Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 19
Vér getum endurreist biskupsstól á Hólum Ávarp flutt við setningu há- tíðarsamkomu á Hólahátíð 16. ágúst 1981 af sr. Árna Sigurðssyni formanni Hólafélagsins. Að þessu sinni höldum vér Hóla- hátíð á 1000 ára afmælisári kristni- boðs á íslandi. Þessara timamóta hefir þegar verið minnst víða um land. Og hefir Hólahátíðin að þessu sinni borið svipmót sitt af þessu afmælisári. Þáttur biskupsstólsins hér á Hólum í boðun trúarinnar, frá fyrstu tíð, er eigi lítill né skammur. Það hefir verið sagt réttilega, að kirkjan, á hverjum tíma sé og ætti að vera kristniboðs- kirkja og þannig hygg ég, að kirkjan hér norðanlands hafi verið frá önd- verðu. í því sambandi minnumst vér hans er fyrstur hóf merki Guðskristni hér á Hólastað. „Helgan Jón, engilmæran, íturfríðan," eins og sr. Matthías orð- aði það. Á hans biskupstíð mátti segja, að kirkjan hefði staðið á hátindi and- legra yfirburða, þá áttu Hólar hlut- deild í hjörtum og hugum Norðlend- inga, meir en nokkru sinni fyrr eða síðar. Þá varð til orðatiltækið „Heim að Hólum,“. Hinn blessaði biskup átti mikinn þátt í að festa rætur kristinnar trúar á Norðurlandi með lærdómi sínum og yfirburða glæsimennsku. Vér minnumst einnig afreks- mannsins Guðbrandar, „er hnígin var sól yfir Hólastól og hamingjan forna,“ hóf hann merkið að nýju. „Guðs orð talar, hjörtun hitna, hugir vakna, titr- ar sál,“ er nýr siður var runninn yfir helgan stað. Því hefir réttilega verið haldið fram, að siðskiptamennirnir hafi kennt þjóðinni að lesa. Það var fyrir starf Guðbrands biskups, að ís- lendingar fengu helga bók í hendur og gátu tileinkað sér hana á móðurmáli sínu. Lestrarkunnáttan var grund- völlurinn að allri menntun og fram- förum í landinu. Senn líður að því, að 4. aldir eru liðnar síðan Guðbrandsbiblía var Séra Árni Sigurðsson formaður Hóla- félagsins. prentuð og gefin út hér á Hólum og verður þess minnst á sínum tíma. Einnig er vert, að minnast annara tímamóta hér á þessu ári, en 100 ár eru síðan Skagfirðingar eignuðust Hólastað, þ.e. sýslunefnd Skagafjarð- arsýslu náði eignarhaldi á staðnum, er áður var kominn í einkaeign. Kaupverðið var kr. 13.500,-, bæjar- hús, kirkjan, fénaðarhús og sex kú- gildi fylgdu. Það er þess vegna mikil ástæða, til þess að minnast og þakka þessa manndóms og framsýni Skag- firðinga, en með stofnun Bændaskól- ans hér á Hólum, sem á næsta ári er 100 ára, féll staðurinn aldrei í þá lægð, sem urðu örlög Skálholts, eins og kunnugt er. Þannig hefir rás tímanna ofið sinn örlagaþráð um stað og þá menn, er hér sátu og gerðu garðinn frægan. En hvað mun framtíðin bera í skauti sér hvað Hóla varða? Vér getum eigi horfið aftur til lið- inna alda, en vér getum gert hlut Hóla, sem stærstan í náinni framtíð, sem hæfir helgi staðarins og sögu. Vér getum endurreist biskupsstól og kirkjulegt menningarsetur. Hólastaður var í öndverðu gefinn til ævarandi biskupsseturs. Um leið og þjóðin tók við þessum gjöfum með endurheimt sjálfstæðis úr höndum Dana bar landsstjórninni, að efna þetta helga heit um ævinlega gjöf kirkju Krists til handa. Það hefir nú verið uppfyllt hvað varðar Skálholts- stað, en ríkisstjómin afhenti Þjóð- kirkju íslands staðinn árið 1964. Hvað varðar Hóla eru aðstæður allólíkar. En nú á þessu ári hefir stór áfangi náðst í þá átt, að kirkjan fái endurheimt land undir starfsemi sína hér á staðnum. Munu samningar við stjórnvöld um skiptingu lands milli Bændaskólans og kirkjunnar, vera skammt undan. Er þessa vissulega einnig vert að minnast á þessu kristniboðsári. Unnið hefir verið að framtíðar- skipulagi staðarins, eins og áður hefir komið fram. Mörg mál er varða stað og kirkju hér á Hólum mætti ræða, en það verður að bíða annars tíma. Það er því von vor og bæn á þessum bjarta og fagra Hóladegi, að vér mættum sjá vonir þjóðskáldsins sr. Matthíasar rætast, er hann segir í kvæðabálki sínum um Hólastifti: „Dagur er uppi, dynur í lofti, niður mót nýöld, nútímans hjól, / þriðja sinn þjóðu, þráir að lýsa, náðarsól ný yfir Norðurlands stól.“ Heima er bezl 291

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.