Heima er bezt - 01.04.1975, Side 5

Heima er bezt - 01.04.1975, Side 5
Prófastshjnnin, Gertrud og Friðrik A. Friðriksson. af bar. Annar var Jóhann Jónsson, Ólafsvíkingur að uppruna, sá er síðar varð skáld og orti flestum íslensk- um skáldunt færri ljóð, en þeim mun fleygari og fegurri. Þriðji var Alagnús Guðmundsson, kominn úr Hvalfirði til þess að læra undir skóla hjá móðurbróður sínum, séra Guðmundi Einarssyni, presti í Nesþingum. Sá fjórði í hópnum var svo Friðrik sjálfur, farfugl að sunnan. Hann nam undir skóla hjá séra Guðmundi. Við þessa jafnaldra sína bast Friðrik slíkurn vináttu- böndum, að þau rofnuðu aldrei, hversu ólík sem lífskjör þeirra urðu, lífsviðhorf og trúarskoðanir. Vinirnir spruttu sem af einni rót. Urðu að eins konar „ferlaufa- smára“, eins og séra Friðrik orðar það. Öll hugsuðu þessi ungmenni til iangskólanáms. Krist- inn Guðbrandsson féll á gagnfræðaprófi. Það skóp hon- um þau örlög að fara til Vesturheims. Þar varð hann þekktur raffræðingur og síðan forstj. mikils raforkuvers í Kaliforníu. Jóhann Jónsson heltist úr lestinni þar sem hann veiktist áður en til náms kom. Hann komst þó til nokkurrar heilsu á ný, lauk stúdentsprófi og sigldi til framhaldsnáms í Þýskalandi, kom aldrei til íslands aftur, en andaðist þar úti langt um aldur fram. Magnús og Friðrik urðu samferða í gegn um skóla og báðir prestar, þótt jafnan hafi verið langt á milli þeirra. Séra Magnús Guðmundsson var prestur í Ólafsvík um langan aldur. Hann cr hinn merkasti maður. Mjög voru þeir ólíkir um margt, séra Friðrik og hann, þótt vinátta þeirra hafi aldrei rofnað. Ég hefi orðið svo langorður um þetta efni til þess að sýna hve hringur vináttunnar getur orðið stór án þess að bresta, sé efnið í honum nægilega gott. Einnig til að sýna bráðþroska hæfileika séra Friðriks til þess að tengj- ast vináttu við menn hinna f jarlægustu skauta. Hin ólík- ustu mannanna börn urðu snemma systkini hans og hafa ætíð verið. Stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík lauk séra Friðrik vorið 1916 og guðfræðiprófi frá Háskóla Islands 1921. Þá um haustið vígðist hann sem prestur frjálslyndu íslcnsku safnaðanna í Vatnabyggðum Sask. í Kanada. Þar var hann til 1930 er hann fluttist til Banda- ríkjanna og gerðist prestur frjálslynda íslenska safnað- arins í Blain, Wash. Þaðan kom hann til Húsavíkur- prestakalls sumarið 1933. Fyrir vestan haf komst séra Friðrik í náin kynni við þann trúarágreining og deilur sem íslenskir landnemar og afkomcndur þeirra eru frægir fyrir. En hann komst einnig í kynni við trúaráhuga og félagsáhuga, sem tengd- ur var kirkjulífi, miklum mun meiri en við hér heima þekkjum og jafnvel skiljum. Ég spurði eitt sinn kanadískan frænda minn hvernig á því hefði staðið, að eitt hið allra fyrsta sem landnem- llcima er bezt 117

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.