Heima er bezt - 01.04.1975, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.04.1975, Blaðsíða 8
Prófastshjónin, börn, tengdabörn og barnabörn. A myndina vantar þrjú yngstu barnabörnin. ekki verið ólíklegt að Húsvíkingar ættu hann allan. Svo var þó ekki. Hann varð brátt sameign fólksins í hinurn dreifðu byggðum héraðsins og Húsvíkinga. Þeir undu slíkri sameign vei og þökk sé þeim fyrir það. Þetta kom ekki aðeins til af því að séra Friðrik var prófastur alls héraðsins og hversu störf hans önnur náðu til þess. Orsökin var fyrst og fremst sú, hvílíkur maður hann er. Það halda honum engin bönd. Hann finnur sér systur og bræður svo vítt sem hugur hans nær. Hann á sér engan óvin. Allir sem þekkja hann vel, eru vinir hans. Sú mynd sem flestir munu eiga af honum, er mynd hins glaða og reifa manns, sem er önnum kafinn hverja stund. Hann mundi af mörgum vera nefndur „hrókur aiis fagnaðar“. Og það er hann. En vinir hans sem þekkja hann best vita, að þótt bylgjur lífsgleði og fagn- aðar Iyfti sál hans hátt, hverfur hún líka niður í öldudal mikilla þjáninga. Hjarta hans grætur yfir hörmungum og sjáifsskaparvíti hrjáðra mannsins barna. Oft hefur honum fundist árangur vilja síns og verka hafa verið sáralítill. Vonbrigði hafa valdið honum beiskju. Hvernig mátti annað vera um mann svo örlátan á góðvild og kærleika til allra. Svo trúaðan á allt það sem er af hinu góða og með sterkan vilja til þess að rækta rósagarð lífsins. Mér var eitt sinn sögð saga af þekktum skólastjóra dönskum. Er hann var orðinn roskinn maður og hættur störfum naut hann heimsóknar fyrrverandi nemanda síns. Sá hinn sami vitnaði til kennslustundar fyrir mörg- um árum og einhvers þess er skólastjórinn þá hafði sagt og nemandanum orðið leiðarstjarna um langa ævi. Hin- um aldna skólastjóra varð þá að orði: Svona er það, maður veit aldrei hvenær maður sáir frækorni sem ávöxt ber. Hvorki séra Friðrik né nokkur annar, veit tölu þeirra fræja er hann hefur sáð og ávöxt hafa borið. Megi það verða honum hugsvölun rosknum manni. Og þótt myrk- ur vonbrigða og beiskju hafi á stundum sest að sál hans, hefur hin blessaða sól lífsins, kærleikans og gleðinnar lýst upp myrkrið og gert honum gott að lifa á ný. Þegar séra Friðrik hætti prestsþjónustu á Húsavík, mun hann ekki hafa ætlað sér að taka þann þráð upp að nýju. Það fór þó á annan veg. Skömmu síðar var hann settur prestur í Hálsprestakalli í S.-Þingeyjarsýslu. Það fór sem oft fyrr: þar sem þörf var þjónustu komu prestshjónin frá Vesturheimi og Húsavík til hjálpar. Prestakallið var fámennt. Prestssetrið í þjóðbraut. Til annarrar handar var einn fegursti skógur Iandsins, til hinnar, moldrok og uppblástur. Á heimilinu var ýmist fullt hús gesta eða það var innilokað mörgum vikum saman vegna fannkyngis og ófærðar. Oft varð það skyndilega sæluhús hrakinna ferðamanna. Það kom í ljós að þetta hentaði prestshjónunum ágæta vel. Upphaflega mun ætlunin hafa verið sú, að þau yrðu á Hálsi skamma hríð. Árin urðu átta og hálft. Söfnuðurnir máttu ekki missa þau. Þau undu sér vel. 120 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.