Heima er bezt - 01.11.1971, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.11.1971, Blaðsíða 2
Bókmenntafélagið °g landsmenn Skímir, hið gamla og virðulega tímarit Bókmennta- félagsins, er nýkominn út í 145. sinn. Ekki ætla ég að ræða hér efni hans en þó grunar mig, að hann sé nú fjarri því að vera slíkur aufúsugestur íslenzkra heim- ila og hann var á æskuárum mínum. Hann flytur nú sem oft áður félagatal Bókmenntafélagsins, og af göml- um vana varð mér að blaða í því. Hið fyrsta, sem vakti þar athygli mína var hve hlutur landsmanna utan Reykjavíkur er orðinn rýr, að Reykjavíkurfélagarnir taka þar upp hvorki meira né minna en 19 blaðsíður, en landið allt þar fyrir utan, aðeins 8 blaðsíður. Það skal tekið fram, að með Reykjavík er talið allt svæðið innan marka Gullbringu- og Kjósarsýslu, og nokkrar línur vantar á fullt síðutal í báðum tilfellunum, en slíkt breytir ekki hlutföllum. Fólksfjöldi á þessum svæðum er sem næst 120 þús. á Reykjavíkursvæðinu en 80 þús. í landinu fyrir utan það, nokkrum hundruðum meira í báðum tilfellum. Eftir höfðatölureglu er því þátttaka landsmanna utan Reykjavíkur miklu minni en vera bæri, eða 8 á móti 19, þar sem fólkstalan er 8 á móti 12. Þegar ég hafði rekizt á þetta, datt mér í hug að líta til liðinna daga og hvarf 50 ár aftur í tímann eða til ársins 1921, og athugaði hvernig þessum hlutum hefði þá verið farið. í félagatali Skírnis 1921 tekur félagatal Reykjavíkur- svæðisins 5 blaðsíður, en landsins þar fyrir utan, 18 síður, tæpar. Þess ber þó að gæta, að greinaskil eru engin í Reykjavíkurtalinu en allmikil í hinu, svo að þar munu vera heldur færri menn á síðu, en sama gildir raunar félagatalið 1971. Fólksfjöldinn 1921 er sem næst 25 þús. á Reykjavíkursvæðinu en um 70 þúsund þar fyrir utan. Svo mjög hefir fólkstalan aukizt í Reykjavík í hag, en það skýrir þó ekki þann mikla mun, sem orðið hefir í þátttöku landsmanna í Bókmenntafélaginu. — Láta mun nærri, að meðlimafjöldinn utan Reykjavíkur hafi 1921 verið um 960, en er 1971 300, eða 660 manns færra, enda þótt fólkinu hafi fjölgað um 10 þúsund. Þá varð mér fyrir að athuga hlutföll þessara tveggja ára í nokkrum héröðum, sem löngum hafa talið margt Bókmenntafélagsmanna. Þau eru Akureyrarsvæðið, innan hinna fornu marlta Eyjafjarðarsýslu, Þingeyjar- sýslur, Skagafjarðarsýsla, Múlasýslur og Árnessýsla. — Kaupstaðir innan þessara sýslumarka eru alltaf taldir með. Tölurnar verða þessar: 1921 1971 Akureyrarsvæðið 100 einst. 8 bókas. 54 einst. 8 bókas. Þingeyjarsýslur 83 - 8 - 12 - 8 - Skagaf j arðarsýsla 46 - 9 - 19 - 5 - Norður-Múlasýsla 75 - 4 - 9 - 3 - Suður-Múlasýsla 102 - 2 - 15 - 4 - Arnessýsla 32 - 5 - 26 - 5 - í öllum þessum héröðum hefir fólki fjölgað eitthvað, sumsstaðar mjög mikið, svo sem á Akureyrarsvæðinu og í Árnessýslu, en alls staðar fækkar Bókmenntafélags- mönnum. Ég hefi ekki gert upp skiptingu milli búsetu í sveitum og kaupstöðum eða kauptúnum, né eftir stétt- um, þó virðist sem af 12 Þingeyingum í Bókmenntafé- laginu séu aðeins tveir búsettir á Húsavík, en hinir 10 skiptast svo: 4 prestar, 1 kennari, 1 vélstjóri, 3 bændur og 1 kona. Af hinum 54 Eyfirðingum Bók- menntafélagsins eru 12 búsettir í sveitum. Ef vér loks athugum félagatöluna á Reykjavíkur- svæðinu 1921 og 1971, er hún 240 og 874, þar sem töl- urnar utan Reykjavíkur eru sem næst 960 og 300. Ekki ætla ég mér þá dul að draga nokkrar almennar ályktanir af þessum tölum. Þó er auðsætt, að Bók- menntafélagið nær til miklu færra fólks úti um land nú en það gerði áður, bæði hlutfallslega og raunverulega. Vart væri þó að álykta af því, að lestraráhugi og bók- fýsi fólksins úti um landið hafi minnkað, þar kemur margt fleira til sögu. Bókasmekkur fólks er ólíkur því, sem hann var fyrir 50 árum, en þó hygg ég hann hefði átt að breytast meira á höfuðborgarsvæðinu en utan þess. Bókmenntafélagið hefir hinsvegar verið sjálfu sér furðulíkt öll þessi ár, nema ef nú eru að gerast einhver straumhvörf í því efni, en þau hafa ekki sagt til sín enn í félagatölunni. Og víst er, að bækur þess hafa ekki það aðdráttarafl, sem þær höfðu 1920, þegar enn voru að koma út íslands lýsing Thoroddsens og íslendinga saga Boga Melsted, sem menn sóttust eftir. Ef tölur þær, sem nefndar voru, væru spegilmynd af bókfýsi Islendinga, fyrr og nú, væru þær satt að segja ískyggi- 382 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.