Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 31
varla í ár tekið og alls ekki á sjó. Bát- urinn lá í ósnum og nú var að róa út úr honum og síðan út að skipi og sömu leið til baka. Mig minnir að ræðarar væru fjórir. Mér gekk vel að róa í takt við þá, og varð þess ekki var að á neitt borð hallaði. En þetta var nú reynsla, sem aldrei hefir verið endurtekin. Eitt sinn er við vorum að róa yfir ána, skýtur selur hausnum upp úr vatninu rétt við bátinn. Þetta var eitthvert fallegasta höfuð á dýri sem ég hefi séð og augu eins og fegurstu hundsaugu. Móti þessu höfði hefði ég ekki getað lift morðtóli. Auðheyrt var að kvennaskólinn hafði ekki svo lítil áhrif á mannlífið í þorpinu. Var grunnt að grafa eftir vísu, sem ort hafði verið þegar kenn- ari eða skólastjóri hætti þar og flutti burt, enda stutt um liðið. Vísan var svona: Nú er sorg um Blönduós-borg, bugast Hafsteinn lætur Ólafur ráfar einn um torg, Ásgeir sterki grætur. Hafsteinn var verslunarmaður við gömlu verslunina, Höepfner. Það sem mér þótti merkilegast við hann, var að hann var sláandi líkur Sigurjóni skáldi Friðjónssyni. Þeir voru mjög líkir á vöxt, hreyfingar sömuleiðis, og báðir með alskegg sem var eins á lit og andlitsfall áþekkt. Virtust mér þeir það líkir, að ekki væri undarlegt þó mönnum hefði orðið á að villast á þeim. Hver Ólafur var er ég búinn að gleyma, eða aldrei heyrt hver var. Ás- geir sterki var sá sem ég hefi getið, og virtist mér ekki líklegur að honum væri gráts gjarnt. Líklega hefir vísna- smiður viljað undirstrika hvað missir- inn hefði verið mikill, að jafnvel Ás- geir sterki hefði ekki mátt vatni halda við brottför kennarans. Mann hitti ég þarna á Blönduósi, sem ekki var í vinnunni. Var hann um ' miðjan aldur. Hann átti fiðlu og þótti gott hljóðfæri. Það var hægt að ná bæði hálf- og heiltónum og þar að auki fjórðapartstón, sem ekki var hægt á önnur hljóðfæri. Ég man ekki til að hann léki neitt fyrir mig á fiðluna. Þá var búsettur á Blönduósi Hjálmar Lárusson, var hann dóttur- sonur Bólu-Hjálmars og oddhagur vel eins og afinn. Ég fór til hans og for- vitnaðist um starf hans, ég man nú ekki orðið hvað ég sá þá, en eitt var þó fagurlega útskorin reglustika. Bað ég hann um eina, smíðaði hann hana fyrir mig, kostaði hún 5 krónur eða tæplega tveggja daga kaup, mig minnir að 10 tíma kaup væri þá 3 krónur. Mér fannst að Hjálmar væri um meðalmaður á hæð, þrekvaxinn, alskeggjaður, jarpur, eða ef til vill að- eins rauðbirkinn. Hann var mjög prúður og hægur í framkomu, og þrúgaður af afkomubasli, eins og flest alþýðufólk og ekki síst þurrabúðar- fólk var á þeim tímum. Fáum árum seinna andaðist Hjálmar, þá flutti ekkjan norður í Aðaldal með börn sín, og þar ólust þau upp. Dóttir hennar er bóndakona í Aðaldal og sonur hennar er búsettur á Húsavík en hin fluttu burtu . Ekki man ég hvernig híbýli Hjálm- ars voru, finnst mér þó helst að það hafi verið torfhús. Maður tók nú ekki mikið eftir slíku á þeim tíma. Það var svo sjálfsagt að tómthúsfólk byggi í lélegum híbýlum og ekki mikill mun- ur þar á. Ég segi hér framar að ekki hafi verið nema ein verslun á Blönduósi fyrir utan Höepfners verslunina, en þær munu hafa verið tvær. Verslun Péturs og verslun Þorsteins Bjarna- sonar. Og svo kaupfélagið norðan ár. Nú var farið að líða á haustið og allra veðra von, og aðeins búið að steypa upp kjallarann, en ekki gólf yfir hann, sem líklega hefir ekki átt að steypa, því nú voru smíðaðar sperrur og reist þak yfir kjallarann og öll op byrgð svo allt væri varið fyrir snjó og vatni. Stóð það heima að þegar þessu var lokið kom strandferðaskip, sem mig minnir að væri Vestri á leið til Akur- eyrar, þeir sem þangað ætluðu tóku sér far með honum. Skipið fór ekki fyrr en seint um kvöldið, en kvöldið áður en farið var um borð var smá kveðju hóf, sem ég helst held að sá er stóð fyrir byggingunni hafi staðið fyrir. Þegar um borð kom tóku menn á sig náðir, og man ég ekki eftir neinum viðkomustað, og engu úr þeirri ferð, nema því að ég kom í setusal í skipinu. Þá sátu þar nokkrir menn og spiluðu peningaspil af kappi miklu, og ultu þar ekki svo litlar upphæðir á þeirra tíma mælikvarða. Þótti mér farið all- óvarlega með fjármuni. En ég gleymi aldrei fyrstu máltíðinni, sem ég fékk á Akureyri, hún var nú reyndar ekkert sérstök, nema eitt, það var hrís- grjóna-mjólkurgrautur. Mér fór þarna eins og sárþyrstum manni sem fær svaladrykk, þó allar bestu kræs- ingar heimsins hefðu verið bomar þarna fram hefði ég ekki litið á þær, fyrr en ég var búinn úr grautardiskn- um, svo sár var þorstinn eftir sumar- langt mjólkurhungur. Á Akureyri beið íbúðarhússbygg- ing húsameistarans sem stóð fyrir byggingu Kvennaskólans. Ég tryggði mér vinnu hjá honum við þetta hús, og bjóst við vinnu eitthvað fram á vetur. Ég átti fiðlu heima, lét ég senda mér hana, og ætlaði að fá mér tilsögn í fiðluspili, en það urðu aldrei nema tveir tímar, því styttra varð í vinnunni en ég hugði. Þetta var timburhús á steyptum kjallara í húsaröðinni norður frá Schiöths bakaríi, stutt norðan við bakaríið. Þegar búið var að steypa kjallar- ann, var mér sagt upp vinnunni og lá þá ekkert annað fyrir en leggja land undir fót, og halda heim. Þá var ekki neina aðra vinnu að fá á Akureyri. Ég lagði því pjönkur mínar og fiðluna á bakið og rölti heim, lík- lega síðari hluta október, gæti þó hafa verið komið fram í nóvember. Og hver var svo arður þessarar út- gerðar? í handbæru fé hafði ég svo til ekkert eins og þegar ég fór. Á ferðinni hafði ég eytt 25 krónum í fatnað á Blönduósi því ég hafði ekki fatnað til vinnu með mér. 5 krónur fóru fyrir reglustikuna frá Hjálmari og 2 krónur fyrir tvo tíma í fiðluspili. Þar að auki far með skipunum, sem ég man ekki hvað var. Það gætu því verið um 40 krónur, sem ég hefi haft upp fyrir utan fæði og húsaskjól. Líklega þætti það lítið nú til dags fyrir 3ja mánaða vinnu, og 10 stunda dagvinnu í 6 daga vikunnar. Lokið 9/12 1978 □ Heima er bezl 23

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.