Heima er bezt - 01.05.1978, Side 4

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 4
EIRÍKUR EIRÍKSSON: Það er náttúra mannsins að forvitnast Viðtal við Helga Hallgrímsson grasafræðing Segðumér eitthvað um œtt þína og uppruna. Ég er fæddur á Skeggjastöðum (Holti) í Fella- hreppi á Héraði austur, 11. júní 1935. Móðir mín er Laufey Ólafsdóttir frá Skeggja- stöðum, en faðir Hallgrímur Helgason frá Ási í sömu sveit. Mamma er af vefaraætt, sem er alkunnug þar eystra, föðurætt pabba er komin af Hallgrími í Sandfelli, en af þeirri ætt eru ýmsir fræðimenn og skáld þar eystra, svo sem Páll Ólafsson, Gunnar Gunnarsson og Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Móðurætt hans var hins vegar úr Vestur-Skaptafellssýslu, og hef ég fyrir satt að hana megi rekja til Jóns Steingrímssonar eldklerks. Langalangafi minn í móðurætt var Guttormur Vigfússon stúdent á Arnheiðarstöðum, sem var forgöngumaður um ýmsar nýjungar í félags- og ræktunarmálum þar eystra, en son- arsonur hans með sama nafni varð fyrsti skólastjóri bún- aðarskólans á Eiðum. Foreldrar mínir voru bæði komin í fjórða lið af Ingunni skyggnu á Skeggjastöðum, sem var af Hellisfjarðarætt, en sonarsonur hennar var Sigfús Sigfús- Droplaugarstaðir í Fljótsdal og Fossar í Hrafnsgerðisú. 148 Heima er bezl son þjóðsagnaritari. Loks má geta þess að Jón Ólafsson langafi minn í móðurætt var listasmiður. Foreldrar mínir fluttu með mig á fyrsta ári frá Skeggjastöðum á Arnheiðarstaði í Fljótsdal, þar sem þau fengu þriðjung jarðarinnar til ábúðar. Á þeim þriðjungi stofnuðu þau nýbýli er þau nefndu Droplaugarstaði, og er nú yztur bær í Fljótsdal, stendur á hjalla rétt fyrir innan Hrafnsgerðisána, sem skiptir hreppum. Þangað fluttu þau 1942. Arnheiðarstaðir eru nær beint á móti Hallormsstað, hinum megin við Lagarfljót. Þar er fagurt umhverfi, klettahlíðar rétt fyrir ofan bæinn, og fellur bæjarlækurinn þar fram af í fallegum fossi. Þar komst ég fyrst í kynni við huldufólk, en frá því verður ekki sagt nánar að sinni. Tvenn beitarhús eru í landi Amheiðarstaða og fylgdu þau bæði nýbýlinu. Önnur þeirra eru Parthúsin, sem fræg hafa orðið af sögunni um Parthúsa-Jón, en hin nefndust Stekkhús, og bjuggum við í þeim síðarnefndu eitt sumar, meðan verið var að byggja íbúðarhúsið á Droplaugar- stöðum. Það fannst mér skemmtilegt sumar. Eldavélin var sett upp í einni krónni, en við krakkarnir borðuðum alltaf uppi í garðanum á plötu, sem lögð var á garðaböndin. Svefnhúsið var lítill skúr, sem hrófað var upp rétt við fjárhúsið. Svo hefur þú alizt upp á Droplaugarstöðum? Á Droplaugarstöðum komst ég til vits og ára, eins og stundum er sagt. Þar er líka mjög skemmtilegt umhverfi, brattlent niður að Fljótinu, og breiðir hjallar hver upp af öðrum. Hrafnsgerðisáin, sem er töluvert vatnsmikil, fellur þarna þvert niður hlíðina í djúpu gili með mörgum fallegum fossum. Þetta árgil varð snemma athvarf mitt frá heimsins glaumi. Fór ég þar einförum og hugsaði um hinztu rök lífsins og tilverunnar, - í þá daga var ég mjög heimspekilega sinnaður.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.