjakkur. Þetta hérað er alltof stórt fyrir einn mann, ég má sjaldan um frjálst höfuð strjúka.“ „Ég skammast mín fyrir að narra þig alla þessa leið, en þú varst eina vonin mín í þessu máli!“ „Hafðu þökk fyrir traustið, mig munar ekki um eina ferðina til né frá,“ sagði læknirinn og strauk um skorpið handarbak gömlu konunnar. Jónatan flutti lækninn aftur inn að Hauganesi og hlaut sína þóknun fyrir hjá Möngu. Ekki þorði hann þó inn að sækja peningana, heldur lét hana rétta sér þá út um gluggann í ausu með löngu skafti. Mál- fríður úðaði lýsólvatni á krónurnar og hendur bróð- ur síns. Hún ætlaði að sjá um að veikin bærist ekki út sökum hirðuleysis. Viku seinna fékk Afanga bréf. Hún geymdi það lengi í barmi sér, áður en hún las það. Loks sá hún að þetta dugði ekki, skar upp umslagið með hníf og tók samanbrotna örkina varlega innan úr því: „Allt í lagi, kotið keypt. Kem um tvöleytið. Kveðja.“ Og svo var ólæsilegt hrafnaspark undir, sem átti að vera nafn læknisins. Manga ferðbjó sig í rólegheitum, nú var tening- unum kastað og ekki aftur snúið. Bara það yrði nú logn og gott í sjóinn. Allir á Hamri sváfu vært, þegar læknistrillan lagð- ist upp að flatri klöpp rétt neðan við bæinn, en á Kálfskinni var maður sem vakti og gaf bátnum nán- ar gætur. Þctta var Jónatan. Hann hafði verið að leita að kindum og ekki komið heim fyrr en þetta. Völu hlaut að hafa versnað, en hver hafði þá ver- ið sendur cftir lækninum? Það þætti honum fróðlegt að vita. Því sendi Málfríður ekki til hans. Jónatan glotti og vætti varirnar með tungunni. — Fjandi yrði nú gaman að hafa svona fallega hnátu milli handanna í rúminu, nú styttist óðum í þeim tíma, sem hún átti að vera í sóttkví, nema henni hefði þá versnað. Jónatan stóðst ekki mátið, fór inn og þvoði af sér mesta skítinn og fór í hreinan jakka. Hann ætlaði að skreppa yfrum og vita hvað um væri að vera. Hefði hann grunað hvað væri á seyði, myndi hann hafa greikkað sporið, en ekki dólað svona í hægðum sín- um. Leiti bar á milli, svo hann sá ekki um stund heim að Hamri. En þar voru hendur látnar standa fram úr ermum, og áður en Jónatan kom í ljósmál, var trillan lögð frá landi með Möngu, Völu, köttinn og allt þeirra hafurtask innanborðs, jafnvel eldavélin hennar Möngu var með. Jónatan sá trilluna hverfa fyrir nesið, en varð engrar mannaferðar var innanbæjar. Hann hringsól- aði þarna á hlaðinu um stund, tók í hurðarhúninn, en hurðin var læst, og eins hurðin inn til Möngu. Það leit út fyrir, að allir væru í fasta svefni. Jónatan var á báðum áttum, hvort hann ætti að gera vart við sig eða ekki. Loks ákvað hann að fara heim, en koma heldur aftur snemma um morguninn. Hann hitti illa á morguninn eftir. Málfríður var að kveikja upp í eldavélinni, sem reykti í hvítalogn- inu, eins og hún var vön, hún þurfti golu til að geta vaknað. Kýrnar voru ómjólkaðar, krakkarnir slóg- ust og grenjuðu, og Manga svaraði ekki, þó barið væri á dyrnar hjá henni. Það kom sér vel fyrir hana þessi helvítis pest í stelpunni, hún hefur þó alltaf gert morgunverkin, áður en ég kom fram, en nú hefur hún ekki sézt. Kannski hún sé nú lögst líka, þusaði Málfríður. „Hvað er þér á höndum?“ spurði hún óvanalega höstug við bróður sinn. „Kom læknirinn hér í nótt?“ spurði Jónatan. „Læknirinn? til hvers ætti hann svo sem að koma, ég veit ekki annað en stelpan sé komin á fætur.“ „Það er undarlegt, ég þori að sverja, að það var læknistrillan, sem lagðist hér upp að Gráklöpp í nótt.“ „Því í fjandanum komstu ekki yfrum að vita hvaða erindi hann hefði, hafir þú á annað borð verið á löppum.“ Illur grunur læddist í brjóst Málfríðar. Hún fór inn að gangdyrum Alöngu og barði á hurðina, eng- inn svaraði. Heima er bezt 177

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.