Heima er bezt - 02.10.1988, Side 11
Stefinjóasson
íoskuJdsstöðuir
dJúpdæla
SAGA
ENDURMINNINGAR OG ÆVISOGUR
JONAS ÞORBERGSSON:
AFREKSMENN
Ævisögur, draumar og dulræn fyrirbæri.
Nítjánda öldin ól fjölda afreksmanna, sem
hrundu fram þjóöarviðreisn Islendinga. Pessi
bók fjallar um ævi og afrek Kristjáns ríka í
Stóradal, - ævi og afrek sonarsonar hans, Jón-
asar Sveinssonar frá Bandagerði, - ennfremur
um stórmerka drauma og dulræn fyrirbæri
Jónasar Sveinssonar. Fróðleg bók og
skemmtileg aflestrar, prýdd myndum.
Bók 380 HF.B-verð kr. 300,00
ÞORMÓÐUR SVEINSSON:
MINNINGAR ÚR
GOÐDÖLUM
OG MISLEITIR ÞÆTTIR.
Þessar minningar Þormóðs eru ríkar af þjóð-
lífslýsingum, og er bókin í senn fróðleg og
skemmtileg. 277 bls.
Bók 242 HEB-verð kr. 300,00
STEFÁN JÓNSSON
á Höskuldsstöðum:
RITSAFN I
DJÚPDÆLA SAGA.
Sögufélag Skagfiröinga hefur nú byrjað útgáfu
á ritsafni hins merka fræðimanns og ættfræð-
ings Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum,
sem lést árið 1980, 88 ára að aldri. Hafði hann
þá í meira en 7 áratugi stundað ritstörf og
fræðimennsku, en mjög lítið birt á prenti.
Stefán lét cftir sig fjölda frágenginna þátta um
menn og málefni í Skagafirði frá fyrri tíð.
Stærsta verk hans er Djúpdæla saga, sem nú
birtist í fyrsta bindi ritsafns hans. I Djúpdæla
sögu er bæði greint frá stórtíðindum og ýmsu
smálegu. Segir þar mest frá Eiríki Bjarnasyni
(Mera-Eiríki) og afkomendum hans, en fjöldi
manna er viðriðinn atburði sögunnar, margir
þeirra landskunnir. Bókin er 263 bls., prýdd
fjölda mynda og fylgir nafnaskrá. Kristmund-
ur Bjarnason fræðimaður á Sjávarborg samdi
inngangsritgerð um Stefán á Höskuldsstöðum
en útgáfuna önnuðust Hjalti Pálsson, Sölvi
Sveinsson og Þórdís Magnúsdóttir.
Bók 913 HEB-verð kr. 800,00
STEFÁN JÓNSSON, Höskuldsstöðum:
RITSAFN, II. BINDI
SAGNAÞÆTTIR.
Þetta er annað bindi í ritsafni Stefáns Jóns-
sonar fræðimanns frá Höskuldsstöðum í
Blönduhlíð. í því eru níu sjálfstæðir sagna-
þættir, og koma þar við sögu ýmsir þekktir
menn og kynlegir kvistir frá fyrri tíð. Bókin
er um 220 bls. að stærð með mörgum myndum
og nafnaskrá.
Bók 917 HEB-verð kr. 950,00
Páll H. Jónsson
Sagan um
Hallgrím Kristinsson
R OC
ASOJV
EINU
SINNL
lll
nt\su.
'ffí FH\
I II) M \|
IXX.IM
STEFAN JONSSON, Höskuldsstöðum:
RITSAFN, III. BINDI
SAGNAÞÆTTIR II.
í þriðja bindi ritsafns Stefáns á Höskuldsstöð-
um birtast þrír alllangir sagnaþættir. Sögusvið-
ið er Blönduhlíð, Austurdalur og Tungusveit.
Þetta er fróðleg bók fyrir þá sem unna þjóð-
legum fræðum og persónusögu. Bókin er
nokkuð á þriðja hundrað blaðsíður, með
nafnaskrá og prýdd fjölda mynda.
Bók 918 HEB-verð kr. 1.200,00
STEFAN JONSSON, Höskuldsstöðum:
RITSAFN, IV. BINDI
ÞÆTTIR OG ÞJÓÐSÖGUR.
í fjórða bindi ritsafns Stefáns á Höskuldsstöð-
um er eins og nafnið bendir til sagnaþættir og
þjóðsögur. Má þar nefna langan þátt um Pétur
Pálmason hinn sterka í Valadal og annan um
Jón Godda. Allstór hluti þessa bindis er
lagður undir þjóðsögur og munnmæli, sem
Stefán skráði á fyrstu áratugum aldarinnar.
Flestar eru sögurnar úr Skagafirði og Húna-
þingi, m.a. er sérstakur þáttur um Magnús sál-
arháska. Bókin er 215 bls. að stærð með
nafnaskrá og fjölda mynda.
Bók 921 HEB-verð kr. 1.700,00
PALL H. JONSSON:
ÚR DJÚPADAL AÐ
ARNARHÓLI
Sagan um Hallgrím Kristinsson.
Hallgrímur Kristinsson, fyrsti forstjóri Sam-
bandsins, ólst upp í fátækt í inndölum Eyja-
fjarðar, en ruddi sér braut til frægðar og frama
með einstæðum dugnaði, viljaþreki og atorku.
Um það leyti sem hann var að stofna eigið
heimili og hefja sjálfstæðan búskap, var hann
ráðinn framkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirð-
inga. Páli H. Jónssyni hefur tekist að gera
Hallgrím Kristinsson Ijóslifandi fyrir hug-
skotssjónum lesandans.
Bók 966 HEB-verð kr. 600,00
GENE FOWLER:
MÁLSVARINN MIKLI
Bók þessi er ævisaga Williams J. Fallons, sem
var einn fyrsti lögfræðingur í Bandaríkjunum.
er frægur varð fyrir það sérstaklega að verja
sakamál og ef til vill frægastur þeirra allra.
Sú var tíð, að ,,Fallon“ merkti það sama og
,,bragðarefur“. En höf. bókarinnar, Gene
Fowler, segir okkur aðra sögu - sögu af dreng,
sem að vísu var brellinn og hrekkjalómur, en
sem helst fannst það eiga fyrir sér að liggja
að verða kaþólskur prestur. En Fallon var
barn síns tíma, barn peningaflóðsins og lög-
leysunnar eftir heimsstyrjöldina fyrri.
Bók 279 HEB-verð kr. 300,00
Bókaskrá 11