Heima er bezt - 01.11.1971, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.11.1971, Blaðsíða 16
Rauðþörungurinn (Lemanea). Vatnaskófin (Verrucaria). Vatnamosinn (Rhynchostegium). þræði eða loðnu á ýmiss konar undir- lagi og eru sjaldnast mikið áberandi. x41geng myglutegund er Saprolegnia, en hún myndar hvíta loðnu utan á dauðum skordýrum, sem fljóta á vatninu. Sveppir lifa flestir á lífrænum efnum, eins og dýrin, og sækja því oft í vötn, sem eru menguð með lífrænum úrgangi. í sumum menguðum ám í Evrópu, mynda þeir samfellt lag á steinum og öðru undir- lagi í botninum og koma í stað þörung- anna, sem áður uxu þar. Mjög lítið er vitað um vatnasveppi hér á landi. FLÉTTUR EÐA SKÓFIR Skófirnar (Lichenes) eru samsettar af sveppum og þörungum, og hafa að því leyti sérstöðu meðal lífvera jarðarinnar. Þær eru algengar á grjóti, trjám og ófrjó- um jarðvegi. Fáeinar tegundir skófa lifa í fersku vami og í fjörum. Eru það einkum tegundir af ættkvíslinni Verrucaria, sem mynda svart hrúður á steinum og klettum í botni vatna og vatnsfalla. í lindalækjum og ám eru þær einkum áberandi, og eiga sinn þátt í því að lita botn þessara vatna svartan. MOSAR Ymsar mosategundir (Musci) eru algengar í fersku vatni. Stundum er mosagróðurinn svo mikill, að steinar og klettar í bom- inum eru þaktir mosa. Á það einkum við rennandi vam, helzt lindalæki og lindaár, °g einnig blandaðar ár. Jafnvel í jökul- vötnum ma finna mosa á steinum við bakkana. Stundum þekur mosinn kletta í grennd við fossa og vex jafnvel í sjálfum fossinum. Er hann oft furðu þrautseigur á slíkum stöðum, að standa af sér mislyndi vatnanna. Stórvaxnasti mosinn í íslenzkum vöm- um og einn sá algengasti er ármosinn, sem Björn í Sauðlauksdal kallaði árgrjótsmosa (Fontinalis antipyretica). Hann getur myndað allt að meterslangar tægjur, og einkum algengur í fremur lygnum ám og lækjum, en finnst einnig í nokkrum straum- hörðum am, t. d. 1 Fnjóská. Þar er hann víða mest áberandi gróðurinn. í Laxá er allmikið af ármosa við bakkana, og á linda- svæðunum við austurströnd Mývams. í Laxá er mosinn venjulega þakinn grænþör- ungum (Cladophora o. fl.), og myndar hann ásamt þeim, hinar alkunnu slýtægjur í ánni. I straumhörðum ám er tegundin Hygro- hypnum ochraceum algengust, og myndar þar oft langa þræði (var. filiforme). Önnur algeng tegund er Rhynchostegium rusci- forme (lækjamosi), sem er tíðust í lækjum. Einnig eru tegundir af ættkvíslinni Hygro- hypnum nokkuð tíðar. Framhald.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.