Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 32

Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 32
Frímerkjasöfnun Enn bætist við safn „Merkra íslendinga“ 11. desember s.l. komu út þrjú ný frí- merki í flokknum „Merkir íslending- ar.“ Bjarni Þorsteinsson, prestur og tón- skáld, var fæddur þann 14. október 1861 á Mel í Hraunhreppi í Mýra- sýslu. Foreldrar hans voru Þorsteinn Helgason, bóndi, og kona hans Guðný Bjarnadóttir. Hann varð stú- dent 1883 var síðan við kennslu og skrifstofustörf þar til hann gekk i prestaskólann og varð guðfræðingur þaðan 1888. Sama ár vígðist hann til Hvanneyrarprestakalls og þjónaði því þar til hann lét af prestskap 1935. Eftir Bjarna Þorsteinsson liggur mikið og merkilegt ævistarf. Hann tók saman og gaf út „íslensk þjóðlög" og ritaði með þeim skýringar og inn- gangsorð. Þar að auki samdi hann ritið „íslenskir hátíðarsöngvar" og ýmis önnur rit um íslensk sönglög, vikivakalög og þjóðlög. íslenska sálmasöngsbók gaf hann út. Fyrir þessi ritstörf var hann sæmdur prófessorsnafnbót. I tilefni aldaraf- mælis Siglufjarðar sem verzlunar- staðar samdi hann rit um Siglufjörð en þar hafði hann starfað og unnið að margvíslegum umbótamálum, bæði sem hreppsnefndaroddviti og bæjar- fulltrúi eftir að Siglufjörður fékk kaupstaðarréttindi. Fyrir hin marg- háttuðu störf sín að bæjarmálum Siglufjarðar var hann gerður að heið- ursborgara kaupstaðarins. Kona hans var Sigríður Blöndal. Bjami Þorsteinsson andaðist í Reykjavík 2. ágúst 1938. Pétur Guðjohnsen, organleikari, var fæddur 29. nóvember 1812 að Hrafnagili í Eyjafirði. Foreldrar hans voru Guðjón Sigurðsson bóndi og kona hans Guðlaug Magnúsdóttir. Hann fór í Bessastaðaskóla og út- skrifaðist þaðan 1835 en hélt síðan utan til náms í Johnstrups kennara- skóla og lauk prófi þaðan 1840. Eftir heimkomuna gerðist hann organleik- ari við Dómkirkjuna í Reykjavík og gegndi því starfi til dauðadags, 25. ágúst 1877. Pétur Guðjohnsen starf- aði jafnframt sem kennari og söng- kennari við skólana í Reykjavík og var um langt skeið við skrifstofustörf hjá stiftamtmanni og landshöfðingja. Þá gaf hann út sálmasöngs- og messu- bók. Hann var alþingismaður 1865-67. Kona hans var Guðrún Sig- ríður Knudsen og eiga þau fjölda niðja hérlendis og erlendis. Aukum veg Það má sjálfsagt telja það afrek, hve mikið af frímerkjum Við íslendingar gefum út, og er það því ef til vill af tilefnislitlu að gagnrýna hvernig stað- ið er að útgáfu frímerkja hér á landi. Staðreyndin er þó sú, að mikið mætti gera til að auka sölu á frímerkjum ef rétt er á spilunum haldið. Of lítið er gert að því að auglýsa upp frímerkin og gera þau meira aðlaðandi til söfn- unar. En eins og þeir vita, sem nálægt frímerkjasöfnun hafa komið, er gildi söfnunarinnar ekki eingöngu fólgið í sjálfum merkjunum, þessum litlu bréfmiðum með lími á bakinu. Það hefur einnig mikið að segja, að hægt er að fræðast um margt merkjanna Sveinbjörn Sveinbjörnsson, tón- skáld, fæddist 28. júní 1847 að Nesi við Seltjöm. Foreldrar hans voru Þórður Sveinbjömsson dómstjóri og kona hans Kristín Knudsen. Hann varð stúdent úr Reykjavíkurskóla 1866 og guðfræðingur úr prestaskól- anum 1863. Skömmu síðar hélt hann til Danmerkur og Þýskalands og lagði stund á söngkennslu þar. Sveinbjörn Sveinbjömsson samdi fjölda sönglaga og merkasta tónverk hans er „Lof- söngur í minningu íslands þúsund ára,“ er síðar varð þjóðsöngur íslend- inga, „Ó guð vors lands.“ Hann var sæmdur prófessorsnafnbót 21. júlí 1911. Kona hans var Eleanor Christie frá Aberdeen. Hann andaðist í Kaup- mannahöfn 23. febrúar 1927. frímerkja vegna. Menn fara að kynna sér, hvers vegna merkið var gefið út, við fræð- umst um sögu lands vors, atvinnu- hætti, landslag, náttúru og svo mætti lengi telja. Fyrir þá sem vilja kynnast erlendum löndum og þjóðum, getur vart hugsast skemmtilegri aðferð en að safna frímerkjum frá löndunum, nema þá e.t.v. að ferðast þangað. Allt of lítið er gert af því, að hvetja fólk til bréfaskrifta, þessi gamla og góða íþrótt er að verða útdauð vegna þess að þægilegra er að grípa símtólið. Þetta veldur því hins vegar að stór hluti fólks getur tæpast skrifað sendi- bréf átakalaust. Þessu þarf að breyta. G. M. 24 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.