Heima er bezt - 01.04.1975, Side 7

Heima er bezt - 01.04.1975, Side 7
Vafalaust hefur breytingin orðið mikil að flytja frá Blain, á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, til Húsa- víkur við Skjálfandaflóa. — Mannlífið var þar annað, hvað þá umhverfi. En á þjónustustörfum prestshjónanna varð ekki stórfelld breyting. Frú Gertrud lék á hljóð- færi og tók þátt í söng, gerðist organisti í sóknarkirkju manns síns, kennari við skólana á Húsavík, stofnaði skátafélag stúlkna og var leiðtogi þess, svo nokkuð sé talið. Húsmóðir var hún á stóru heimili þar sem gesta- komur voru miklar. Séra Friðrik hafði mikla lífsreynslu og starfsreynslu auk þess að vera hámenntaður. Hann hafði stundað framhaldsnám í trúarsálarfræði, predikunarfræði o. fl. á meðan hann dvaldi í Ameríku. Hann rækti kirkju sína af trúmennsku og er mikill kennimaður. Ræður semur hann af listrænni kostgæfni. Meðferð íslensks máls er honum íþrótt. Eins og miklir kennimenn notar hann dæmisögur. Þeirra þarf hann skammt að leita. Upp- sprettulindin í fjallinu og fallandi haustlaufið á trjánum er honum efni í predikun. Auk þess að vera prestur og prófastur hlóðst á hann fjöldi annarra starfa, og verða fá ein talin hér. Hann var kennari, prófdómari, starfaði í fjölda nefnda og var þar gjarna formaður. Hann var söngstjóri Kirkjukórs Húsavíkur og Karlakórsins Þryms í fjölda ára. í þeirri hstgrein var hann sjálfmenntaður. Og þótt sjálfsmennt- un sé góð, er hún allrar menntunar erfiðust. Söngstjóra- starfið var honum mjög tímafrekt. Hann skrifaði og fjölritaði sæg af lögum fyrir báða kórana. Það var gjarna næturvinna, eins og raunar margt annað. Hann átti sæti í stjórn Söngfélagsins Heklu, sem er samband norðlenskra karlakóra og í stjórn Kirkjukórasambands S.-Þing.-prófastsdæmis og var söngstjóri á söngmótum beggja þessara sambanda. Þrátt fyrir allt þetta og miklu fleira, hafði hann tíma til að flytja ræður á mannamótum, þýða ágæta skáld- sögu úr ensku, semja lög og þýða og frumsemja fjölda söngtexta. Hverja nótnabókina af annarri hefur hann skrifað til Ijósprentunar, en nótnaskrift hans er með miklum snilldarbrag. Þegar Húsavíkurkirkja átti fimmtugsafmæli, samdi séra Friðrik hátíðaljóð og lag, sem frumflutt var undir stjórn hans. Hvort tveggja er fagurt og tilkomumikið og hefur nokkrum sinnum verið flutt síðan. Frumsamin lög eftir séra Friðrik eru þegar lands- kunn, en einkum þó söngtextar hans. Sumir þeirra má heita að séu á hvers manns vörum. Hann er gott skáld, og lausavísur yrkir hann af listfengi. Þegar prófastshjónin komu til Húsavíkur, fluttu þau með sér mikinn sæg ljóða og laga frá hinum enskumæl- andi heimi. Sú tónlist var lítt þekkt hér um slóðir, þar sem norræn og germönsk sönglög voru mestu ráðandi allt frá því að sönglíf hófst og íslendingar lögðu þjóð- lög sín til hliðar. Nú lét séra Friðrik kóra sína, Kirkju- kórinn og Þrym, kynna þessi vestrænu lög. Það var drjúgur skerfur til menningarlífs á Húsavík og nágrenni. Hann þýddi eða orti texta við lögin. Við það verk naut hann hagmælsku sinnar, skáldgáfu og tónlistargáfu. Að þýða eða setja á annan hátt texta við lög svo vel fari, hvað þá mjög vel, er miklum mun meiri vandi en al- mennt er skilinn. í þeim efnum nær séra Friðrik mjög langt. Það hlýtur að vekja undrun allra sem til þekkja, hve miklu séra Friðrik kom í verk á Húsavíkur árum sínum. Enda hvarf hann þaðan mjög þreyttur. Hér að framan hafa einkum verið upp talin þau verk, sem unnin voru í hinum stóra víngarði. A bak við þau var maðurinn Friðrik A. Friðriksson. Maðurinn sem konan sagði um forðum að væri „eintóm sál“. Maðurinn, sem ekki verður greindur í orðflokka, fallhætti né setn- ingar. Ekki heldur lagður á kvarði né veginn á vogar- skál. Þar sem störf hans voru flest unnin á Húsavík, hefði Heima er bezt 119

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.