Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1978, Qupperneq 28

Heima er bezt - 01.05.1978, Qupperneq 28
ÞORSTEINN BJÖRNSSON FRÁ MIKLABÆ: „Þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla, þar sem hamrahilla hlær við skini sólar. Árla fyrir óttu ennþá meðan nóttu grundin góða ber græn í faðmi sér.“ (J.H.) Nótt • • í Oxnadal . æskuárum mínum lék mér mjög hugur á að sjá /\ Öxnadalinn. Bar fleira en eitt til þess. Fjöllin / blöstu við sjónum minum úr afréttarlöndum ■A- okkar Blöndhlíðinga há og hrikaleg. Þau skýldu „sæludalnum“ hans Jónasar um aldur og ævi. Ég hafði einu sinni farið um Öxnadal í barnæsku, þá fluttur á kviktrjám frá Miklabæ norður á Akureyri, en sá lítið annað en brattar og klettóttar fjallabrúnir. Loksins kom að því að ég færi norður í Öxnadal. Þegar við Sigurður Einarsson bóndi á Hjaltastöðum, þá vinnumaður á Miklabæ, rákum stóðið eitt vorið, áttum við að fara norður yfir Öxnadalsheiði til þess að leita að rauðri hryssu, fimm vetra gamalli, sem Öfeig hét. Hún hafði strokið norður snemma um vorið eða seint um veturinn, sem oft vildi til um sumt af Miklabæjarstóðinu i þá daga. Við rákum stóðið af stað síðdegis, komið undir kvöld. Það var stór og myndarlegur hrossahópur og margar hryssur með folöldum. Héldum við með það sem leið liggur fram Blönduhlíðina og upp Norðurárdalinn því sem næst fram í afréttina og slepptum því á Hörgárdalsheiðina handan við brú. Við höfðum rekið hægt vegna folaldshryssanna, þurftum oft að stanza til að lofa hrossunum að bíta og folöldunum að sjúga. Liðið var fast að miðnætti, er við lögðum á stað áleiðis til Öxnadals að leita að Ófeig. Hröðuðum við sem mest för okkar norður heiðina og komum að Bakkaseli fyrri part nætur. Stofugluggi var opinn út frá bæjardyrum, litum við þar inn og sáum að þar sváfu Kristján bóndi Gíslason og Rósa Tómasdóttir húsfreyja er þar bjuggu þá. Við vöktum þau og spurðum Kristján eftir hrossunum sem við vorum að leita að. Sagði hann að þau væru þar frammi á dalnum handan ár, á svokölluðum Almenningum. Riðum við strax á braut og yfir ána framan við bæinn i Bakkaseli. Héldum svo fram grænar eggsléttar grundir undir háum hamrahlíðum meðfram Öxnadalsánni, þar til við fundum stóðhópinn sem við vorum að leita að. Það voru nokkrar stóðhryssur frá Miklabæ sem mest þráðu að njóta góðgresis í dalakyrrðinni norður þar. Þá var þyngsta þrautin eftir, að ná Rauðku og beizla hana. Það var lítt, árennilegt því að hún var mjög tryllingsleg í sjálfræðinu og frelsinu í vornætursælunni í Öxnadal, óvön að láta skerða frelsi sitt um miðja vomótt. Við Sigurður vorum öruggir og ákveðnir að láta okkar ekki eftir liggja að handsama trippið. Treystum okkur alveg á þeim árum til slíks og þvílíks og til hvers og eins ef við vorum báðir samtaka. Það voru okkar venjulegu tök á ótemjum að Sigurður tók í taglið en ég flipataki og um annað eyrað. Gripum við þá stundarfast og stóðu þær þá venjulega kyrrar eftir nokkurt þóf. Sigurður hljóp nú inn í stóðhópinn og náði í taglið á Rauðku. Fór nú Rauðka marga hringi og sveiflur um hlíðar og grundir áður en ég kæmist að ná neinum tökum til hjálpar, því að ég var að þessu sinni venju fremur stirður í öðrum fætinum, sem ég hef haft mein í frá barnsaldri.Var þeirra aðgangur allharður, því að maðurinn var öflugur og sleppti aldrei tökum. Loks gat Sigurður komið kaðalbandi í taglið og sveiflaði því um stóran jarðfastan stein. Komst ég þá að og náði í flipann og eyrað, eftir það stóð hún svo að við gátum lagt við hana beislið. Glögg merki eftir stimpingamar sáust í döggvuðu grasinu um grundir og hlíðar þama í kring. Héldum við svo heim á leið með Ófeig í taumi. Komið var fram um óttu er við komum ofan að Bakkaseli. Sólarroð var um efstu tinda og brúnir þó að næturkyrrðin grúfði hið neðra um Öxnadal. Fjöllin sýndust tiguleg, sólroðin um efstu tinda og hamrabrúnir, græn og grösug ofan hlíðarnar, sléttar grundir að neðan meðfram Öxnadalsá. Lækir hoppuðu klett af kletti ofan drög og gilskorninga: „Bunulækur blár og tær, bakkafögur á í hvammi, sólarylur, blíður blær bunulækur fagur tær.“ Kvöddum við svo Öxnadal og héldum heim vestur að Miklabæ með Ófeig. Orsök til þess að hún var sótt var sú að faðir minn ætlaði að selja hana á markað til útlanda, í stað trippis sem vantaði, en sem betur fór kom aldrei til þess. Hitt trippið kom í leitirnar. Ófeig reyndist mesta farsældarhross og lifði langa ævi sem stóðhryssa á Miklabæ. 172 Hein’ia er bezi

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.