Heima er bezt - 01.04.1975, Page 16

Heima er bezt - 01.04.1975, Page 16
W.'^VAVAVAVVAV.VAVV.VA'AV.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VJ v.v.v.v GUÐLAUGUR JÓNSSON: Brautryðj endur íslenzkrar sundmenntar 6. HLUTI !■■■■■■! Að námskeiðinu loknu var haldið sundpróf. Voru þá sérstakir prófdómarar, svo sem nú tíðkast, og tími manna tekinn á venjulegt vasaúr. Vegalengd- in var 28 faðmar og syntu menn bringusund, en annars kenndi Páll einnig baksund og hliðarsund. Þeir fljótustu syntu vegalengdina á 70 sekúndum. Voru það þeir Bjarni Ásgeirsson og Kristján. Fátt var áhorfenda, nema feður nokkurra drengjanna, sem komnir voru til þess að sækja þá og farangur þeirra. Meira en þetta var ekki hægt að hafa út úr Krist- jáni, nema það, að hann sagðist muna, að einn mað- ur við Djúp hafi um þetta leyti verið talinn syndur og það vel syndur, það var Jón Sigurðsson söðla- smiður. Og síðast en ekki sízt, að tveir áðurnefndir nemendur, þeir Bjarni og Ásgeir Ásgeirssynir, önn- uðust sundkennslu á Nesinu í nokkur ár eftir þetta, við svipuð skilyrði og hér er lýst.“ Blaðið segir svo að lokum: „Þegar íþróttasaga íslands verður skráð, má hlut- ur Reykjanessins ekki gleymast, þetta er smásteinn í þá vörðu.“ Áðurnefnt sundnámskeið hefur nánar tilgreint verið haldið sumarið 1891; það kemur fram í rit- stjórnargrein í Þjóðviljanum 6. tbk, 31. október sama ár, og segir þar svo: „Eftir ráðstöfun sýslunefndar Isafjarðarsýslu var á næstliðnu vori byrjuð sundkennsla í Reykjanesi hér í sýslu; þar á nesinu eru heitir hverir og upp- sprettulindir, svo að auðvelt er að gera þar beztu sundlaug með hæfilega volgu vatni. Til þess að veita sundkennslunni forstöðu varð að útvega mann norðan úr Eyjafjarðarsýslu, með því að engan hæfan mann var að fá innan sýslu. ís- firðingar, sem þó ala mestan aldur sinn á sjónum, margir hverjir, þeir áttu engan þann sundmann, er fær væri um að takast kennsluna á hendur, og meira að segja mjög fáa menn, er gætu fleytt sér, eða haldið sér ofan sjávar, þótt þeir t. d. dyttu útbyrðis rétt við land í logni og bezta veðri. Maður sá, er fenginn var til þess að annast sund- kennsluna var hr. Páll Magnússon snikkari á Akur- eyri, og leysti hann þann starfa sinn að almanna- dómi mjög samvizkusamlega og vel af hendi, svo að piltar þeir, er hjá honum nutu tilsagnar, tóku góð- um og furðanlegum framförum. En því miður voru þeir allt of fáir í ár, einir seytján, er kennslunnar nutu, og sýnist það bera vott um sorglegt áhugaleysi almennings á jafn nauðsynlegri íþrótt sem sund- kunnáttan er, ekki sízt fyrir ísfirðinga. Aðeins úr fjórum næstu hreppunum við sund- staðinn, af samtals 10 heimilum, höfðu menn haft þá hugsunarsemi að senda pilta til námsins; hinir 10 hreppar sýslunnar og ísafjarðarkaupstaður sinntu kennslunni að engu leyti. Má þetta eflaust mest megnis eigna hugsunarleysi almennings, því að kostnaðurinn að nesta strákana yfir nokkrar vikur, og greiða 6 kr. í kennslukaup, eins og tilskilið var í sumar, getur fáum hamlað. Það má telja sjálfsagt, að sýslunefndin annist um að sundkennslunni verði fram haldið hér eftir ár- lega, og er vonandi, að almennmgi lærist smám saman að hagnýta sér hana sem bezt. Nauðsynlegt er og, að sem fyrst verði komið upp dálitlu skýli við sundlaugina, með því að slæmt er að eiga eingöngu að búa í tjöldum, ef votviðrasöm tíð er, getur það bæði tafið fyrir kennslunni og enda bakað piltunum heilsutjón, því að ekki eiga menn víst að ætíð hittist á jafn góða tíð, eins og um sundkennslutímann í vor eð var.“ Hér má bæta því við, að sundkennarinn, Páll Friðrik, var fæddur á Akureyri 21. des. 1864, sonur 128 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.