Heima er bezt - 01.04.1975, Page 25

Heima er bezt - 01.04.1975, Page 25
Enginn er aftur á móti í vandræðum með að finna sterk hagfræðileg rök fyrir myndun byggðakjarnans í Reykjavík og á Suðurnesjum, enda býr þar nú rúmlega helmingur landsmanna, og eina plássið þar sem fólki fjölgar. Svo virðist sem þessi mannfjöldi skapi það mannlíf sem nútíminn sækist helst eftir. Þarna slær þjóðlífið líka örast, ekki skal því neitað. Svæðið býður upp á eftirsótt og fjölskrúðugt menningar- og skemmt- analíf og hvers konar þjónusta er þar með ágætum. Síðast og ekki síst er þetta gósenland viðskipta og at- hafna og þeir sem hneigðir eru fyrir gróða ávaxta hvergi betur peninga sína en þar. I veltiárum er þarna mikil þensla í framkvæmdum og fjárfestingum, háar fúlgur í boði er verkið fæst bara unnið. Skæðar tungur segja að hjá sumum starfshópum tíðkist slíkar yfirborg- anir í kaupi, sem sjaldan hverfa til baka að þær setji allt efnahagskerfið úr skorðum. Sé þetta satt er engin furða þótti landsbyggðafólki finnist sundum litlar sneiðarnar af hinni margfrægu þjóðarköku. Margt hefur stuðlað að þessari f jölmennu byggð. Eitt með öðru er skólakerfi okkar. Mikið af unga fólkinu sem erfa á landið stefnir að sérfræðikunnáttu sem kost- ar langt skólanám. Að námi loknu hefur útkjálkastað- urinn sem fóstraði sérfræðinginn í æsku misst allan glans, hefur heldur ekki þörf fyrir kunnáttuna nema í litlum mæli. Læknirinn, verkfræðingurinn, efnafræð- ingurinn og jafnvel presturinn setjast því að í hinni fjölmennu byggð sem býður gott lifibrauð og aðra uppfyllingu nútímalegs lífs. Oft þarf þó útkjálkastað- urinn á sérfræðikunnáttu að halda og þá fæst hún ef til vill ekki þótt eins mikið ef ekki meira fé sé í boði en á þéttbýlissvæðinu. Þéttbýlissvæðið hefur vissulega verkað sem segull á landsfólkið, meira að segja gamlir baráttumenn fyrir byggðajafnvægi setjast þar að á eftirlaunaaldri. Auð- vitað valda því ýmsar ástæður svo sem sérfræðiþjónusta lækna — og börnin sem kostuð hafa verið til sérfræði- námsins. Þá má heldur ekki gleyma sveitunum í kringum þetta þéttbýlissvæði. Að sjálfsögðu hafa þær mikinn hagnað af því. Suðurlandsundirlendið, Borgarfjarðarhéröð og sveitir allt til Gilsfjarðar í vestri líta þetta stóra mark- aðssvæði hýru auga. Og þó sú hætta sé til staðar að þetta þéttbýli sogi sveitafólkið til sín, hefur hagfræðin engar áhyggjur út af því. Hún segir að landbúnaðarklabbið megi allt flytja inn og það verði ódýrara, og að auki megi borga hverjum bónda milljón fyrir að setjast þar að í fjölbýlishúsi. Á umræddu þéttbýlissvæði og sveitunum umhverfis það búa sennilega tveir þriðju hiutar þjóðarinnar. Fjöl- mennið skapar því mikið pólitískt vald sem engar líkur eru á að það afsali sér með góðu á næstunni, þrátt fyrir fínar áætlanir um að snúa fólksstraumnum við. Blaðsíður slíkra byggðaáætlana kunna að vera forvitnilegar og geyma bjartsýni þótt tæpast verði þær jafn skemmti- legar og blaðsíður Þúsund og einnar nætur með frásögn- unum af töfrakúnstum Ali Baba. Undirritaður vill á engan hátt gera lítið úr rökum til- finninganna fyrir því að haldið sé við byggð ef fólkið sjálft æskir þess í raun og veru. En það tekst aldrei ef byggðafólkið sjálft stendur í innbyrðis stríði út af tak- mörkuðum fjölda rækjutítla og rafmagni sem ekki fæst. „Sá hugsunarháttur verður að víkja, að ef mín byggð og mitt hérað geti ekki náð áfanganum, þá sé ekki hægt að unna öðrum þess,“ er hægt að taka undir með Áskeli Einarssyni framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Norð- lendinga. (Bókin „Land í mótun“, bls. 70). Hvað skyldi þurfa margra ára samvinnustarf í byggð- um landsins til að sannfæra menn um nauðsyn þess og ágæti? Enginn hreppur, engin byggð getur komist ein af. Akureyri hefur t. d. á undanförnum árum sótt raf- magn til nágrannabyggðar og nú síðast lífsnauðsynlegt vatnið. Og úr því farið er að nefna það hvað byggðirnar eru raunverulega hver annarri háðar er ekki úr vegi að beina augum að glætu í samvinnustarfi, en það er starf Samvinnuhreyfingarinnar og Kaupfélags Eyfirðinga í byggðum Eyjafjarðar, allt frá Grímsey í norðri og inn til daia. Allir vita um þýðingu iðnaðar samvinnumanna fyrir Akureyri. Fyrir nokkrum árum brann stór hluti hans í eldi. Hagfræðilegar reikningskúnstir héldu fram að alveg eins hagkvæmt væri að byggja hann upp á stærsta mark- aðssvæði landsins, þéttbýlissvæðinu suðvestanlands; vegalengdir á markað væru þar stuttar og skammt í stærstu höfn landsins. Þetta hvarflaði ekld að samvinnu- mönnum; iðnaðurinn var byggður upp á sínum gamla stað, meira að segja efldur. Hér sigruðu rök tilfinning- anna rétt einu sinni enn. Atvikin hafa hagað því þannig að Kaupfélag Eyfirðinga hefur verið beðið um að taka að sér verslun á Siglufirði. Sams konar beiðni hefur komið frá Ólafsfirði sem þó er ekki afgreidd enn. Allir sjá uppbygginguna á Dalvík og starfræksluna í minni sjávarplássunum við Eyjafjörð. Og svo er öll starfræksla KEA á Akureyri, og fé þess kemur að notum í þýð- ingarmiklum og stórum atvinnutækjum eins og Slipp- stöðinni hf. og Utgerðarfélagi Akureyringa hf. og víðar og víðar. Allt skapar þetta ágætis mannlíf í byggðum Eyjafjarðar sem því miður hefur leitt til ofmetnaðar sumra ráðamanna Akureyrar. Sú spurning vaknar auð- vitað hvað Akureyri megi eiginlega verða stór svo hún verki ekki sem segull á fólk nágrannabyggðanna, sem hún á þó svo mikið undir. Finna má dæmi þess að ey- firskir bændasynir kjósi að yfirgefa velsetnar jarðir feðra sinna og leiti sér atvinnu á Akureyri. Sjálfsagt er það líka amstursminna líf en stússa við kýr og elta rollur upp um fjöll. Sem betur fer eru þessa þó fá dæmi úr þessari blómlegustu ræktunarbyggð landsins. Samvinnuhreyfingin og KEA standa hér áreiðanlega vel að verki þótt að ýmsu megi eflaust finna. Undirrit- aður kemur þó ekki auga á nein stórvægileg aðfinnslu- efni. Hér er engu þröngvað upp á neinn, aðeins gripið inn í eftir beiðni af knýjandi þörf þess fólks sem vill viðhalda byggð sinni. Heima er bezt 137

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.