Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 4
Athafnaþráin sigraði myrkfælnina í líkhúsinu hef alltaf verið þeirrar ' J skoðunar að í vinnunni ætti að felast gleði, en þessa afstöðu finnst mér verið að rífa niður hin síðari ár. Ég tel það mestu dá- semd, sem hægt er að hugsa sér að vera frískur og geta unnið, lagt eitthvað af mörkum til þjóð- arbúsins.^^ Ottó A. Michelsen forstjóri IBM á íslandi GUÐBRANDUR MAGNÚSSON skráði Þótt viðskiptalífið væri heldur fábreytt á Króknum á uppvaxtarárum mínum þar, höfðum við strákarnir ýmis ráð til þess að afla okkur tekna. Oft sátum við til dæmis inni á símstöðinni og spiluðum lander, en hlupum svo með skeyti eða boð til manna um að koma í símann og fengum fimm aura í hvert skipti. Strax og ég gat haldið á árum fór ég að fara með Pálma Sighvats, og Sighvati á stöðinni til þess að draga fyrir. Yfirleitt fékk ég allan kol- ann, sem kom í netin fyrir að passa prammann fyrir þá, en í þeirra hlut kom laxinn og silungurinn. Suma daga gat ég selt kola og rauðsprettu fyrir tvær krónur samtals. Áberandi besti viðskiptavinur minn var Guðmundur Sveinsson frá Hóli, sem þá var skrifstofu- maður hjá kaupfélaginu. Synir hans eru vel kunnir, Stefán þingmaður, Árni skólastjóri á Laugarvatni og Sveinn hestamaður, en dætrunum gleymi ég ekki; þær voru mikil bæjarprýði. Sá, sem hér hefur orðið er Ottó A. Michelsen, forstjóri, umsvifamikill maður í viðskiptalífinu í höfuðborginni. Margt hefur drifið á daga hans frá því að hann steig fyrstu sporin á því sviði sem lýst var hér að framan norður á Sauðárkróki á þriðja tug aldarinnar. Hann hefur fallist á að rifja upp ýmislegt af því í viðtali við Heima er bezt. Þótt í mörgu sé að snúast hjá þessum athafnasama forstjóra úti- bús alþjóðafyrirtækisins IBM hér á landi gefur hann sér góðan tíma þar sem við sitjum í vistlegri skrifstofu hans í aðalstöðvum IBM í Reykjavík til þess að líta til baka og segja frá mönnum og málefnum. En það er við hæfi að halda áfram þaðan sem frá var horfið á Sauðárkróki hér í upphafinu og gefa Ottó aftur orðið: 276 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.