Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 37

Heima er bezt - 01.01.1980, Qupperneq 37
„Þið hafið heyrt þetta Guðbjörg og Sigurður?“ „Já,“ svöruðu þau samtímis. „Ég hefði viljað gefa ykkur eitthvað, en ég veit ekki hvað það ætti að vera, ég verð að láta það nægja að þakka ykkur hjartanlega fyrir auðsýnda tryggð og hollustu við mig og mína,“ sagði Steinþór. „Mig langar að kveðja hana mömmu þína, Siggi minn, hún er búinn að taka mörg vik fyrir þetta heimili.“ Ólöf kom inn að rúminu hans, hann tók úrið sitt, sem lá á borðinu og lagði það í lófa hennar. „Þú mátt eiga þetta Ólöf mín, ef þú vilt,“ sagði hann veikum rómi, „þú hefur víst aldrei átt úr. Þetta er gott úr, það eru ekki nema tvö ár síðan ég keypti það.“ Ólöf heyrði svo illa að Siggi varð að kalla í eyrun á henni. „Ætlar blessaður húsbóndinn að gefa mér þetta,“ sagði hún og fór að gráta. „Guð launi þér fyrir, þú hefur verið góður húsbóndi, það má nú segja. Ég held nú bara að þetta sé of fínt og dýrt handa mér.“ Hún grét svo mikið að sonur hennar leiddi hana fram. „Það þarf að líta eftir lambánum, ég ætla að reyna að sofna,“ sagði Steinþór. „Guðbjörg systir mín, vertu hjá mér þegar ég dey, þú hefur verið mín önnur hönd í lífinu.“ „Já, ég skal vera hjá þér,“ sagði Guðbjörg. Við fórum fram öll nema hún. Hann dó um kvöldið. Bjössi frá Tungufelli kom heim frá Noregi, rétt fyrir jarðarförina. Aldrei hafði hann verið fallegri og glaðlegri en núna. Það gladdi mig óseigjanlega að sjá hvað hann hafði yfirstigið þunglyndið sem ásótti hann áður en hann fór. Jarðarförin var afar fjölmenn. Nú voru örlög mín ráðin. Nú áttum við Dóra að fara að búa fyrir alvöru í Þrándarholti. Ólöf lítur upp úr lestrinum og segir við við sjálfa sig: „Þá veit ég nú ástæðuna fyrir því að þau giftust ekki, blessaðar manneskjurnar sem gengu mér í foreldrastað.“ En nú er dyrabjöllunni hringt, hún fer til dyra. Þar er komin vinkona hennar sem býr niðri í húsinu og spyr hvort hún vilji ekki koma til sín um stund. „Ekki fyrr en á morgun, þakka þér fyrir. Ég er að lesa gamlar endurminningar og ætla ekki að hætta fyrr en ég er búin,“ segir Ólöf. „Jæja, það er gott að þér leiðist ekki,“ segir grannkonan og fer. En Ólöf heldur áfram að lesa. Nú komu og fóru mörg ár sem voru hvert öðru lík. Búskapurinn í Þrándarholti gekk vel og samkomulagið var svo gott að ekki varð á betra kosið. Sigurður og gömlu konumar voru ánægð. Nú var ekki heimilisfólkið fleira á vetuma. Ég var orðinn einn í húsinu og fannst það ein- manalegt, einkum fyrst eftir að fóstri minn dó. Á sumrin höfðum við oftast kaupamann og krakka til snúninga. Dóra sat ekki í sekk og ösku, þó hún ætlaði ekki að giftast. Hún var glaðleg og dagfarsgóð á heimilinu og glöð og veitul þegar gesti bar að garði og við fórum oft á skemmtanir í Vikinni. Dóra bar af öðrum stúlkum í sjón og raun og karlmenn vildu gjarna komast í kunningsskap við hana, en það var vonlaust, það vissi ég. Bjössi á Tungufelli varð kennari á Hvoli í Hamradal haustið eftir að hann kom úr siglingunni og var sagt að hann ætti miklum vinsældum að fagna og ég var svo sem ekkert hissa á þvi. Hann var heima á Tungufelli á sumrin. Þriðja veturinn sem hann var kennari á Hvoli skrifaði hann að hann væri opinberlega trúlofaður stúlku sem héti Úlfhildur Rögn- valdsdóttir og þau ætluðu að fara að búa á Úlfsstöðum um vorið á móti foreldrum hennar. Þau komu í heimsókn um sumarið. Úlla var orðin þroskuð og yndisleg stúlka og hjónin á Tungufelli voru ósköp ánægð með hana fyrir tengdadóttur. Nú var útséð um að Bjössi yrði bóndi á Tungufelli, en foreldrar hans voru orðin gömul og þreytt. Þá réðist það að sonur Gunnars sáluga, Þórarinn að nafni, flutti til þeirra, ungur maður og efnilegur og laus við veikleika föður síns. Hann var nýlega giftur og tóku þau hjónin að mestu við búsforráðum á Tungufelli. Annað sumarið sem hann var þar, var hafist handa um byggingu á stóru og vönduðu íbúðarhúsi þar. Heima er bezt 29

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.