Heima er bezt - 01.09.1981, Síða 6
Faðir Ottós, Jörgen Frank, á skrifstofu sinni á Sauðárkróki.
En hver er Ottó A. Michelsen og hverra manna er hann?
Ottó er fæddur 10. júní 1920, auðvitað á Sauðárkróki.
Hann er einn af tólf barna hópi. Foreldrar hans voru
Jörgen Frank Michelsen og Guðrún Pálsdóttir, hann frá
Danmörku, en hún frá Draflastöðum í Eyjafirði. Michelsen
kom til íslands á vegum Jóhannesar Norðfjörð, sem þá var
úrsmiður á Sauðárkróki, en hann fluttist brátt til Reykja-
víkur.
Michelsen var aftur á móti nær öll sín starfsár á Sauðár-
króki og byggði upp margs konar atvinnurekstur, stundaði
úrsmíðar og gullsmíði og rak verslun, þar á meðal fyrstu
raftækjaverslunina í bænum eftir að Sauðárkrókur var
rafvæddur. Hann smíðaði meðal annars nær alla gifting-
arhringa, sem settir voru upp í Skagafirði um árabil og
segist Ottó eiga margar skemmtilegar minningar frá þvi,
þegar ungu mennirnir komu til föður hans og tóku hann á
eintal. Þá vissu flestir hvað til stóð.
Börn Michelsenhjónanna á Sauðárkróki eru Frank úr-
smiður, Georg bakari, Páll garðyrkjumaður. Aðalsteinn
starfsmaður Skrifstofuvéla, en hann rak áður bílaverkstæði
í Hveragerði, næstur í röðinni er Ottó og þar á eftir Krist-
inn, sem vinnur hjá Skrifstofuvélum, og yngstur bræðranna
er Aage, sem rekur verktakafyrirtæki og verkstæði í
Hveragerði. Tvær systur á Ottó á lífi, önnur er Hulda, sem
er ljósmyndari, hin er Pála, en hún er iðnverkakona. Þrjár
systur eru látnar: Karen, sem var elst systkinanna, Elsa,
sem var næstyngst systkinanna og Kristín, sem var í miðj-
um barnahópnum.
Áður en lengra er haldið bið ég Ottó að segja lesendum
Heima er bezt nánar frá föður sínum Jörgen Frank
Michelsen:
„Faðir minn var fyrst og fremst úrsmiður. Hann var á
margan hátt sérstæður maður. Þótt hann væri af erlendu
bergi brotinn og Dani í húð og hár hafði hann mikinn
áhuga á íslenskum málefnum og ekki síst íslensku at-
vinnulífi. Meðal annars gerði hann ýmsar tilraunir, sem
ekki hafði verið brotið upp á í Skagafirði á þeim árum. Til
dæmis hafði hann svín og endur og töluverðan annan bú-
skap, sem létti undir í lífsbaráttunni. Þá var faðir minn
brautryðjandi varðandi geymslu á kartöflum og einn af
aðalhvatamönnum að koma upp kartöflugeymslu á Sauð-
árkróki. Raunar var það mitt síðasta verk áður en ég fór
utan til náms 1938 að tyrfa þak kartöflugeymslunnar á
Sauðárkróki í sjálfboðavinnu. Á henni er sama torfið enn í
dag.
Þá vil ég nefna, að faðir minn gerði svolitlar tilraunir á
sviði kornræktar til skepnufóðurs og ég held að óhætt sé að
segja, að þær hafi gefist mjög vel. Áhugamál hans voru
fjölbreytileg og hann var svo sannarlega lifandi í athafna-
Iífinu.“
— Kom faðir þinn ekki eitthvað nálægt útgerð?
278 Heima er bezt