Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 8
námsstyrkur, ef ég vildi fara og kynna mér sveppafræði og sérstaklega fúasveppi, sem þá gerðu mikinn usla í fiski- skipum úr tré. Þetta varð til þess að ég fór að kynna mér sveppafræði. En áður hafði ég ekki haft sérstakan áhuga á þeirri grein. Um sumarið safnaði ég nokkru af sveppum og sá að þetta var skemmtilegt viðfangsefni. Lét svo slag standa, og tók tilboðinu, og fór utan um haustið, og enn til Göttingen, var þar vetrarmisserið, og tók „stórpraktikum“ i dýrafræði. Fór svo heim um vorið og vann við smíði ritgerðar um gró, sem ég flutti svo opinberlega í Grasa- fræðistofnun Háskólans næsta sumar, en þá dvaldi ég mest í Hannoversch Munden, þar sem skógræktardeild Háskólans er staðsett, og kynnti mér svepparæktun o.fl. því skylt. Þá hefurþú farið að hugsa til doktorstitilsins. Ég var nú (sumarið 1961) loksins kominn að því stigi að hafa lokið tilskildum kúrsum o.s.frv., sem krafist var til lokaprófsins, en það var kallað doktorspróf í Göttingen, eins og í fleiri þýzkum háskólum. Tilskilið var einnig að kandidatinn skilaði ritgerð, sem byggðist að einhverju leyti á sjálfstæðri rannsókn. Ég fór nú á fjörurnar við grasafræðiprófessorana um að þeir tækju mig sem „doktorant“, og kvaðst vilja rannsaka íslenzka sveppi og taka þá sem ritgerðarefni. Þeir töldu þá öll tormerki á því, og báru við vanþekkingu sinni á svepparíki íslands (sem auðvitað var rétt.) Niðurstaðan varð sú, að þeir „sendu“ mig til Hamborgar, en þar töldu þeir að væru menn, sem væru mun betur inni í þessum hlutum. Þangað fór ég svo og fékk heldur góðar undir- tektir hjá Hamborgurum. Það kom hins vegar í ljós að þar þurfti ég að taka sérstakan kúrsus í lífrænni efnafræði, sem ég hafði sloppið við í Göttingen. Fór svo heim við svo búið. Næsta vetur (1961-62) kenndi ég aftur við Mennta- skólann, og fór svo til Hamborgar um vorið og lauk þess- um efnafræðikúrs á einum mánuði (sem annars var gert ráð fyrir að tæki tvo-þrjá mánuði), og svo aftur heim, og hélt áfram að safna sveppum um sumarið. Veturinn 1962-63 var ég heima og stundaði próflestur, en greip jafnframt í að rannsaka sveppasafnið, sem nú var orðið allmikið að vöxtum. Fór svo til Hamborgar um vorið og lauk þar prófi í eðlisfræði og efnafræði, en það var eins konar forpróf, sem þar þurfti að hafa til loka- prófs. Þóttist ég nú vel hafa gert, og beið með eftirvæntingu tilkynningar um endanlegt efnisval frá prófessornum í Hamborg. Og sjá: seint um sumarið fæ ég bréf frá honum, þar sem hann felur mér að skrifa um berserkjasveppinn og efnasamsetningu hans. Megi ég að vísu taka íslenzka sveppi til ræktunar í þessu skyni, en að öðru leyti verði ég að vinna að þessu í Hamborg, undir handleiðslu hans. Það þarf naumast að geta þess að ég var búinn að fá nóg af „þýzkri nákvæmni“ þegar hér var komið sögu, og þetta bréf varð aðeins til að undirstrika það, enda skrifaði ég prófessornum að hann gæti „étið“ sína berserkjasveppi sjálfur. Síðan hefi ég ekki hugsað frekar til próftöku, enda 152 Heima er bezt aldrei orðið var við að það háði mér að vera án þeirra réttinda. Hvenœr varst þú svo ráðinn safnvörður við Náttúrugripa- safnið? Sama haustið (1963) var ég ráðinn þar safnvörður. Hafði reyndar flutt þangað sveppasafn mitt veturinn áður, með leyfi bæjarstjórans þáverandi, Magnúsar Guðjónssonar, af því mig vantaði húspláss fyrir það. eg held sé óhætt að segja það, að ég hafi aldrei hugleitt þann möguleika að hægt væri að gera neitt úr þessu nátturugripasafni, sem þá var ekki annað en sýningarsafn, en þegar ég flutti þangað inn fór ég að íhuga þetta, niðurstaðan varð sú að ég gerði tillögur til bæjarstjórnar um eflingu þess, og það mun aftur hafa valdið því að ég var ráðinn í þetta starf, sem þá hafði raunar verið laust í nokkur ár, eða síðan Kristján Geirmundsson fyrrv. safnvörður flutti til Reykjavíkur, en það mun hafa verið árið 1959. Reyndar er nú hæpið að kalla það starf, því það var auðvitað ekki nema lítið brot úr starfi (mánaðarlaun mín voru 1500 kr. að mig minnir, þegar ég byrjaði), og þess vegna hafði ég fulla kennslu við Menntaskólann næstu árin, en gat svo smám saman minnkað hana eftir þvi sem starfsemin á safninu jókst, og vorið 1969 hætti ég alveg að kenna, og hef ekki komið nálægt því síðan. Hvernig líkaði þér kennslustarfið? Bæði vel og illa. Ég hafði á vissan hátt gaman af því, en gat ekki að því gert, að mér fannst það alltaf heldur tilgangs- lítið, eins og það er stundað í skólunum. Ég braut heilann mikið um þetta á sínum tíma, og gerði alls konar tilraunir með nýjar aðferðir, en allt strandaði það á tregðu þessarar miklu vélar sem nefnist skólakerfi. Mig langaði til að gera nemendur virkari þátttakendur í náminu og tók m.a. upp ritgerðasmíð í því skyni, í náttúrufræðinni, en það er víst það eina sem hefur haldist af þessum nýjungum mínum. Annars naut ég mín bezt í efnafræðikennslunni í þriðja bekk, og þaðan munu flestir nemendur mínir eiga góðar minningar, það hef ég oftlega rekið mig á síðan. Ég reyndi að tengja efnafræðina sem mest við daglega lífið, og byrjaði t.d. oftast á þvi á haustin að kveikja á kerti og útskýra logann sem efnabreytingu. Á síðari árum hefi ég gerzt enn fráhverfari skólum og öllu sem þeim fylgir, og held að þeir eigi verulegan þátt í vandamálum nútímans. Hvað er svo að segja um safnstörfin frekar? Ég byrjaði á því að skrásetja safnið. Sem fyrr getur var það nær eingöngu sýningarsafn fugla, eggja o.s.frv. Þó var þar jurtasafn Steindórs Steindórssonar, sem bærinn hafði keypt um 1960, en Steindór hafði einn aðgang að því, og svo var sveppasafnið mitt. Ég byrjaði strax fyrsta sumarið að safna jurtum handa safninu, og hélt því áfram næstu sumur, fór mest um Eyjafjörð í því skyni, enda eina farartækið reiðhjól, sem ég keypti með styrk frá safninu. Þó fór ég nokkrar lengri ferðir, m.a. út í Fjörður og á Látraströnd. Árið 1965 keypti

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.