Heima er bezt - 01.11.1971, Page 15

Heima er bezt - 01.11.1971, Page 15
astir allra þörunga, sem vaxa í fersku vatni. Stönglar þeirra geta orðið allt að 15 sm á lengd og nokkrir mm að þver- máli. Að vaxtarlagi minna þeir helzt á mara eða fíngerða eltingu, vegna greina- kransa, sem sitja með vissu millibili á stönglunum, en af þeim er nafn flokksins dregið. Þrátt fyrir stærðina, eru leggir krans- þörunganna oft aðeins ein frumubreidd, og ein frumulengd milli lcransanna. Eru frumur þeirra því með þeim stærstu sem þekkjast. Oft sezt kalk eða kísill í frumu- veggina, og verða jurtimar þá stífar og jafnframt brothættar. Vegna þess hve kransþörungarnir eru stórir, er ekki óalgengt, að menn taki þá fyrir háplöntur, og safni þeim sem slík- um. Hefur það hent ýmsa góða grasa- fræðinga einhverntíman á lífsleiðinni. Oft eru greinar kransþörunganna alsett- ar litlum, rauðgulum kúlum, sem minna á blóm eða aldin, og gegna raunar sams konar hlutverki. Kransþörungarnir vaxa venjulega í breiðum á botni tjarna eða vatna, oftast á töluverðu dýpi, eða utan við það belti, sem blómjurtir vaxa á, þar sem ölduslátt- ar gætir ekki. Þekja þeir oft botninn á stórum svæðum, einkum ef það er mjúkur leirbotn. Helzm ættkvíslir kransþörunganna eru Chara og Nitella, og er sú síðamefnda mun algengari hérlendis. Um tegundir er lítið vitað. Ýmsar heimildir geta um kransþörunga- breiður í Mývatni, en sumarið 1970 varð lítið vart við þá. Líklegt er, að þeir séu víða með austurlandinu í Ytriflóanum. SKORUÞÖRUN GAR Skoruþörungar (Dinoflagellata) mætti eins kalla hornþörunga, því þeir hafa oftast mjög sérkennileg horn eða brodda, sem eru mismunandi hjá hinum ýmsu teg- undum. Þörungar þessir eru einfmmung- ar og hafa utan um sig hýði úr pektínefni. Tvær skorur liggja í kross utan á hýðinu, en í þeim liggja bifþræðir, sem bylgjast í sífellu og hreyfa þannig þömnginn úr stað. Þörungar af þessu tagi em algengir í flestum vötnum í svifinu, og er tegund- in Ceratium hirudinella einna tíðust. RAUÐÞÖRUNGAR Rauðþörungar (Rhodophyta) lifa flestir í sjó eða fjörum, og eru sölin alkunnugt dæmi um þann flokk. Rauðþörungar era oftast rauðlitaðir, eins og nafnið bendir til, en geta þó verið brúnir eða grænir. Ættkvíslin Lemanea (straumtogi) er al- geng í lækjum og ám, einnig hér á landi, Skrautþörungar, ýmsar tegundir. (Úr T. Flensburg 1967). a. m. k. í sumum landshlutum. Hún mynd- ar 1—2 sm langa, og allt að 1 mm digra, smáhnúskótta, gulgræna eða brúnleita þræði, sem vaxa á klettum og steinum í ánum, þar sem straumhart er, einnig þar sem slettist frá fossum og flúðum. I Laxá hef ég séð þennan þörung hjá Núpafossi, en sjálfsagt er hann miklu víðar í ánni. Hann er og algengur í flestum straum- hörðum smáám í Eyjafirði og á Fljóts- dalshéraði, og síðsumars er hann oft mest áberandi gróðurinn í ánum. SVEPPIR Sveppir (Fungi) eru aðallega þurrlendis- verur og vaxa einkum í jarðvegi, á fúnu tré, jurtum, taði o. s. frv. All margar sveppategundir lifa þó í fersku vatni og í sjó, en lítið er enn vitað um tegundir þeirra. Þeir mynda fíngerða Myglusveppurinn, Saprolegnia, á dauðri lirfu. (Úr Freshwater Microscopy).

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.