Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 19
eggjunum og hellið yfir fiskinn þegar hann er gegn soðinn. Stráið rækjun- um yfir og bakið þar til ljós litur er kominn á jafninginn. Berið fram með soðnum kartöflum og hrásalati. Arabískur hrís- grjónapottur 1V2 kg. lambakjöt soð, salt, pipar, tímían. 1 lárviðarlauf I örlítið mynta, soðið þar til meyrt. Sósan. 2 msk. karrý 2 msk. hveiti soð 2 dl. rjómi paprika 100 gr. gróft kókósmjöl soðin hrísgrjón A ðferð. Kjötið, ásamt kryddinu sett í pott og soðið við vægan hita í eins litlu vatni og hægt er þar til kjötið er meyrt. Þá er sósan bökuð upp og krydduð. Notið soðið af kjötinu í sósuna. Síðan þegar sósan er soðin er potturinn tek- in af hellunni og kókósmjölinu blandað útí. Athugið að kókósmjölið á ekki að sjóða. Síðan þegar rétturinn er borinn fram eru laussoðin grjónin sett neðst á fatið sem þarf að vera nokkuð djúpt. Loks er kjötið sett of- aná grjónin og sósunni hellt yfir. Laukpottur 10-20 laukar (hver laukur um 60 grömm) 300 g kjötfars 1 paprika salt, pipar hvítlaukssalt smjörlíki soð e.t.v. hveiti. Laukurinn skorinn í þunnar sneið- ar og brúnaður á pönnu þar til hann er ljósbrúnn. Búnar til bollur úr fars- inu og brúnaðar á pönnunni með lauknum. Stráið kryddinu yfir og hellið soðinu útí og soðið í 10-15 mínútur við vægan hita. Þykkið sós- una ef þurfa þykir með hveitijafningi. Berið með hrásalat með sýrðum rjóma. I Rúmenskur kjötréttur 60 g smjör 2 laukar 500 g nautahakk baunir % dós 1 dós tómatsúpa salt, pipar 1 tsk. oregano kartöflustappa rifinn ostur tómatar. Aðferð. Laukurinn saxaður smátt og látinn krauma í smjörinu þar til hann er ljósgulur; hakkið sett út í laukinn á pönnunni og brúnað. Súpan og kryddið sett útí og látið krauma. Að síðustu er baununum blandað í. Kartöflustöppu er sprautað í hring yst á fatinu og kjötsósan sett á miðjuna. Rifnum osti stráð yfir og skreytt með tómötum. Fatið sett í ofn og osturinn látinn renna. Kjúklinga pflaf 1 kjúklingur smjör til að steikja úr 6-8 sneiðar flesk 3-4 msk. matarolía 2 stengur sellerí 1- 2 laukar 1 paprika 1 tsk gurkemaje eða turmerik '/21. soð (helst hænsnasoð) 2'/2-3 dl. hrísgrjón 2- 4 tómatar skornir í bita Kjúklingurinn er tekinn í sundur og skorinn í smá bita. Smjörið sett á pönnuna og brætt. Kjúklingurinn brúnaður og látinn krauma á pönn- unni í 10 mínútur. Færið bitana upp á disk, setjið matarolíuna á pönnuna og hitið hana vel. Fleskið ásamt sell- eríinu og lauksneiðunum brúnað. Þá eru kjúklingarnir settir á pönnuna aftur einnig hrísgrjónin og paprikan sem skorin er í bita, sjóðið og krydd- ið og látið sjóða í 10 mínútur. Þá er brytjaður tómaturinn settur útí og látið sjóða í aðrar 10 mínútur. Þá er rétturinn fullsoðinn og sósan búin að þykkna. Heima er bezl 15

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.