Heima er bezt - 01.11.1971, Side 21

Heima er bezt - 01.11.1971, Side 21
Borg. kot og Teistakot. í bæjarnafnaþulu eftir Samúel Egilsson á Miðjanesi er getið um Borgarkot, er það örnefni nú týnt eins og flestar sagnir um íbúana, sem eytt hafa ævidögum sínum í fyrrnefndum kotum. Yzt á Borgarlandi er Bjartmarssteinn. í fornum sögn- um heitir steinninn Pjattarsteinn, en það nafn mun hafa breytzt í Bjartmarsstein, seint á 18. öld eða snemma á 19. öld. — Sumir segja, að nafnbreytingin sé rakin til sjóslyss, er varð út af Berufirði á 17. öld(?) og fyrr á minnzt. Aðrir telja, hana rakta til manns, er Bjarni (eða Bjartmar) hét Oddsson og var sagður eiga heima á Tindum í Geiradal. Bjarni þessi var all brattgengur og ldeif hann Bjartmarsstein og fann þar arnarhreiður. Bjartmarssteinn var talinn bústaður álfa og kaup- höndlunarstaður fyrr á tímum. Maður hét Pétur og var Pétursson, hann bjó á Hrís- hóh. Það var eitt sinn að haustlagi, að hann kom ltind- um út í Miðhúsaeyjar, lét hann þær í Hrísey því þar taldi hann beitina bezta. Vitjaði hann um þær á aðfangadag jóla. Veður var vont og versnaði enn meir á meðan hann var að ná saman kindum, treysti hann sér ekki í land um kvöldið. Var hann, ásamt mönnum sínum, um jólanóttina í Hrísey. Veitti hann því eftirtekt, að alla nóttina logaði Ijós í Bjartmarssteini. Þótti honum það óræk sönnun, að þar væri álfabyggð. Einnig sáu sumir þeirra, er leið áttu sjóveg fram hjá Bjartmarssteini, móta fyrir glugga í steininum. Sat þar við borð gráskeggjaður öldungur og páraði eitthvað í stóra bók. Oft sáu menn skip koma þöndum seglum utan Hríseyjardjúp og hverfa í steininn. Sömuleiðis sáust oft lestir á ferð hlaðnar varningi á leið í kaupstaðinn í Bjartmarssteini. Fleira mætti telja, en hér verður látið staðar numið að sinni. Árið 1768 skeði sá merkisatburður í Borg, að þar fæddust þríburar. Foreldrar þeirra voru þau Gunn- laugur Bjarnason bóndi í Borg og kona hans Guðrún Halldórsdóttir, dó hún nokkru síðar. Börnin voru skírð 15. desember 1768 og hlutu nöfnin Magnús, Valgerður og Guðrún. 9. apríl 1873 fórst bátur í Hrúteyjarröst. Á bátnum voru þrír menn: Kristmundur Guðmundsson bóndi Ing- unnarstöðum í Geiradal, Bjarni Steinsson vinnumaður í Garpsdal og Hákon Hákonarson bóndi í Borg í Reyk- hólasveit, 3 3ja ára að aldri. Þeir voru á heimleið frá Stykkishólmi, nánari atvik eru ókunn. Fleira er ei í tíðindum frá Borg. INGI GUNNLAUGSSON: Spurningar til þjóðarinnar Er líf vort á för í feigðarvör og frelsið að glatast? Er þjóðin of ör? Eru fomar dyggðir við feigðarskör? Ferst þá öll þjóðin á helreiðarför? Verður ei lengur rönd við reist ramma galdra hins nýja tíma? Eru þá öll úr læðingi leyst ljósfælnu öflin? — Fallin gríma? Er nú fallin vor forna sveitamenning í félagsheimila ys og þys? Hvar er nú kristninar forna kenning? Að kirkjunni sækir nú margra gys. Drekkur nú þjóðin dauðann úr skel eða „dauðann svarta“ verri en hel? Fyrri kostinn ég fremur vel, en fjandanum lúta — þeim syndasel. Ingi mun hafa ort þessar vísur eftir að hafa verið sjón- arvottur að mjög ömurlegri skemmtisamkomu. Tíu dagar úr lífi mínu . . . Framhald af bls. 399 -----—----------------------- markaðsferð í Möðrudal og reið heim til Vopna- fjarðar á ótrúlega skömmum tíma. Morguninn eftir lá sá brúni dauður. Nú fór ég frá Ytri-Hlíð tíunda dag ferðarinnar, og var það innansveitar ferðalag, þvert yfir Vesturárdal- inn um Hraunalínuháls og Hofsá, austur á Fjallasíðuna, heim í Egilsstaði. Á úthðnum degi sást frá Egilsstöðum hvar maður kom neðan Egilsstaðanesið, ríðandi á skjóttum og teymdi brúnan. Það var strákurinn að koma heim, bú- fræðingur sögðu sumir í hálfgerðu háði. Og gott var að vera kominn heim, því heima er bezt. Heima er bezt 401

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.