Heima er bezt - 01.07.1973, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.07.1973, Blaðsíða 11
ég oft haft mjög mikið fyrir þeim, og mér hefur alltaf þótt það lélegt, sem ég orti í flýti til skemmtunar, ég tala ekki um það sem kastað var fram við skál, mér hef- ur fundizt það ómögulegt eftir á: Alkóhóls við áningar aukast taugaspennur. Það verða miklar þjáningar, þegar af mér rennur. Mín regla og reynsla er sú, að stytta bera kvseði um helming, þá batna þau um helming. En þessi regla er kannske hæpin um einstakar vísur! Ég hef alltaf haft gaman af að lifa, og það hafa sumir sagt mér, og mér hefur sjálfum fundizt, að ég væri heimur út af fyrir mig. Ég hef alltaf trúað á það, þó að ég sé trúlaus kannske, að maður nyti verka sinna, ef þau væru unnin af samvizkusemi og af góðum huga, vegna þess, að ef maður gerir rétt, þá er borgunin margföld, af því að manni líður andlega vel. Og mér finnst svo margt í heiminum ekkert sorglegt, sem öðrum þykir svo þungbært og mikil sorg. Mér finnst ekkert sorglegt, t. d. við dauðann. Þó að hann geti stundum verið erfið- ur og illbær, þá er það nú svona, að hann er lífinu alveg nauðsynlegur eins og segir í þessari vísu: Bjarni Jónsson. Ólöf Guðmundsdóttir, eiginkona Bjarna. Þú mátt ekki drepa dauðann, Drottins lögmál bannar það. Hann er eins og eggjarauðan ómissandi á sínum stað. Mér finnst, að það sé ekkert góðverk, sem þú gerir, ef þú ætlast til að fá borgun fyrir það uppi í himnaríki. Það skyggir algerlega á það, að það sé góðverk, og kannske eru góðverk aldrei til, því að þau borgast alltaf einhvern veginn, a. m. k. andlega. Þessar voðalegu sorg- ir og þjáningar, sem menn eru að gera sér rellu útaf, t. d. í ástamálum, það er af því, að menn eru svo van- þroskaðir, og ást er ekkert nema eigingirni, — eða þá fjárhagsáhyggjur eða pólitískar áhyggjur, allt er þetta langt fyrir neðan það, að ég hafi látið mér detta í hug að hafa áhyggjur útaf því síðan ég var almennilega full- orðinn. Ekkert nema þjáningar af heilsuleysi, hvort heldur er andlega eða líkamlega, er illt. Allt annað er gott. Þó að ég sé orðinn gamall og ónýtur að vinna, þá hef ég reglulega gaman af að lifa, þó ég hósti og sé ekki alltaf hraustur, og þegar ég nenni ekki að sitja, þá ligg ég, og Þó að andann ellin slævi, ennþá hef ég dágóð spil. Lífið vakir alla ævi yfir því að vera til. Heima er bezt 227

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.