Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 26
THEODÓR GUNNLAUGSSON FRÁ BJARMALANDI: Máttug er móðurástin r g. sem þessar línur rita, gleymi því aldrei hve undr- andi ég varð, þegar ég, strákanginn, heyrði fyrst söguna um litla drenginn, sem fannst í helli, hul- inn skógarþykkni, langt suður í löndum, og hafði alist upp meðal úlfa. Ég sá í huganum þennan dreng, hendast áfram með úlfunum, á fjórum fótum, og ímynd- aði mér, að hann hefði svo sterkar tennur, að hann gæti brutt bein, eins og úlfamir. Og ekki efaðist ég um, að hann beitti þessum tönnum og öskraði svo heiftarlega, ef hann væri handsamaður, að það vakti slíkan ótta í mínum bamshuga, að það eimir jafnvel eftir af honum enn. En hver var ástæðan fyrir því, að úlfamir átu hann ekki strax? Og hvemig fóru þeir að því að halda í honum lífinu? Við þessum spurningum fékk ég engin fullnægjandi svör, enda skilningur minn á slíkum fyrirbærum harla bágborinn. Eftirfarandi saga hygg ég þó að gefi í öllu falli sæmilegt svar við fyrri spurningunni. Það var seint í október 1933, að ég átti erindi út í sveit, en þannig tókum við heiðabúarnir á Hafursstöðum ávallt til orða. Eins og venjulega kom ég við á Ferjubakka. Þar bjuggu þá hjónin Ólafur Gamalíelsson og Aðalheiður Björnsdóttir. Það var ætlun mín að betla eitthvað við þau, eins og aðrir sveitungar. Þegar ég nálgaðist bæinn, heyrði ég högg mikil og tíð. Vissi ég þá, að Ólafur frændi, eins og ég kallaði hann ávallt, var í smiðju sinni, því ekki sá hann út yfir það, er sveitungar hans og ýmsir fleiri, báðu hann að lagfæra fyrir sig. Það var hvorttveggja, að hann var snillingur við allt, sem hann kom höndum að og hitt, að hann hafði ráð undir rifi hverju, eins og oft er að orði komist. Ég herti þvi gönguna heim á hlaðið, rak hausinn inn í smiðjudyrnar og bauð góðann daginn.Ólafur hrökk við, en áttaði sig strax, því bæði þekkti hann röddina og snjáldrið, sem inn gægðist. Ég gekk til hans og við tókumst í hendur. Eftir venju skiptumst við á nokkrum gamanyrðum, áður en ég bar upp erindi mitt. Heyri ég þá allt í einu undarleg hljóð, sem eiga upp upptök sín í einu horninu á smiðjunni, þar sem ég vissi að fjártíkin hans, hún Lúpa, átti bólið sitt. En svona hljóð minntist ég ekki að hafa heyrt áður úr hundsbarka. Mér varð því litið inn í hornið og sá þá þar sjón, sem mér hefur orðið einna minnisstæðust um dag- ana, sem þó eru nú orðnir yfir tuttugu og sex þúsund. Þá 170 Heima er bezl sjón hef ég heldur ekki séð í annað sinn. f bóli Lúpu rís upp gríðarstór, ljósgul hæna, blæs sig út og lét til sín heyra á því máli, sem hænuungar skilja best. Var þar með fengin skýringin á hljóðinu, sem ég áttaði mig ekki á. Á öllu háttalagi hænunnar bjóst ég við, að bráðum gægðust ungahöfuð undan brjóstum hennar og vængjum, sem hún lét lafa, svo handflugfjaðrir snertu gólfið. Ég færði mig því örlítið nær henni. En viti menn! Birtast þá ekki skyndilega og óvænt tveir kolsvartir hausar á ungum hvolpum, sem teygja sig fram í birtuna, undan vængjum hennar, og horfa undrandi á mig og veröldina. Sjálfur minnist ég aldrei að hafa séð eins snarkringlótt augu á nokkurri skepnu og á öðrum hvolpnum. Og ekki er ég í vafa um, að svipað gat hann sagt um mig, hefði hann mátt mæla. Aldrei hef ég óskað eins heitt og þá að hafa á milli handa góða myndavél. Ég starði á þetta fyrirbæri nokkra stund, steinþegandi. Svo leit ég til Ólafs, frænda míns, sem brosti, og hafði áreiðanlega gaman af að fylgjast með tilburðum mínum. Svo leysti ég ofan af skjóðunni. því nú tók forvitnin til sinna ráða. Spurningarnar man ég nú sumar, en mun betur svör frænda míns. Hvernig atvikaðist það, að hænan fékk þessa ást á hvolpunum? Ólafur leit til mín og augun ljómuðu, þegar hann svar- aði: „Það er nú skrítin saga, og furðar mig ekki á, þótt þig langi til að heyra hana. Annars gætu litlu systur sagt þér nánar frá henni. Fyrir nokkrum dögum, þegar ég fór að smala fé, fór Lúpa með mér, eins og ávallt. Hún var þá nýlega gotin. Ég lét tvo hvolpana lifa. Hún lét sér mjög annt um þá og hljóp stundum frá mér heim, til að lofa þeim að sjúga, en kom alltaf fljótlega til mín aftur. Þá stóð svo á, að ein hænan okkar, sem ólm vildi leggjast á eggin, fékk það ekki. Þau voru alltaf tekin frá henni. Það þótti ekki búmannlegt að ætla sér að ala upp hænuunga í háskammdeginu. Aðal- heiður mín og börnin okkar gáfu því nánar gætur og fylgdust með því, þegar Lúpa fór með mér, hvað hvolp- arnir létu áberandi óánægju sína í ljós, með því að væla ámátlega nokkra stund, en hjúfruðu sig svo saman og þögnuðu. Þau veittu því líka eftirtekt, að þessi fyrrnefnda

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.