Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.09.1981, Blaðsíða 30
En svo komu hrakfarirnar: Áður braut ég allan kjöl úr Austra knerri. Hásetarnir frá mér fóru. fylltir bræði þannig sóru: Þó það kosti allan auð og æru vora. út með þér á ekru þara aldrei framar skulum fara. Bragarbótin, sem Jón gerði á keipsnefsvísu minni, er á þessa leið: Hann Jónmundur hygginn stundar menntir. Er sá hranna elda ver yngismanna blómi hér. Hans hjá mengi hrós mun lengi vara. Listafögur hönd á hal hefur sögu málað skjal. 9. Engjasláttur Og stöðugt rigndi. Það var sama. hve mikið ég flýtti mér með brennheitt kaffið og sjóðandi mjólkurgrautinn í fallegu fötunum til engjafólksins. Þetta varð allt að hálfköldu gutli. Það var mikið um ólekju og grauta í þessu héraði. Grautur var eftirsótt verzlunarvara. ekki hvað sízt hjá vegagerðar- mönnum nokkrum árum síðar. sbr. vísuna Hann úr öllu gerfli graut. Fólk hafði tæpast undan rigningunni að drekka kaffið. úr bollunum eða grautinn úr fötunum. Allt streymdi og vall í regn. Það féll í fossum niður um fólkið. safnaðist í skóna. spýttist upp úr þeim. þegar það hreyfði sig. Annars rekur mig sérstaklega minni til einnar grautar- sögu: Bæjarhólsbrekkan var hálli en nýfáguð skíðabraut og allbrött. Yngri Helga. sem komin var á fætur eftir sængur- leguna og heilsaðist ágætlega eins og barninu. var að af- henda mér grautarfötu ásamt fötu frá mömmu sinni. Ég tók föturnar á grind og var auk þess með einhvern stærðarkylli á bakinu. ..Farðu nú varlega. Mundi minn. það er svo sleipt og slabbsamt að ganga.“ sagði Helga blíðlega. Nú þótti mér hún ákaflega falleg. svo grönn. íturvaxin og blómleg. ..0. það er ekki hættan á. að ég detti." sagði ég kotrosk- inn og þaut fram á hólbarðið. þar sem brattast var niður. ..í öllum bænum farðu ekki þarna!” hrópaði húsfreyja og baðaði út höndunum. Fitthvað sagði hún fleira ög í öðrum tón. En ég heyrði það ekki. Hins vegar missti ég strax fótanna á brekkubrúninni. sveif eins og i fegursta skíðastökki alllengi í loftinu og lenti siðan á grúfu niðri á jafnsléttu. Vitaskuld var ekki grautarlögg eftir í fötunum. þar sem ég lá þarna illa á mig kominn. samvizkumórauður og allur hvítskjöldóttur af grautnum. Yngri Helga kom fram á hólbrúnina. starði á mig orðlaus og virtist eiga bágt með að veltast ekki um af hlátri. Ég kunni þessu samúðarleysi illa. en vegna þess að ég fann. að ég átti það skilið. varð mér það þó kærkomnara en hitt. sem ég einnig átti skilið. I þessu kom eldri Helga einnig fram á hólbrúnina. horfði á mig píreyg og brosandi. en þó með nokkrum áhyggjusvip. ..Meiddirðu þig nokkuð. Mundi rninn?” spurði hún blíðlega. ..Nei. ekki gerði ég það.“ anzaði ég lúpulegur. ..Mölvaðirðu þá ekki föturnar?“ spurði hún enn. ..Nei.“ svaraði ég talsvert öruggari. eins og það hefði verið sérstakri varúð minni að þakka. að þær brotnuðu ekki. ..Komdu þá. væni minn. Við skulum verka af þér graut- arsletturnar. Svo læt ég aftur í föturnar." hélt gamla konan áfram eins og ekkert hefði í skorizt. ..Við fáum okkur svo kaffisopa. og þú manst að fara varlega.” Og nú vorum við á engjunum. vestur á Ásasundum. einhvers staðar fyrir utan Tagl. Það var víst ekki langt frá klettarananum. sem hann gamli Þ. á . . . stöðum reið fram af. góðglaður. Hann hafði tamið sér þá íþrótt. þegar hann var kenndur að ríða í loftinu á hvað. sem fyrir var. jafnvel yfir strompana á bæjunum. sem urðu á leið hans. Og hann stefndi meira að segja hærra en það. þegar hann var vel hreifur. Hann reið hiklaust fram af hamrabjörgum og hengiflugum. sem á vegi hans urðu. Og það var með hann að þessu leyti eins og sólargeislann: hann fór fyrir björg og brotnaði ekki. Var gamli maðurinn þó óviðkunnanlega luralegur í vexti og þungur á sér. En aldrei skyldi honum verða meint af þessum geimferðum. en nú lágu beinin af einum gæðingnum hans brotin þarna í urðinni fyrir neðan hamrabeltið í einum ásnum. Það hefur aldrei þótt eftirsóknarverð vinna að kakka saman rennblautu heyi í úrhellisrigningu og rokstormi. Markúsi kaupamanni fannst það heldur ekki. Regnið lak úr hverju hans hári. Þeir voru þarna fimm eða sex piltarnir að slá. Markús kvað: Skýin svigna í skúrunum. Skatnar digna í leðju. Ákaft rignir úr honum ofan á Vianis beðju. ! ..Ekki hefur þú ort þessa vísu. Krúsi minn." gall í Guddu vinnukonu. ..Bróðir minn yrkir nú betur en þetta." Mig i minnir. að hún væri systir Álfs skálds Magnússonar. sem hvarf við ísafjarðardjúp löngu seinna og talið var. að komizt hefði í erlent skip. Gudda. fullu nafni Guðríður. var kát og fjörug hnvðra. Hún var alltaf að spreka Markúsi til. en hann var heldur silalegur og í laginu eins og rekaviðar- \ 302 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.