Heima er bezt - 01.05.1978, Side 18

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 18
Frá Narvík Frelsisstyttan á ráðhústorginu. á, en skógur var ekki látinn fylgja, en beit fyrir skepnurnar í vesturhlíðum dalsins, hérna á móti. Bústofninn var þrjár kýr og fjórar geitur. Á landinu var ekki hægt að hafa stærra bú, fyrir utan 1 til 2 hesta, sem nauðsynlegt var að hafa við bústörfin, og stundum fékk maðurinn minn vinnu með hestinn utan heimilisins. Auðvitað urðum við að rækta landið og byggja þessi hús, þá var vinnudagurinn oft langur. Um það leyti sem þessu var öllu lokið, missti maðurinn minn heilsuna, það var fyrir stríðið, og um búskapinn sá ég að mestu leyti með bömunum eftir það, en þau eru fjögur, þrjár stúlkur og einn drengur. Nú eru þau öll að heiman farin, en þau koma heim í sumarfrí- unum sínum og hjálpa mér. Þá var mikið að gera, slá túnið með orfi hvað þá annað, og hugsa um skepnurnar. Á fyrstu búskaparárum okkar hér varð ég að vinna mjólkina heima í smjör og ost, svo kom mjólkurbúið í Narvík, en vegurinn þangað var bara oft ófær á vetuma, því í raun- inni var þetta bara rudd braut, og hér er venjulegast 2 metra djúpur snjór. Stundum var mjólkin flutt á sleðum út að víkinni þama, og þaðan með bát en það tók voða langan tíma að fara slíkar ferðir. Svo var þessi vegur lagður, sem snjórinn er ruddur af á vetuma, en heim á bæina verður fólkið að moka sjálft, oftast aðeins með skóflu, og það hef ég gert undan fama vetur. Það eru 20 ár síðan maðurinn minn dó, síðasta verkið hans var að planta þessum trjám heim með vegin- um, og þau eru jafnmörg árunum sem hann bjó hér. Svo þegar bömin fóru að heiman, gafst ég.fljótt upp við að hafa skepnur. Það eru fimm ár síðan, og nú er ég 73 ára, hef bara svolitla garðrækt, en hér verð ég meðan ég get. Ellilaunin mín eru 1.500 norskar á mánuði, það nægir mér ef ég fer vel með, af því að ég á húsið. En hvað færð þú mikið í ellilaun“? „Helmingi minna en þú færð, eða um 200.000 íslenskar 162 Heima er bezt krónur á ári, það nægir mér fyrir Noregsferð og neftóbaki og mér finnst ég verja peningunum vel“. Gamla konan brosir, og auðséð er að hún trúir þessu varla. Nú verður karl að leysa frá skjóðunni, segja henni frá íslandi, uppvexti sínum, og lífsbaráttu. „Þetta hefur þá verið alveg eins og hjá okkur“, segir gamla konan að lokum. Kvöldið leið undur fljótt við hlýjan arinn, og vinaryl- inn, er þessi aldraða kona miðlaði gestum sínum. Er ís- lensku konurnar höfðu fært henni húfu, vettlinga og slæðu, fallega muni úr íslenskri ull, varð hún hrærð. „Nú er ég eins og drottning“, varð henni að orði, er hún hafði skreytt sig þessum munum. Þannig endaði kvöldið, eins og fögru ævintýrin hjá ömmum tveggja frændþjóða í fyrri daga. Þó frú Klara sé 73 ára, er hún enn bein í baki, tigin í fasi með fögur blá augu og hánorræn yfirlitum, þrátt fyrir mikla vinnu bæði heima og heiman, því fyrir kom, að í vinnu fór hún með skófluna sína, að moka möl og öðru slíku. Hefur hún aldrei til gigtar fundið, hvað þá meir. Aðeins nú er blóð- þrýstingur of hár, og víst hefði hún getað verið drottning. Af fjölskyldumyndum að dæma, eru börnin hennar stór- myndarleg, og það hefur eiginmaður hennar einnig verið. Þó karl gestur hennar sé árrisull, mánudaginn 20. júní, er morgunverður þegar framreiddur, og frú Klara situr með prjónana sína við eldavélarhornið. Heldur en neyta morgunverðar ganga þau til gripahúsa, það er aðeins eitt á tveimur hæðum, byggt að nokkru inn í brekkubrún, stór bygging vel við við haldin, rauðmáluð með hvítum Fauske-kirkja.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.