Heima er bezt - 01.01.1980, Síða 13

Heima er bezt - 01.01.1980, Síða 13
Vígslubiskupshjónin í heimsókn hjá Páli páfa 6. á sumarsetri hans Gandolfi, rétt hjá Róm 13. september 1972. Brátt leið að þeim degi að við skyldum til sumarseturs páfa. Við vorum, á almenna fundinum, undir ávörpum páfa. Við sátum nærri páfastólnum, heyrðum fagnaðar- lætin þegar hann kom í salinn. Þarna ávarpaði hann fjöldann á fjórum tungumáium, ef ég man rétt. Þegar þessari samkomu lauk, leiddi séra Setzer okkur í gegnum nokkra sali. Erindreki páfa kom svo. Okkur var vísað inn í áheyrnarsal páfa og sagt að bíða. Við vorum eftirvæntingarfull og óviss í því hvernig bæri að koma fram fyrir páfa. Þá höfðum við einnig heyrt að allir þyrftu að kyssa á hring páfa, sem gengu fyrir hann. En svo opnuðust dyrnar, og páfi gekk inn og leysti samstundis vanda okkar. Hann opnaði faðminn, gekk þannig til okkar og fagnar okkur eins og værum við hans elskuðu börn. Hann bað okkur að færa stólana okkar til sín svo við gætum rætt saman. Samtalið snerist að mestu um bænina og lauk samverustund okkar með því að við báðum Faðir vorið saman. Álit mitt er að auðmjúkari og lítillátari mann hafi ég ekki hitt, hvorki fyrr né síðar. Á meðan á þessari stund stóð hvarflaði ekki að okkur að við tilheyrðum sinn hvorri kirkjudeildinni. Allt slíkt þurrk- aðist út. Við vorum gagntekin, það sem eftir var dagsins, og ég held að við búum enn að þessum kynnum. — Hver er munur lútersku og kaþólsku? — í upphafi, þegar Lúter kom fram með siðbót sína, var munurinn þó nokkuð meiri en hann er nú. Þá var hægt að kaupa sér syndaaflausn í kaþólskunni með svokölluðum aflátsbréfum. Var andvirði þeirra notað til að byggja Pét- urskirkjuna í Róm. Þetta ráð lausnar á vandamálum syndarinnar gat Lúter ekki sætt sig við. Kaþólskir leggja mikið upp úr dýrkun dýrlinga. Þá mega kaþólskir prestar ekki gifta sig, og klausturhald er þar við lýði. Lúter opnaði klaustrin og sagði að menn ættu ekki að draga sig út úr heiminum, heldur móta lífið í kring um sig. Ég er þeirrar skoðunar að prestar hafi betri möguleika á að skilja vandamál sem upp koma í heimilis- og fjölskyldulífi ef þeir eru kvæntir menn, heimilisfeður. — Óvœnt atvik hljóta œtíð að henda? — Við því er hægt að búast.Á hverju ári er t.d. messa tileinkuð afmæli Akureyrarkirkju. Eitt sinn við slíkt tækifæri höfðum við séra Birgir fengið prófastinn okkar, séra Stefán Snævarr, til að predika. Við Birgir erum báðir mættir og skrýðumst, en ekki kemur prófastur. Á sama augnabliki sem kirkjuklukkurnar hringja, hringir síminn. Það er séra Stefán, og er hann staddur út á Hjalteyri, og sagði ófært inn til Akureyrar. Nú voru góð ráð dýr. Séra Heima er bezt 9

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.