Heima er bezt - 01.05.1978, Side 36

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 36
BÓKAHILLAN Elías Mar: Speglun. Rvík 1977. Helgafell Höfundur hefir lítið komið fram sem Ijóðskáld, en getið sér hinsvegar góðan orðstír fyrir skáldsögur sínar úr Reykjavíkur- lífinu, enda þótt fátt hafi sést frá honum hin síðari ár, og er það miður, því að sögur hans voru skrifaðar af raunsæi og skilningi. Þessi ljóðabók er ekki mikil fyrirferðar, einar 40 bls., en kvæðin í henni ort á rúmlega 40 ára tímabili, svo að uppskeran er ekki mikil að fyrirferð. En vart trúi ég öðru en hann eigi sitthvað í pússi sínum, sem fengur væri í að fengi að sjá dagsins ljós eftir þessu litla úrvali að dæma. En þetta litla ljóðaúrval er gert af óskeikulli smekkvísi, sem sýnir ljóslega, að höf. er vandlátur við sjálfan sig. Ljóðin eru öll hin haglegustu, og sýna að Elías á bæði næg yrkisefni og kann með þau að fara. Hann nefnir ljóðin Speglun, og við lestur þeirra sér maður fljótt, að nafnið er vel valið. Þau eru speglanir af hugsunum hans og viðhorfum til hins daglega lífs, skyndimyndir, fáorð, mærðarlaus og markvís. Hann yrkir bæði rímað og rímlaust, en bregður sér einkum á leik í ríminu og því oft dýru, þegar hann þarf að bregða sér á gam- anleik. Og satt að segja finnst mér raun að því, að maður sem slíkt vald hefir á máli og rími skuli ekki alltaf beita því tæki við ljóðasmíðina. Þá mundu Speglanir hans festast betur í minni. Ljóðin leita til fanga, þrátt fyrir rímleysið, og hver vill ekki taka undir með honum Mér er í mun að vita hvort einnig þið Hafið komist að raun um það þrátt fyrir allt hversu jörðin er fögur hljómur tungunnar nýr haustið jafnfagurt vori líf og dauði í sátt þegar maður elskar. Andrew Gilchrist: Þorskastríð og hvernig á að tapa þeim. Rvík 1977 Almenna bókafélagið. Dagar þorskastríðanna eru liðnir, og vonandi endurtekur saga þeirra sig ekki. Sendiherra Breta hér á landi í fyrsta þorska- stríðinu, Sir Andrew Gilchrist, segir hér frá minningum sínum frá þessu stríði og aðdraganda þess. Hann var á sínum tíma umdeildur maður hér á landi. og vafalaust voru þeir margir. sem litu hann hornauga, enda hélt hann fast á málefnum þjóðar sinnar, þótt hann gagnrýndi margar ráðstafanir hennar, og kannske hefði hann getað komist að friðsamlegri niðurstöðu ef hann hefði mátt ráða. Þessi bók hans er næsta fróðleg, en hann hefir skrifað hana eftir að fullur friður var á kominn. og hægt er að ræða málin frá hærri sjónarhóli. Vissulega höfum vér ís- lendingar aldrei efast um réttan málstað vorn. en engu að síður er fróðlegt fyrir okkur að heyra hvernig sanngjarn andstæðingur lítur á málin að leikslokum. Og sannarlega megum vér vel við una frásagnir hans. Hann ræðir málin af yfirsýn og sanngirni. þótt hann vitanlega horfi frá breskum sjónarhóli. Ég efast ekki um að lestur bókar Sir Andrews gefur okkur gleggri sýn yfir hvað gerðist í raun og veru á þessum árum. Höfundur kynntist mörgum framámönnum þjóðarinnar, og vann sér vináttu þeirra. Lýsir hann þama mörgum mönnum hispurslaust og af hrein- skilni og skrifar heilan kafla um Bjarna Benediktsson forsætis- ráðherra, sem hann hafði miklar mætur á. Höfundur er mikill veiðimaður, og segir heilmargar veiðisögur. og stíll hans er léttur og oft gamansamur. Islenskt Ijóðasafn IV bindi B. Tuttugasta öld 2. Rvík 1978. Almenna bókafélagið. Með þessu bindi lýkur hinu mikla úrvalssafni íslenskra ljóða, sem Kristján Karlsson hefur valið að mestu, og Almenna bóka- félagið gefið út. Er það langstærsta safn íslenskra ljóða, sem gefið hefur verið út og jafnframt hið besta. Hefir Kristján þar leyst þrekvirki af hendi, og þótt vafalaust megi eitthvað að því finna eins og öðrum mannaverkum, þá hverfur það fyrir kost- unum. Og sannast mála hygg ég engan núlifandi íslending hafa getað leyst verkið af hendi eins vel og Kristján, nema ef til vill Tómas Guðmundsson. Formálar Kristjáns eru hver öðrum betri og opna nýja sýn á ýmsum þáttum íslenskrar ljóðagerðar fyrr og síðar. Um þetta síðara bindi er fátt að segja. Þar eru 35 skáld, sem öll höfðu gefið út bækur fyrir 1960. Hin elstu fædd 1910. Þama eru nokkur góðskálda vorra, en meiri hlutinn eru af hinum svo- nefndu atómljóðaflokki, og þó að þar hittist góðar setningar innan um, þá sýnir meiri hlutinn, hvílíka lægð ljóðagerð fs- lendinga er komin í, og er þó sennilega meira ef svokölluð ljóðagerð seinustu áratuganna væri með. Hinn ytri frágangur safnsins er með ágætum, og það allt prýði íslenskrar bókaútgáfu að efni og útliti, enda þótt nokkrir svartir blettir séu á tungu síðasta bindisins. Matthías Johannessen: Morgunn í maí Rvík 1978 Almenna bókafélagið. Myndir Erró. Matthías setur hér í ljóðaform minningar bernsku sinnar og æsku í Reykjavík, og þá einkum frá styrjaldarárunum með öllu því umróti, sem þeim fylgdí, og hann hefir í blaðaviðtali kallað „fæðingarhríðir nýs tíma“. Til þess að leggja sem mesta áherslu á upplausnina, sem varð, þegar hin fornu verðmæti hrundu í rústir og ný viðhorf voru að skapast í deiglu eftirstríðsáranna, hefir höf. valið sér sérkennilegt ljóðaform, einskonar blöndu af hefðbundnu formi með hljóðstöfum og óreglulega settum rím- orðum, en hinsvegar háttleysu nútímans, og fer víða vel á því, og gefur það ljóðunum frumlegan blæ. Margt er áhugavert í þess- um ljóðum Matthíasar, og er víst að margar þær myndir, en ljóðin eru í sjálfu sér myndasafn, sem upp er brugðið verða mönnum hugstæðar, og því lifi þessi ljóð lengur en margt það, sem nú kallast ljóðaskáldskapur. En til þess að njóta þeirra þarf að lesa bókina vel. Bókin er prýdd myndum hins fræga og mjög umdeilda Errós, sem mörgum mun þykja bókarbót. St. Std.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.