Heima er bezt - 01.09.1981, Page 15

Heima er bezt - 01.09.1981, Page 15
Frá sjómennskudögum Sigurðar kynni og að vera þessi staka: Forlaganna fjörðurinn frekt sig náir yggla: óláns fyrir annesin ekki er hægt að sigla.* * 3._________________ Eftir að Sigurður reisti bú í Garðshorni. riðu yfir harðæriskaflar, sumir með ógegnd. í einum þeirra, 1881-82, sneri Sigurður máli sínu til guðs almáttugs og bað hann að létta hörkunum. Bak við yfirlætislaust bænarákalls hins fátæka manns má skynja sárar þrengingar hans, þegar bæði land og sjór eru í heljargreipum hjarns og ísa: Lífsins orða lindin djúp. linaðu forðann kinda, klæddu storð úr hríðarhjúp, hastaðu’ á norðanvinda. Guð. af þýðum gæzkumátt gleddu lýði á jörðu, sendu blíðu úrsuðurátt. sjóinn þíðan gjörðu. Þó eru það hvorki sjóferðavísur né bænarvers sem haldið hafa uppi hagyrðingsnafni Sigurðar í Garðshorni, heldur ómýkri vísur hans: háðglós- ur og stækir áfellisdómar um menn. Hann þótti „rammaukinn kjaftur, skammyrtur, en þó alltaf með hófi, aldrei með svakahætti“ mælti Kol- beinn Kristinsson frá Skriðulandi í samtali við höfund þessa stutta þáttar. En menn skyldu hafa hugfast, að á Sigurðar dögum var enn landssiður að fjandskapast í vísum. Nú er það aflagt að mestu og blöðunum trúað fyrir ádeilum, oft litlu vægari hrakyrðavísum áður. Síðustu ár sín baunaði Sigurður í Garðshorni óþvegnum vísum sér í lagi á tvo menn: Evert Evertsson í Nöf við Hofsós og Björn Schram á Stafni í Deildardal. síðar Hofi. Þeir voru báðir * í Hafrœnu. bls. 285. er vísa þessi eignuð Signrði. en einnig nnin sagt. a(5 hún sé eftir Magnús Siguréisson frá HeiAi í Gönguskörðum. — Til skilnings á fjórðu hendingunni er vert ad niuna. aö luegt nierkir fiar ekki kleift. eins og nú er títt. heklur atnhelt. />uif‘ilet;i: þaö er: ekki er auöveld sigling fvrir óláns-annesin. hagorðir, þó einkanlega Björn, og stóð hann Evert langtum framar í vísnagerð. Sigurður sendi Evert mjörg skeyti, misfimlega eins og gengur í orrahríð. Eitt þeirra fékk Evert í brag um Hofsóskaupstað, en hann starfaði þar meðfram sem utanbúðarmaður, eftir að hann settist að í Nöf; hafði áður verið á ýmsum stöð- um í Húnavatnssýslu og Skagafirði og jafnan með lítið milli handa. Evert var maður heldur í Iægra lagi á vöxt, en léttur í svifum, snaggara- legur. Sigurður kvað: Þar sést Evert þjóta um ranna, þrátt sem grefur æti sér, setur nef í sakir manna, síðan slef og róg út ber. Eftirfarandi vísu fékk Sigurður aftur á móti frá Evert, og ?r þó sumra mál, að Björn Schram, sem var níðskældinn í meira lagi, hafi búið hana til í orðastað hans: Sífellt angur segginn sker, sultar- stanga -flogin, Garðshornslangur af því er oft á gangi boginn. Sigurður galt fyrir sig þannig: Líkt og refur lágfættur lömb í grefur tennur, margoft Evert móleitur matarþef á rennur. Tvær af kveðjum Sigurðar til Björns Schram hljóða svo: Þá heltröð flytur heimi fjær hrekkja- skitið -goðið. allir vita, að fjandinn fær feitan bita í soðið. Skrámur þver og skilningsber skoltinn gerir hrista. Ef að meri míga sér, manninn fer að þyrsta. Ekki er vitað um svör Björns, sem sjálfsagt voru vel úti látin. Og lýkur hér að tína upp fá- einar af tækifærisvísum Sigurðar í Garðshorni. Heimildarmcnn aö vísum. adSrir en Sigurrtur Helgason. eru Jónas Jónasson frá Hofdölum. Stefán Vagnsson og Kolheinn Kristinsson. l 'm annaó er farió eftir Jaróa- og búendatali og Skagf. æviskrám III (þætti Siguróar) og IV (þætti F.verts F.vertssonar). Heima er bezt 287

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.