Heima er bezt - 01.01.1980, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.01.1980, Blaðsíða 9
/ vöggu heima á Sjónarhœð. 2ja ára með „Gullfoss"-húfuna i myndastofu hjá Simpson Ijós- myndara á Isafirði. okkar námsmannanna. Ég tók stúdentspróf árið 1940 og byrjaði strax haustið eftir í guðfræðideild Háskóla ís- lands. Ég hafði nú aldrei verið viss framan af hvað ég ætlaði að læra, ég hafði t.d. áhuga á flugi og sálfræði. (Reyndar hef ég flogið flugvél nokkrar mínútur yfir Grímseyjarsundi). Einhvernveginn endaði þetta þannig að ekkert komst að nema guðfræðin. Og þá er það köllun, þegar ekkert annað kemst að nema þetta eitt. Fjóra vetur var ég í guðfræðideild og naut þess í ríkum mæli að starfa við sunnudagaskóla, sem var í tengslum við Háskólakapelluna, og voru það mín fyrstu persónulegu kynni af prestsstarfi fyrir utan það, sem ég hafði numið í föðurgarði. Ég lauk embættisprófi í guðfræði árið 1944 og létu margir minna skólafélaga þá vígja sig til prests, 18. júní á lýðveldisári. En ég varð ekki í þeim hópi, því að góður fjölskylduvinur, Magnús Scheving Thorsteinsson, styrkti mig til framhaldsnáms í guðfræði. Eins og gefur að skilja var Evrópa öllum lokuð vegna styrjaldarinnar, og varð því að ráði, að ég sigldi til Bandaríkjanna. Fór ég þangað með Dettifossi, og var siglt með skipalest. Ferðin tók alls 29 daga, því sigla þurfti alls kyns krókaleiðir til að forðast óvinaskipin. Á nóttum varð að byrgja öll ljós, og mátti ekki einu sinni vera á þilfari með logandi sígarettu. Á sunnudögum hlustuðum við farþegarnir á messu í íslenska útvarpinu, en þegar þess naut ekki lengur við, var farið að ræða um það, að hafa helgistund um borð. Spurðist þá fljótt að um borð væri nýbakaður guðfræð- ingur og var ekki að orðlengja það, að þarna í skipinu Dettifossi úti á miðju Atlantshafi framkvæmdi ég fyrsta prestsverkið mitt með því að annast helgistund á þilfar- inu. Við gerðum okkur margt til dundurs á leiðinni, m.a. gáfum við nokkrir strákar út blað, sem hét Flugfiskurinn. Við birtum t.d. ljóð eftir Einar Benediktsson og grein um skáldið til heiðurs ekkju hans, sem var meðal farþega þarna á skipinu. Það bar til tíðinda á leiðinni, að eldsnemma einn morguninn kom ofsalegt högg á skipið. Við glaðvöknuð- um um leið, og héldum auðvitað að nú væri verið að skjóta á skipið og það að sökkva. Þessi hræðsla bjó alltaf innra með manni, og braust út við minnsta tilefni. Við rukum upp á þilfar í einu hendingskasti og ég man, að það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom þangað var að líta niður í blágrænan hafflötinn. Hugsaði ég með mér að heldur væri það kuldaleg gröf sem okkur væri ætluð. En í sömu mund heyrðum við ofan úr brúnni, að einhver sagði höstuglega: „Því í andsk .... keyrið þið svona hratt?“ Hvorki fyrr né síðar hef ég orðið glaður við að heyra blótsyrði. Hjartað hoppaði hreinlega af fögnuði yfir að heyra orðsendinguna. Stýrimaður svaraði því til að þeir yrðu að sigla svona hratt til að hafa við skipalestinni. Skemmdir á Dettifossi voru mjög miklar og varð að snúa við, og halda til hafnarborgarinnar Swansea í Englandi. Þar var öll miðborgin í rúst af völdum loftárása. Var dapurlegt að sjá sumt fólkið ganga um hrunin hverfi með börnin í poka á bakinu. Þarna var svo gert að skemmdum Heima er bezl 5

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.