Heima er bezt - 01.01.1980, Page 17

Heima er bezt - 01.01.1980, Page 17
vetur eða á útmánuðum, og síðan stillt til, var kjörið færi til að sækja skóg, eins og kallað var. Hjarn var á lág- lendi, en áin löngum ísi lögð, og þá aðalvegur, þótt viðsjál væri. í skógin- um var nær aldrei hjarn. — Hesturinn hægði á sér, þegar sveigt var inn í göngin, sem lágu upp frá ánni. Mað- urinn steig af sleðanum, lagði upp ökutaumana og gekk á undan. Báðir vissu, að þeirra gat beðið mikið erfiði. Verst var þó oft að finna viðarköstinn undir snjónum, því að nú var um- hverfið allt annað en þá jörð var auð. — Loks höfðu maður og hestur brotist leiðina á þær stöðvar, þar sem köst- urinn átti að vera. Á einum stað sýndist bunga á fannbreiðunni. Mundi hann ekki einmitt þarna und- ir? Hesturinn var losaður frá sleðan- um, yfir hann gjarna breitt teppi á sveittan búkinn og honum gefin góð heytugga, til þess að maula meðan nýs erfiðis var beðið. Skóflan og böndin höfðu verið leyst af sleðanum um leið og heypokinn, og nú hófst starfið. Það gat verið mikið strit og langsótt að moka ofan af kestinum, draga fram hverja hríslu og raða henni á sleðann. Samt fylgdi þessu einhver sérstæð nýjung, umhverfið var svo framand- legt: Neðsti hluti trjánna var hulinn, og þau hölluðust á ýmsa lund undan snjónum. Þau virtust eitthvað svo umkomulaus. Það var rétt eins og þau vildu segja: „Sjáðu okkur núna, hvað við eigum bágt.“ Þau mundu samt bæta við eftir dálitla stund: „Við réttum okkurínwt þegar vorar.“ — Þögn skógarins er ekki heldur alger. Það er hljóðbært. Við og við ropar karri í trjátoppi, eða rjúpa úar á vappi milli runna, meðan hún safnar brumi í sarp. — Ef til vill tekur einhvers staðar í streng árinnar, í auðum ál milli skara. — Einnig kann annar bóndi vera að hlaða sleða sinn í nokkurri fjarlægð. Slái hann klökugri hríslu við stofn, kveður við hinn dimmi bergmálsóm- ur, sem tré á frosinni rót eitt getur myndað. Það kvöldar. Förin niður að ánni kann að reynast tafsöm og erfið. En hún vinnst, og þá er oftast fulln- aðarsigur unninn. Sest er á ækið, og heimfús klárinn stígur léttan í áttina Skógarfura frá sérkennilegu sjónarhorni. Ljósm. Þ. Sig. heim. Reglubundinn háttur berst að eyrum, er skaflar kvarna ís undan skeifum, og öðru hverju marrar í sleðameið, þegar rífur í hjarn. Vorið nálgast. Sólbráð um daga hefur leyst snjóinn af hávöðum, en fannbreiðan liggur enn nær órofin á jafnlendi skógarins. Þá er þar skíða- færi betra en á nokkrum öðrum stað. Þrestir, auðnutittlingar og músarindl- ar fara að láta til sín heyra, þegar sólin skín. Engir íslenskir fuglar leggja jafn mikinn innileik í söng sinn og þeir á þessum tíma, ef grannt er hlustað. Enn er frost á nóttum — oft mikið eftir sólheiðan dag. Þá, þegar morgn- ar, blasir stundum við augum fáséð dýrð: Hrímskógur! Það er dauður maður, sem ekki hrífst af slíkri fegurð, — þegar snækristallarnir tindra við sólris, um leið og þeir renna og breyt- ast í tár. Flestir minnast hvítloðinna trjágreina frá ýmsum tímum vetrar. Hver hrímnál er listaverk að formi og blikar sem silfur í tunglskinsflóði og stjörnuskini. Þetta er nokkuð annað, sem verður til og deyr um leið. — Fyrr en varir eru litlu sólblysin horfin, og kórar skógarins hefja sönginn í sælli kyrrð. Það er morgunn i maí. Skógurinn er að vakna. Þótt sólin skini vorlangan daginn, getur enn blásið kuldagusti um norð- lenskar byggðir frá íshafinu og tafið gróður á bersvæði. En í skóginum er skjól og hiti. Snjóinn leysir ört. Vatn sest í lautir, og i brekkuhalla sitra hvarvetna læm- ur milli spreka og laufrasta. — Hér kemur vorið einnig að innan: „Um grein og stofn renna straumar hljóð- ir.“ Rótarsafinn frá lítt frosinni jörð nær snemma að mýkja limið, og brumin þrútna. Börkur stofnsins losnar, og ysta næfrið springur. Þróun lífsins verður ekki stöðvuð. Af hjallabrún á efstu mörkum — þar sem vel sést yfir — er litast um að aftni. Þar er svalt, en hitabylgja stígur upp frá gróðurbreiðunni fyrir fótum. Árdegis var skógurinn annar en hann er í kvöld. Þá bar mest á rauð- brúnum lit brumanna, sem voru í þann veginn að rofna og ljúkast upp. Nú slær á þau dimmblárri slikju. — Sól nemur við fjallsbrún langt í norð- vestri. Skuggar Vaðlaheiðar renna saman við litblæ vaknandi laufa. — Bláskógar! Við slíka sýn hefur það orð mynd- ast. Eitt raunsannra skrúðyrða tung- unnar, sem næmt skyn eða sterk reynsla hefur skapað. í kvöld er Blá- skógar við hæfi, — annað orð síðar. Það dregur góðviðrisbliku yfir daladrög. Sunnanáttin ætlar að ganga i lið með vorsólinni. Á morgun gerist undrið: Þá verður skógurinn fagurgrœnn. Heima er bezt 13

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.